Víkurfréttir - 16.04.2015, Blaðsíða 13
13VÍKURFRÉTTIR • fimmtudaginn 16. apríl 2015
Auglýsing
um prestskosningu í Keflavíkurprestakalli,
Kjalarnessprófastsdæmi, framlagningu
kjörskrár og utankjörstaðaatkvæðagreiðslu.
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur samkvæmt lögum um stöðu, stjórn og starfshætti
þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997, með síðari breytingum og starfsreglum um val og veitingu
prestsembætta nr. 1109/2011, með síðari breytingum, ákveðið að kosning sóknarprests í
Keflavíkurprestakalli, Kjalarnessprófastsdæmi fari fram frá kl. 13:00 til kl. 20:00,
föstudaginn 8. maí 2015 í Oddfellowhúsinu, Grófinni 6 í Reykjanesbæ.
Einn er í kjöri, séra Erla Guðmundsdóttir.
Kjörskrá verður lögð fram á aðgangsstýrðum vef þann 15. apríl 2015. Slóð á vefinn er hægt
að nálgast á vefsíðunni kirkjan.is. Þar getur kjósandi flett upp hvort hann sé á kjörskrá. Við
aðgangsstýringuna er notuð almenn innskráningarþjónusta s.s. Íslykill Þjóðskrár Íslands,
sbr. 18. gr. fyrrgreindra starfsreglna. Kjörskrá verður aðgengileg til og með 7. maí 2015.
Á kjörskrá skal taka:
Þá sem eru í íslensku þjóðkirkjunni og eiga lögheimili í prestakallinu þegar kjörskrá er lögð
fram (þ.e. 15. apríl 2015) og hafa náð 18 ára aldri þegar kosning fer fram (þ.e. 8. maí 2015).
Kærur til breytinga á kjörskrá þurfa að hafa borist kjörstjórn að biskupsstofu, Laugavegi 31,
101 Reykjavík, fyrir miðnætti fimmtudaginn 23. apríl 2015.
Kærur má senda á netfangið hanna.sampsted@kirkjan.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram frá 27. apríl til og með 7. maí 2015 á biskupsstofu,
Laugavegi 31 í Reykjavík, frá kl. 09:00 til 16:00 alla virka daga og í Oddfellowhúsinu,
Grófinni 6 í Reykjanesbæ sem hér segir:
Mánudaginn 27. apríl frá kl. 15:00 til kl. 18:00.
Miðvikudaginn 29. apríl frá kl. 15:00 til kl. 18:00.
Laugardaginn 2. maí frá kl. 13:00 til kl. 16:00.
Þriðjudaginn 5. maí frá kl. 15:00 til kl. 18:00.
Vistmenn í hjúkrunarheimilinu Hlévangi
geta kosið mánudaginn 27. apríl frá kl. 13:00 til kl. 15:00 á Hlévangi.
Reykjavík, 13. apríl 2015
f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar
Hjördís Stefánsdóttir, formaður.
Samkaup leitar að
öFlugum starFskraFti
samkaup leitar að áhugsömum, jákvæðum og skipulögðum aðila í starf
við móttöku- og almenn skrifstofustörf á aðalskrifstofu félagsins í reykjanesbæ.
umsækjandi þarf að hafa stúdentspróf, góða tölvukunnáttu
og gott vald á íslensku og ensku.
Um fullt starf er að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
samkaup á og rekur 47 verslanir um allt land en hjá fyrirtækinu
starfa um 900 manns og þar af 30 á aðalskrifstofu.
Nánari upplýsingar um starfið
veitir Falur J. Harðarson starfsmanna-
stjóri. umsóknir berist fyrir 25. apríl
á netfangið umsokn@samkaup.is
& nettó atvinna
Kvöldstund með Kór Keflavíkurkirkju
Kvöldstund með Kór Keflavíkurkirkju hefur fengið góðar viðtökur bæjar-
búa í vetur en hún er haldin þriðja þriðjudag í hverjum mánuði þar sem
kórfélagar koma fram og skemmta sér og öðrum.
Næsta kvöldstund verður haldin í Kirkjulundi þriðju-
daginn 21. apríl kl. 20:00.
