Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.10.2014, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 16.10.2014, Blaðsíða 19
19VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 16. október 2014 www.n1.is facebook.com/enneinn ÍSLE N SK A /SIA .IS E N N 70873 10/14 Jeppaeigendur þekkja að við íslenskar aðstæður veltur mikið á að hjólbarðarnir séu af bestu gerð. Láttu dekkin frá Cooper draga fram það besta í jeppanum þínum í vetur. Hjólbarðaþjónusta N1: Grænásbraut 552, Reykjanesbæ 440-1372 Opið mánudaga-föstudaga kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is www.dekk.is  Cooper undir jeppann í vetur • Nýtt og endurbætt vetrardekk með öflugu gripi • Mikið skorið og neglanlegt fyrir veturinn • Hentar íslenskum aðstæðum enda hannað fyrir norræna vegi Cooper Discoverer M+S 2 • Nýtt óneglanlegt vetrardekk • Mikið skorið, mjúkt og góðir aksturseiginleikar • Míkróskorið með góða vatnslosun og magnað veggrip Cooper SA2 Cooper Discoverer M+S • Vetrardekk fyrir jeppa, mikið skorið með sérhönnuðu snjómynstri • Neglanlegt með nákvæmri röðun nagla sem grípur vel á hálum vegum • Endist vel og vinsælt sem heilsársdekk Sex stúlkur af Suðurnesjum urðu á dögunum Evrópu- meistarar í hópdansi. Þær segja félagsskapinn góðan og eru hæstánægðar með kennsluna hjá Danskompaníi. Um er að ræða besta árangur nemenda þaðan frá stofnun þess. Þrjátíu góðar vinkonur „Þetta er skemmtileg líkamsrækt og við erum allar mjög góðar vin- konur, erum alls 30 í hópnum sem æfum saman. Félagsskapurinn heldur okkur líka frá öllu rugli og dansinn er alltaf númer eitt,“ segja Ingibjörg Sól Guðmundsdóttir og Díana Dröfn Benediktsdóttir, en þær eru í hópi sex dansara sem urðu Evrópumeistarar í hópdansi á sterku móti, FitKid, sem haldið var um sl. helgi í Vodafone höllinni í Reykjavík. Hinar í hónum eru Elva Rún Ævarsdóttir, Lovísa Guð- jónsdóttir, Sylvía Rut Káradóttir og Sandra Ósk Viktorsdóttir. Þær eru allar af Suðurnesjum. Unnu ferð til Ítalíu Iðkendur FitKid eru börn og ungl- ingar á aldrinum 6-19 ára og brúar þessi íþrótt bilið á milli fimleika, þolfimi, dans og styrktaræfinga. Keppnin var haldin í annað sinn á Íslandi og þær stöllur unnu ferð og fengu styrk til að sækja æfinga- búðir á Ítalíu. „Við förum líklega næsta sumar. Um er að ræða frítt fæði og húsnæði og aðgang að þremur einkaströndum sem skól- inn á. Þetta er algjör draumur!“ 250 keppendur frá 9 löndum Ingibjörg og Díana hafa æft dans hjá Danskompaníinu frá stofnun hans fyrir fjórum árum. Áður æfðu þær ýmist jazzballett og fim- leika, en þær segja fimleika góðan grunn fyrir dansinn. Sigurdansinn á mótinu hafi verið jazzblandaður en samt kröftugur og harður. „Við áttum að vera grimm dýr og það þurfti gott þol í dansinn því hann er erfiður og tekur á allan líkamann,“ segja þær og bæta við að kennari þeirra og eigandi Danskompanís- ins, Helga Ásta Ólafsdóttir, sé snill- ingur í öllu sem hún geri og hafi náð að vinna úr nemendum sínum mjög sterka dansara úr grunninum sem fyrrum eigandi, Ásta Bærings, byggði á. „Enginn frá Danskomp- aníi hefur náð svona góðum ár- angri áður. Keppendur á mótinu voru 250 frá níu löndum. Sex hópar kepptu í okkar flokki og fulltrúar Íslands komu frá Danskompanínu og Listdansskóla Hafnarfjarðar,“ segja Ingibjörg og Díana. Stefna enn hærra Um 300 nemendur æfa hjá Dans- kompaníinu og yfir 100 nýskrán- ingar voru á haustönn. Evrópu- meistararnir eru staðráðnir í að halda áfram að æfa hjá Danskomp- aníinu og stefna enn hærra en þær hafa náð í dag. „Við höfum líka verið að dansa dálítið í útöndum, m.a. í New York og London í nem- endaferðum. Það eflir dansstílinn og við lærum meiri og fjölbreytt- ari tækni af öðrum. Helga er út- skrifuð sem kennari úr JSB og er dugleg að tileinka sér nýjungar í út- löndum. Við höfum líka fengið er- lenda dansara til að koma og kenna okkur,“ segja ungu dansaranir sem eiga sannarlega framtíðina fyrir sér. -viðtal pósturX olgabjort@vf.is X■ Nýbakaðir Evrópumeistarar í hópdansi stefna langt: Dansinn heldur okkur frá öllu rugli Díana Dröfn Benediktsdóttir og Ingibjörg Sól Guðmundsdóttir. Hópurinn eftir að sigurinn var ljós

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.