Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.12.2006, Blaðsíða 38

Víkurfréttir - 21.12.2006, Blaðsíða 38
38 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR Keflavíkurkonur unnu loks bug á meinum sínum er þær höfðu betur gegn Íslands-meisturum Hauka, 92-85, í Iceland Ex- press deild kvenna um síðustu helgi. Leikurinn var jafn og spennandi allt til enda en Keflavíkurkonur reyndust sterkari á endasprett- inum og verða á toppi deildarinnar í jólafríinu. TaKesha Watson og María Ben Erlingsdóttir léku vel fyrir Keflavík gegn Haukum. TaKesha gerði 32 stig í leiknum og María gerði 31. Næsti leikur Keflavíkurkvenna er þann 10. janúar á næsta ári gegn Breiðablik. Haukagrýlan kveðin niður Framtíðarknattspyrnukonur landsins tókust á í Reykja-neshöll fyrr í þessum mánuði á Landsbankamótinu sem 5. flokkur kvenna í Keflavík stóð að. Valsstúlkur sigruðu í öllum riðlakeppnunum og urðu Landsbankameist- arar en nokkuð var um góð tilþrif í mótinu en keppt var í argentínsku-, brasilísku,- og ensku deildinni. Auk gest- gjafanna frá Keflavík tóku Valur, Fjölnir, Leiknir, Selfoss og Afturelding þátt í mótinu. Á verðlaunapalli í Las Vegas Valsstelpur Landsbankameistarar Borðtenniskappinn Jó-hann Rúnar Kristjáns-son úr Reykjanesbæ náði enn og aftur góðum ár- angri þegar hann lenti í 3. sæti í sínum flokki á opna banda- ríska mótinu sem haldið var í Las Vegas um liðna helgi. Jóhann hafði verið að kljást við veikindi fram á mótsdag, en harkaði af sér og komst á pall og lauk þannig glæsilegu ári þar sem hann kom sterkur inn aftur eftir meiðsli og veikindi sem gengu nærri honum. Næst á dagskrá hjá Jóhanni er að halda sér í fremstu röð á heims- listanum, en hann er nú í 16. sæti, sem gefur rétt til þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra sem fara fram árið 2008. „Það eru eftstu 16 sætin sem gefa sætið, en ég ætla að vera öruggur með ólymp- íusætið og vinna mig upp list- ann á næsta ári,” sagði Jóhann í samtali við Víkurfréttir. Á myndinni er Jóhann ásamt Rússanum Poddoubnyi sem var í 2. sæti og sigurvegaranum Lars Hanson frá Danmörku. Árleg jólagleði yngri f l ok k a Kef l av í ku r í k nattspy rnu fór f r am í Re y kj an e s h ö l l í g ær. K r a k k ar n i r m æ ttu í alls kyns búningum og s k e m m t u s é r v e l e n d a mættu nokkrar af skærustu k n a t t s p y r n u s t j ö r n u m Keflavíkur á jólagleðina. Skipt var í lið og spilað af öllum lífs og sálar kröftum enda stóðu krakkarnir sig vel hvort sem þau öttu kappi með eða á móti fullorðnu snillingunum. Hér á myndinni eru boltakrakkar ásamt þeim Hólmari Erni Rúnarssyni, Guðjóni Árna Antoníussyni og Hara ldi Guðmundssyni. Systurnar Björg og Guðný Þórðardætur mættu einnig sem og Baldur Sigurðsson og Jóhann B. Guðmundsson. Að lokum var svo verðlaunaafhending og krakkarnir héldu glaðir í bragði heim og næsta stóra mál á dagskrá hjá þeim var jólahátíðin enda varð þeim tíðrætt um hana. Með atvinnumönnum í fótbolta María Ben Erlingsdóttir fór hamförum gegn Haukum og gerði 31 stig. Hér hefur hún betur í boltabaráttu gegn Helenu Sverrisdóttur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.