Að þessu sinni mun tenórinn Elmar Þór Hauksson
stíga á stokk ásamt Arnóri B. Vilbergssyni organista og
öðrum góðum gestum.
Að venju verður kaffihúsastemmning í Kirkjulundi,
heitt á könnunni og með því. Allir velkomnir en kórinn
safnar frjálsum framlögum í ferðasjóð.
Styrktaraðili tónleikanna er Íslandsbanki.
Fagna frekari uppbyggingu í Grindavík
Fjárfestingasamningur íslenska ríkisins við Matorku ehf. var til umfjöll-
unar á síðasta fundi bæjarstjórnar Grindavíkur en samningurinn var
lagður fyrir bæjarstjórn til upplýsingar.
Fulltrúar D-lista í bæjarstjórn Grindavíkur bókuðu um samninginn og
fagna frekari atvinnuuppbyggingu í Grindavík. Þeir lýsa jafnframt yfir
ánægju með að aðilar velji Grindavík sem heppilegan kost fyrir fyrirtæki sín.
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Aðalsafnaðarfundur haldinn í safnaðarsal
kirkjunnar 19. apríl kl.12:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd
Frá og með næsta hausti munu nemendur sem lokið hafa 7.
bekk og búa á Ásbrú stunda nám í
Heiðarskóla, en ekki Njarðvíkur-
skóla líkt og verið hefur undan-
farin ár. Ástæða þessarar breyt-
ingar er að Njarðvíkurskóli er
nú þéttsetinn á unglingastigi en
rýmra er um nemendur í Heiðar-
skóla. Með breytingunni verða
bekkjardeildir jafnari að stærð
í báðum skólum, nemendum til
hagsbóta. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Gylfa Jóni Gylfa-
syni, fræðslustjóra Reykjanes-
bæjar, í bréfi til foreldra barna í
8. - 10. bekk í Háaleitisskóla.
Í tilkynningunni kemur jafnframt
fram að nægur tími verði gefinn til
aðlögunar. Þannig geti nemendur á
unglingastigi sem þegar hafa hafið
nám í Njarðvíkurskóla lokið námi
þar óski foreldrar þess. Enn fremur
geti nemendur á unglingastigi
sem búa á Ásbrú og eiga systkini í
Njarðvíkurskóla stundað nám sitt
þar óski foreldrar þess. Því megi
vera ljóst að breytingin verði hæg
og gangi yfir á nokkrum árum að
fullu.
Unglingastig Háaleitisskóla flyst
úr Njarðvíkurskóla í Heiðarskóla
■■ Góð viðbrögð við aðsendu greininni
„Klukk, þú ert’ann!“:
Ég hef aðallega verið að fá við-brögð í formi samskipta á Fa-
cebook. Hugmyndir hafa kviknað
víða um virkja íbúa hverfa til sam-
veru og útiveru. Fólk hefur spurt
okkur hjónin hvernig hægt sé að
koma hugmyndum í framkvæmd.
Fólk þurfti bara smá spark í rass-
inn,“ segir Guðmundur Stefán
Gunnarsson, íbúi í Reykjanesbæ.
Víkurfréttir birtu í síðustu viku
grein eftir hann, „Klukk, þú
ert’ann!“ sem vakið hefur mikla
athygli. Greininni hefur m.a. verið
deilt á hverfissíðum á Facebook og
umræða hefur orðið um að sniðugt
væri að sameinast um að skipu-
leggja útiveru foreldra og barna. „Í
mínu hverfi ætlum við t.d. að hitt-
ast við Akurskóla í næstu viku og
fara í leiki með börnunum okkar og
grilla saman og fara í leiki á Jóns-
messunni. Þetta er sjálfbært verk-
efni og það er sjálfsagt að hjálpa
fólki að finna réttu leiðirnar til að
koma hugmyndum sínum í fram-
kvæmd. Hættum að röfla um hvað
allt er dýrt og gerum það sem við
getum gert til að búa til betra sam-
félag fyrir krakkana okkar,“ segir
Guðmundur.
Margir vilja fara út að leika