Víkurfréttir - 16.04.2015, Blaðsíða 8
8 fimmtudaginn 16. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Laghentir ehf. · Bolafæti 1 · 260 Reykjanesbæ · Sími 456 7600 · Gsm 861 7600 · www.laghentir.is
Opið alla virka daga frá kl. 8.00-17.00
ALHLIÐA
BÍLAÞJÓNUSTA
Sala varahluta og aukahluta frá Stillingu hf.
Bætiefni og olíur Bremsuklossar BremsudiskarÞurrkublöðRafgeymar
í tilefni 5 ára afmælis okkar
50% afsláttur af smurolíum og
smursíum við olíuskipti50% afsláttur
Gildir út apríl
Kristján hættir sem
formaður FFR
„Hef tekið þá ákvörðun í sam-
ráði við fjölskyldu mína, félaga
og vini að bjóða mig ekki fram til
formanns í Félagi flugmálastarfs-
manna ríkisins. Stjórnaskipti fara
því fram á komandi aðalfundi
FFR sem verður í lok aprílmán-
aðar. Einn listi barst kjörstjórn
og því kemur ekki til kosninga í
félaginu,“ segir Kristján Jóhanns-
son í tilkynningu á Facebook síðu
sinni rétt í þessu. Hann hefur
sinnt starfi formanns og fram-
kvæmdastjóra FFR undanfarin
tvö ár.
Gustað hefur um Kristján í for-
mannsembættinu í verkfallsað-
gerðum og viðræðum frá því í
haust og hann m.a. sakaður um
að hafa ofurlaun. Á þriðja tug fé-
lagsmanna gengu af félagsfundi
í byrjun mars, þar sem ræða átti
fjárhagsstöðu félagsins og nýtt
samkomulag á milli FFR og SFR,
stéttarfélags í almannaþjónustu.
Þeir vildu ekki taka þátt í um-
ræðu um launakostnað og rekstur
félagsins. Kristján gekk einnig
sjálfur af þeim
fundi.
Í samtali við
Ví k u r f r é t t i r
vildi Kristján
ekki tjá sig fyrr
en eftir aðal-
fund, annað en
það sem fram
kemur í yfirlýsingunni og það
að hann gefur ekki kost á sér til
endurkjörs. Þegar hefur eitt fram-
boð borist núverandi stjórn FFR
sem tilkynnt verður á aðalfund-
inum í lok apríl. Núverandi stjórn
gefur ekki kost á sér.
Fræða skólabörn í Garði um Unu í Sjólyst
Gengið hefur verið frá samningi milli Hollvina Unu og Gerðaskóla í Garði um samstarf um að fræða nemendur Gerðaskóla um líf og
starf Unu Guðmundsdóttur og framlag hennar til heimabyggðarinnar í
Garði. Frá þessu er greint á vef Sveitarfélagsins Garðs.
Una bjó í Sjólyst í Garði lengst af ævi sinni og í dag er heimili hennar varð-
veitt af Hollvinasamtökum Unu.
Ágúst Ólason skólastjóri Gerðaskóla og Erna Marsibil Sveinbjarnardóttir
formaður Hollvina Unu undirrituðu samninginn. Magnús Stefánsson,
bæjarstjóri í Garði, segir í pistli á vef bæjarains mikilvægt að halda merki-
legri sögu á lofti og uppfræða yngstu kynslóðirnar á hverjum tíma um líf
og störf fyrri kynslóða.
Ágúst skólastjóri og Erna formaður Holl-
vina Unu undirrita samninginn.
Bæjarstjórn Sveitarfélags-ins Garðs lýsir miklum
áhyggjum af slæmu ástandi þjóð-
vega í sveitarfélaginu. Af því stafar
slysahætta og við það verður ekki
unað“. Þetta kemur fram í bókun
bæjarstjórnar Sveitarfélagsins
Garðs sem samþykkt var ný
Bæjarstjórn bendir á að slitlag á
Garðvegi, milli Reykjanesbæjar
og Garðs, er mjög illa farið, það
er mishæðótt, holótt, sprungið
og farið að brotna með köntum.
Það sama á við um Sandgerðisveg,
milli Garðs og Sandgerðis. Bæjar-
stjórn ítrekar fyrri ábendingar um
að nauðsynlega þurfi að breikka
Sandgerðisveg, en um hann fer
mikil umferð þungaflutninga og
að vegurinn uppfylli ekki kröfur
vegna þess.
„Bæjarstjórn Garðs skorar á Vega-
gerðina að nú þegar verði ráðist í
nauðsynlegar endurbætur og lag-
færingar á þjóðvegum í sveitar-
félaginu. Við núverandi ástand
og með stöðugt versnandi ástandi
veganna er umferðaröryggi stefnt í
óefni, með tilheyrandi slysahættu,“
segir einnig í bókun bæjarstjórnar.
Slysahætta af slæmum þjóðvegum í Garði
– nauðsynlega þarf að breikka Sandgerðisveg
Taka undir ályktun um bráðavanda og Garðvang
Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs tekur undir ályktun aðalfundar Félags
eldri borgara á Suðurnesjum þar sem fram kemur að skorað er á sveitar-
félögin á Suðurnesjum að sameinast um að mesti bráðavandinn er varðar
hjúkrunarrými verði leystur með nauðsynlegum breytingum á húsnæði
Garðvangs, þannig að þar verði hægt að útbúa heimili fyrir 15-20 ein-
staklinga. Ályktunin FEBS er í samræmi við bókun bæjarstjórnar á 134.
fundar bæjarstjórnar Garðs þann 4. febrúar 2015 um sama málefni.
Innri-Njarðvíkurkirkja
Aðalsafnaðarfundur haldinn í kirkjunnar 19. apríl kl.13:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd
Fimleikadeild Keflavíkur leitar að þjálfara til þess að sjá um
leikjanámskeið fimleikadeildarinnar í júní og ágúst. Boðið er upp á
fjölbreytta hreyfidagskrá með fimleikaívafi. Síðastliðið sumar sóttu yfir
100 krakkar námskeiðið. Unglingar úr vinnuskólanum munu
einnig aðstoða á námskeiðinu.
Í boði eru góð laun og ákveðið frjálsræði í að búa til dagskrá og skipulag.
Ef þú hefur áhuga á þessu starfi ,endilega sendu póst
á fimleikar@keflavik.is fyrir 26. apríl 2015.
FIMLEIKADEILD KEFLAVÍKUR
ATVINNA
-Gefur ekki kost á
sér til endurkjörs.