Víkurfréttir - 16.04.2015, Blaðsíða 15
15VÍKURFRÉTTIR • fimmtudaginn 16. apríl 2015
Hátíðartónleikar til heiðurs Rúnari heitnum Júlíussyni sem hefði orðið 70 ára 13. apríl sl. voru haldnir í Stapa sl. laug-
arag. Á tónleikunum var ferill Rúnars Hr. Rokks í rakinn í máli, myndum og músik undir léttri leiðsögn fjölskyldu Rúnars
ásamt einvala liði söngvara og hljóðfæraleikara. Baldur annar tveggja sona Rúnars var sögumaður og fórst það afar vel
ú hendi þegar hann lýsti föður sínum í gegnum ferilinn. Valdimar Guðmundsson, Stefán Jakobsson, Magni Ásgeirsson
og Salka Sól sungu bestu lög Rúnars ásamt sérvalinni rokksveit undir styrkri stjórn Jóns Ólafssonar. Húsfyllir var í Stapa
þar sem Rúnar heitinn átti margar af sínum bestu tónlistarstundum. Tónleikagestir voru í skýjunum með tónleikana
og stemmningin í Stapa mögnuð og einstök. Páll Ketilsson var á meðal tónleikagesta og smellti af þessum myndum.
Einnig verður sýnd syrpa frá tónleikunum í Sjónvarpi Víkurfrétta á næstunni.
AFMÆLISTÓNLEIKAR TIL
HEIÐURS HERRA ROKK!
Það voru mörg þekkt Keflavíkurandlit
sem sáust í Stapa. Þorsteinn Eggerts,
Eiríkur Hermanns, Friðrik Ragnars-
son, Kjartan Már Kjartansson og
Helgi Jóhannsson sjást á þessum
myndum.
Salka Sól „tengda-
dóttir“ Keflavíkur
heillaði marga.
Barnabörn Rúnars, skvís-
urnar María Rún, Kristín
Rán og Brynja Ýr.
Baldur var sögumaður en bróðir hans
Júlíus var á á trommunum.
Ólafur Júlíusson einn af gullknatt-
spyrnumönnum Keflavík og bróðir
Rúnars á spjalli við tónleikagest.
Keflvíkingurinn Valdimar fór á
kostum í Stapanum.
Guðlaugur H. Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Halldór Magnússon
Löggiltur fasteignasali
Haraldur Freyr Guðmundsson
Sölumaður
Óðinsvellir 3 – 230 Reykjanesbær
Mikið endurnýjað 208m2 einbýli. Endurinnréttað og hannað
af Berglindi Berndsen arkitekt. Lýsing er hönnuð af Lumex.
Innréttingar eru sérsmíðaðar. Þrjú herb. eru í húsi, bílskúrinn
er 57m2 og er innréttaður sem íbúð.
49.900.000,-
Brekkustígur 29 – 260 Reykjanesbær
3ja herbergja íbúð á annari hæð í rólegu fjölbýlishúsi.
Íbúðin er samtals 78.7m2 og er geymsla í sameign allra.
Stutt er í skóla, leikskóla, verslunarkjarna, banka og Nesvelli.
14.500.000,-
Aðalgata 1 – 230 Reykjanesbær
Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í nýlegu fjölbýli.
Íbúðin er samtals 94.2m2 og hefur sólarsvalir.
Útsýni er yfir keflavík í suður, sameiginleg geymsla er í kjallara
21.500.000,-
Njarðarbraut 3 – 260 Reykjanesbær
181m2 atvinnuhúsnæði við enda í botnlanga á Njarðarbraut.
Stór innkeyrsluhurð og stórt malbikað plan fyrir framan og hlið.
Hentar vel fyrir bílaleigu, verkstæði,
bónstóð eða sambærilega starfsemi
19.700.000,-
Víkurbraut 15 – 230 Reykjanesbær
Vönduð 3ja herbergja enda íbúð á 3.hæð.
Íbúðin er samtals 115m2 þar af 7,5m2 geymsla í kjallara.
Sér stæði er í bílageymslu, mikið lagt í íbúðina (sjá á heimasíðu).
34.000.000,-
Greniteigur 24 – 230 Reykjanesbær
Skemmtilegt 4ja herbergja steinsteypt raðhús/tengihús.
Eigning er samtals 170.3 fm þar af 35.7 fm bílskúr.
Sólpallur með heitumpotti og innkeyrslan hellulögð.
26.900.000,-
Stuðlaberg - Hafnargata 20 - 230 Reykjanesbæ - Sími 420 4000 - www.studlaberg.is
420 4000
s t u d l a b e r g . i s
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 19. APRÍL KL. 14:00-15:00.