Víkurfréttir - 16.04.2015, Blaðsíða 4
4 fimmtudaginn 16. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Bláa Lónið og Jáverk hafa undirritað verksamning
vegna stækkunar upplifunar-
svæðis Bláa Lónsins og bygg-
ingar lúxus hótels. Samningurinn
hljóðar upp á 3,4 milljarða króna
en samtals er heildarkostnaður-
inn vegna framkvæmdanna um 6
milljarðar. Mannvirki Bláa Lóns-
ins munu tvöfaldast að stærð.
Hundrað ný störf verða til og
verða því um 400 eftir opnunina
sem gert er ráð fyrir í upphafi árs
2017. Á framkvæmdatíma, sem
áætlað er að verði tvö ár, munu
150 starfsmenn starfa við verk-
efnið.
Endurhönnun og stækkun nú-
verandi lónssvæðis er mikilvægur
hluti verkefnisins. Þá verður nýtt
spa upplifunarsvæði byggt inn í
hraunið vestur af núverandi lóni og
mun það tengja núverandi lón og
nýtt lúxushótel . Með tilkomu hót-
elsins verður fyrsta flokks gisting
hluti af upplifun Bláa Lónsins. Í
hótelinu er gert ráð fyrir 60 her-
bergjum, fundarsal og veitingastað.
Stækkun og endurhönnun nú-
verandi upplifunarsvæðis er mikil-
vægur þáttur uppbyggingarinnar,
en lónið sjálft verður stækkað um
helming. Ný og glæsileg aðstaða
fyrir spa meðferðir sem boðið
er upp á ofaní lóninu er hluti
stækkunarinnar. Verkefnið er í takt
við þróun Bláa Lónsins undanfarin
ár þar sem jafnt og þétt hefur verið
unnið að því að auka úrval og gæði
þjónustu.
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa
Lónsins, sagði við þetta tækifæri
að það væri ánægjulegt að ganga til
samninga við Jáverk. „Fyrirtækið er
þekkt fyrir vönduð og góð vinnu-
brögð. Við hlökkum til samstarfs
við Jáverk við það metnaðarfulla
uppbyggingarverkefni sem við
höfum nú hafið.“
Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri
Jáverk, sagði við undirritunina að
mannvirki og hönnun Bláa Lónsins
væri þekkt fyrir samspil hins mann-
gerða og náttúrulega umhverfis.
„Hinar nýju byggingar verða engin
undantekning. Verkefnið er því í
senn spennandi og mikil áskorun.“
Eitt hundrað ný störf
í ferðaþjónustu
Gert er ráð fyrir 100 nýjum störfum
í tengslum við stækkun upplif-
-fréttir pósturu vf@vf.is
www.sgs.is
SAMEINUÐ
BERJUMST
VIÐ!
KJÓSTU
JÁ
■■ Sex milljarða framkvæmdir við Bláa Lónið:
Lúxushótel opnar 2017
- Mannvirki Bláa Lónsins munu tvöfaldast að stærð. 150 starfsmenn vinna við
hótelbygginguna og 100 ný störf verða til eftir opnun.
www.kia.com7 ára ábyrgð á öllum
nýjum Kia bílum
Fylgdu okkur á Facebook.
facebook.com/kiamotorsisland
Upplifðu nýjan og glæsilegan Kia Sorento
Br
an
de
nb
ur
g
Fullbúinn
Fullorðins
Fullkominn
Nýr Kia Sorento
Kia Sorento bíður þín hjá K. Steinarssyni. Komdu og prófaðu.
Komdu og fagnaðu með okkur um leið og við kynnum glænýjan Kia Sorento hjá K. Steinarssyni í Reykjanesbæ,
laugardaginn 18. apríl frá kl. 12 til 17. Um er að ræða 3. kynslóð Sorento sem státar m.a. af 200 hestafla
sparneytinni dísilvél, íslensku leiðsögukerfi og bakkmyndavél. Kia Sorento fylgir 7 ára ábyrgð.
Frumsýndur laugardaginn 18. apríl
Holtsgötu 52 · Reykjanesbæ
420 5000 · ksteinarsson.is
Fegurð í hrauninu.
Starfsmenn verkfræðistofa, verktaka og
Bláa Lónsins skoðuðu aðstæður á vettvangi.
Umhverfið er ægifagurt. VF-myndir/pket.
Það er ekki einfalt að
byggja hótel inni í hrauni.
Hótelgestir munu upp-
lifa veruna á einstakan
hátt. Neðri mynd: Þriggja
milljarða samningur hand-
salaður hjá Grími og Gylfa.
GERUM TILBOÐ Í ALLA
INNANHÚSSMÍÐI
INNHUS.EHF@GMAIL.COM
GSM 899 3743
Vorhátíð eldri borgara
er í Eldborg í Grindavík 23. apríl kl. 15:00.
Bíósýning: VIÐ ERUM TIL
Sambíóinu í Reykjanesbæ 21. apríl kl. 16:30.
Frítt er fyrir alla eldri borgara sem hafa greitt árgjaldið
fyrir 2014, kr. 500,- fyrir aðra
Allir velkomnir.
SJÓNVARP
VÍKURFRÉTTA
- nýjung í fjölmiðlun VF frá árinu 2013.
Mannlíf, fjör og atvinnulífið á Suðurnesjum.
Vikulegur þáttur sýndur á ÍNN, á vf.is
og hjá Kapalvæðingu í Reykjanesbæ.
VÍKURFRÉTTIR
- vikulegt fréttablað - dreift frítt inn
á hvert heimili og fyrirtæki á Suðurnesjum
Nýtt efni, viðtöl, menning, mannlíf,
íþróttir, greinar og pistlar.
FRÉTTAVEFURINN
VF.IS
- vinsælasti héraðsfréttavefurinn í 20 ár
og einn af 25 vinsælustu vefjum landsins.
GOLFVEFURINN
KYLFINGUR.IS
- vinsælasti golffréttavefur landsins
fagnar 10 ára afmæli á þessu ári.
PRENTÞJÓNUSTAN
OG HÖNNUN
Auglýsingahönnun í blöð, bæklinga,
kynningarefni og hvers kyns prentverk.
Nafnspjöld, logo og myndbandsgerð.
Gerum tilboð.
VÍKURFRÉTTIR
Sími 421 0000
01
02
03
04
05
unarsvæðis Bláa Lónsins og mun
hluti starfsfólks hefja störf á fram-
kvæmdatíma. Störfin verða fjöl-
breytt, en eins og önnur störf hjá
fyrirtækinu munu þau miða að því
að veita gestum Bláa Lónsins góða
og fágaða þjónustu. Hluti starf-
anna sem verða til við stækkunina
munu kalla á háskólamenntað fólk
og starfsmenn með sérþekkingu á
sviði heilsu og vellíðunar. Hjá Bláa
Lóninu starfa um 300 starfsmenn
Orlofshús VSFK
Sumar 2015
Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út í sumar:
2 hús í Svignaskarði
3 hús í Húsafelli
2 hús í Ölfusborgum
2 hús í Hraunborgum
1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri
Útleigutímabilið er frá föstudeginum 29. maí og
fram til föstudagsins 28. ágúst 2015.
Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og einnig
inn á heimasíðu vsfk.is. Umsóknafrestur er til kl. 16:00
mánudaginn 27. apríl 2015.
Úthlutað verður samkvæmt punktaker.
Orlofsnefnd VSFK
á ársgrunni. Að framkvæmdum
loknum er gert ráð fyrir því að
heildarstarfsmannafjöldi verði 400.