Víkurfréttir - 21.12.2006, Blaðsíða 30
30 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 51. TÖLUBLAÐ - JÓLABLAÐ II I 27. ÁRGANGUR
Nýtt hringtorg á gatnamótum Hafnar-götu og Flugvallarvegar var opnað í síðustu viku en framkvæmdir við það
hafa staðið yfir undanfarnar vikur og hafa veg-
farendur þurft að fara krókaleiðir til komast á
milli bæjarhluta. Það heyrir nú sögunni til.
Það var Nesprýði sem annaðist gerð hringtorgsins
en eigandi þess, Jón Olsen, átti einmitt fimmtugs-
afmæli sama dag og hafði hann á orði að það væri
gaman fá heilt hringtorg í afmælisgjöf. Torgið
verður þó ekki nefnt eftir afmælisbarninu, þó Jóns-
torg láti vel í eyrum, heldur mun það hljóta nafnið
Reykjavíkurtorg. Er þetta fyrsta hringtorgið í röð
þeirra sem sett verða upp á nýjum vegi sem liggja
mun upp að Reykjanesbraut en þau verða öll
nefnd eftir ýmsum Evrópuborgum. Reykjavíkur-
borg mun ætla að gefa tvær öndvegissúlur sem
prýða munu hringtorgið í framtíðinni.
Samkvæmt könnun sem ver ið hef ur í gangi á vf.is síðustu daga ríkir
almenn óánægja með nafnið
á nýja hringtorginu á gatna-
mótum Hafnargötu og Flug-
vallarvegar í Reykjanesbæ.
Nýja hringtorgið fékk nafnið
Reykjavíkurtorg og spurðu Vík-
urfréttir hvernig fólki líkaði við
nýja nafnið. Alls voru 49% svar-
enda mjög ósáttir við nafn hring-
torgsins og 9% voru ósáttir. Það
gera 58% svarenda sem eru
ósáttir við nafnið Reykjavíkur-
torg en alls voru 21% svarenda
sem voru sáttir eða mjög sáttir
við nafnið.
19% svarenda stóð á sama hvert
nafnið væri en ósennilegt þykir
að nafninu verði breytt héðan
í frá. Viðar Már Aðalsteinsson,
forstöðumaður umhverfis- og
skipulagssviðs Reykjanesbæjar,
sagði í samtali við Víkurfréttir
að nafnið væri hluti af borgar-
brautinni og á henni verða hring-
torg með nöfnum stórborga.
„Ég er ekki frá því að fólk eigi
eftir að taka þetta í sátt, sérstak-
lega ef það skoðar málið í heild.
Þetta er spennandi verkefni og
á hverju hringtorgi mun vera
kennileiti frá borginni sem það
verður kennt við,“ sagði Viðar
Már.
Næstu torg munu heita Lund-
únatorg, Rómartorg, Parísartorg
og Washingtontorg sem staðsett
verður næst Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar.
Reykjavíkurtorg skal það heita
Almenn óánægja með nafngiftina
✝
��������������������
�������������������������
������������ ������������������������
������������������
���������
����������
������������������������������������
�����������������������������������
��������������������������
����������������������������
Næsta tölublað Víkurfrétta
kemur út föstudaginn 29. desember.
Skriftofa VF opnar aftur miðvikudaginn 27. des kl. 09