Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.06.2015, Side 2

Víkurfréttir - 11.06.2015, Side 2
2 fimmtudagur 11. júní 2015 • VÍKURFRÉTTIR GARÐASEL AÐSTOÐAR- LEIKSKÓLASTJÓRI OG -MATRÁÐUR Heilsuleikskólinn Garðasel auglýsir stöðu aðstoðar- leikskólastjóra lausa frá 11. ágúst 2015. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileik- um, jákvæðni, samskiptahæfni, þjónustulund og áhuga á þróun nýjunga í leikskólastarfi. Einnig óskar skólinn eftir að ráða aðstoðarmatráð frá 20. júlí, eða eftir samkomulagi, í 100% stöðu. Aðstoðarmatráður annast öll almenn störf í eldhúsi og þvottahúsi í samvinnu við matráð og leikskólastjóra leikskólans. Umsóknarfrestur fyrir bæði störfin er til og með 16. júní nk. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Guðjónsdóttir leikskólastjóri í síma 420-3160 eða 896-5058 eða með tölvupósti á ingibjorg.gudjonsdottir@leikskolinngardasel.is Sækja skal um störfin á vef Reykjanesbæjar: www. reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig er að finna upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur. STRÆTÓ REYKJANESBÆ SUMARÁÆTLUN TEKUR GILDI Frá 15. júní til 15. ágúst breytist tímaáætlun strætó í Reykjanesbæ. Þetta gildi um allar 4 leiðir stætó innan Reykjanesbæjar. Sjá tímatöflur á www.reykjanesbaer.is og www.sbk.is. Upplýsingar í síma 420-6000. SÁLFRÆÐINGUR ÓSKAST Reykjanesbær óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa á fræðslusvið bæjarins. Í starfinu felst sálfræðilegar athuganir á börnum á leik- og grunnskólum, fræðsla til barna og fjölskyldna þeirra og ráðgjöf við starfsfólk í leik- og grunnskólum bæjarins. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.   Umsóknarfrestur er til og með 16. júní nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Einar Trausti Einarsson, yfirsálfræðingur, einar.trausti.einarsson@reykjanes- baer.is. Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar: www. reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig er að finna upplýs- ingar um menntunar- og hæfniskröfur. AKURSKÓLI KENNARAR ÓSKAST Akurskóli óskar eftir kennurum til starfa næsta skólaár. Um fer að ræða umsjónarkennslu á yngsta- og miðstigi. Umsóknarfrestur er til 25. júní en ráðið er í stöðunarnar frá 1. ágúst. Hluti af stöðunum eru afleysingarstöður vegna barneignaleyfa. Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri í síma 420-4550 eða 849-3822. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið sigurbjorg. robertsdottir@akurskoli.is. Sjá nánar um Akurskóla á www.akurskoli.is Sækja skal um störfin á vef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig er að finna upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur. -fréttir pósturu vf@vf.is Reykjanesbær úthlutaði nýlega fimm milljónunum króna í menn-ingarstyrki í ár. Ráðið auglýsti eftir menningarhópum sem áhuga hefðu á þjónustusamningi við Reykjanesbæ og eftir að hafa hitt forsvarsmenn allra umsækjenda leggur ráðið til að gerður verði þjón- ustusamningar við eftirfarandi félög og þau fái þessa upphæð greidda: Eldey = 150.000 kr. Norðuróp = 500.000 kr. Félag myndlistarmanna = 500.000 kr. Danskompaní = 350.000 kr. Félag harmonikkuunnenda = 150.000 kr. Karlakór Keflavíkur = 500.000 kr. Kvennakór Suðurnesja = 500.000 kr. Leikfélag Keflavíkur = 600.000 kr. Ljósop =150.000 kr. Norræna félagið 100.000 kr. Tónlistarfélag Reykjanesbæjar = 500.000 kr. Faxi = 150.000 kr. Sönghópur Suðurnesja = 150.000 kr. Kór Keflavíkurkirkju = 300.000 kr. Brynballett = 350.000 kr. Fárveiktist eftir landadrykkju u Unglingsstúlka fárveikt- ist um helgina eftir að hafa drukkið heimabruggað áfengi. Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um atvikið seint á laugardagskvöld. Stúlkan og piltur sem með henni var höfðu keypt landann fyrir utan skemmtistað í umdæminu. Skömmu eftir að stúlkan hafði innbyrt eitthvað af brugginu varð hún fárveik, kastaði upp og meðvitund hennar skertist. Henni hrakaði svo og var hún flutt með sjúkrabifreið í lög- reglufylgd á Landspítalann í Reykjavík. Ástand hennar var orðið stöðugt eftir skamma dvöl á spítalanum. Lögregla hafði samband við forráðamenn stúlkunnar og piltsins og einnig var málið til- kynnt til barnaverndarnefndar. Málið er í rannsókn. Lögregla varar sem fyrr við kaupum á heimabrugguðu áfengi. Neysla þess getur haft alvarlegar afleiðingar eins og dæmi hafa sannað. Bjó í flugstöð- inni í viku u Lögreglan á Suðurnesjum hafði aðfararnótt sunnudags- ins sl. afskipti af erlendri konu sem hafði dvalið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í sjö daga. Grunur vaknaði um að kon- an byggi í flugstöðinni þar sem hún kom daglega í verslun í henni og keypti sér kók og ban- ana. Í viðtali við lögreglumenn viðurkenndi hún að hafa dvalið í flugstöðinni í ofangreindan tíma. Henni var tjáð að flug- stöðin væri ekki ætluð til bú- setu og að hún hefði dvalið of lengi á Schengen-svæðinu. Hún framvísaði bandarísku vega- bréfi, en þvertók fyrir að halda aftur til síns heima. Niðurstað- an varð sú að hún bókaði miða til Edinborgar og hélt þangað á sunnudagskvöld. Kannabisræktun stöðvuð u Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði kannabisræktun í húsnæði í umdæminu á sjó- mannadaginn. Upphaf málsins var að rúmlega tvítugur karl- maður var stöðvaðir í akstri við hefðbundið eftirlit. Hann framvísaði fjórum grömmum af kannabisefni, en var flótta- legur og svör hans ótrúverðug þegar spurt var nánar út í ferðir hans og uppruna efnanna. Að fenginni heimild var leit- að í húsnæði því sem maður- inn leigir og fundust þar nær fjörutíu kannabisplöntur. Hann játaði ræktunina og haldlagði lögregla bæði plönturnar og munina sem notaðir voru við ræktunina. Annar karlmaður á svipuðum aldri var svo handtekinn í öðru máli, þar sem hann var að sjúga hvítt efni upp í nefið þar sem hann sat undir stýri. Um var að ræða amfetamín og var hann handtekinn. Við öryggisleit fannst svo amfetamín í fórum hans. Fimm milljónir í menningar- styrki hjá Reykjanesbæ Víkurfréttir og Samtök at-vinnurekenda á Reykjanesi ( S A R ) h a f a g e r t m e ð s é r samkomulag um að standa að fundarherferð á Reykjanesi frá og með haustinu 2015. Markmiðið er að vekja athygli á jákvæðum vexti í atvinnulífinu og þannig styrkja ímynd svæðisins sem laskaðist verulega eftir bankahrun. Verulegur vöxtur hefur verið á ýmsum sviðum í atvinnulífinu sem hefur einnig skilað sér út í mannlíf- ið almennt. Frá þessu vilja Víkur- fréttir og SAR greina og verður það gert skipulega í miðlum VF, blaði, vef og sjónvarpi. Stefnt er að því til að byrja með að halda mánaðarlega fundi í öllum sveitarfélögunum á Reykjanesi og mun herferðin hefjast næsta haust. Á fundunum sem verða í hádeg- inu munu aðilar úr atvinnulífinu verða með stuttar kynningar auk þess sem almennt verður farið yfir stöðu mála. „Við viljum snerpa á þeirri stað- reynd að Suðurnesjamenn eru á uppleið í atvinnulífinu og öðr- um greinum. Formlegt samstarf við Víkurfréttir er hugsað til að snerpa á umræðunni sem hefur oft verið neikvæð í garð Suðurnesja. Á fundunum ætlum við að upp- lýsa um stöðu mála og vonast til að fá sem flesta úr atvinnulífinu til að mæta og þannig taka þátt í því að styrkja umræðuna,“ segir Guðmundur Pétursson, fram- kvæmdastjóri Samstaka atvinnu- rekenda á Suðurnesjum. VÍKURFRÉTTIR OG SAMTÖK ATVINNU- REKENDA EFNA TIL FUNDAHERFERÐAR: Vekja athygli á jákvæðri sókn á Reykjanesi Guðmundur Pétursson, formaður SAR og Páll Ketilsson, ritstjóri VF, handsala samkomulag SAR og VF. Fulltrúar margra stærstu fyrirtækja á Suðurnesjum, samtökum atvinnurek- enda og Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra á fundi SAR í vikunni.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.