Víkurfréttir - 11.06.2015, Side 8
8 fimmtudagur 11. júní 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-sjóarinn síkáti pósturu vf@vf.is
Það fór sennilega ekki framhjá neinum Íslendingi að Sjóarinn
síkáti fór fram í Grindavík um helgina.
Á bilinu 25-30 þúsund gestir lögðu
leið sína til Grindavíkur um helgina
og skartaði bærinn sínu fegursta í sól-
inni, vandlega skreyttur í hverfalitun-
um. Á föstudeginum fór litaskrúð-
gangan fram þar sem leiðin lá niður á
bryggju þar sem Ingó og veðurguðirn-
ir héldu uppi rífandi stemmingu með
brekkusöng og bryggjuballi fram eft-
ir nóttu. Bekkirnir voru þétt setnir
og mikil og góð stemming myndað-
ist, bæði hjá þeim sem vögguðu sér
á bekkjunum og hjá þeim sem tóku
sporið við sviðið.
Sjóarinn síkáti hefur nú fest sig rækilega
í sessi sem bæjarhátíð okkar Grindvík-
inga og koma gestir til okkar hvaðan æfa
af landinu til að taka þátt í gleðinni sem
er nánast orðin stanslaus í fjóra daga.
Tjaldstæðið var þétt setið og einnig var
tjaldað á gamla rollutúninu. Fullt var
útúr dyrum á veitingastöðum og hjá
öðrum þjónustuaðilum en Grindvík-
ingar kippa sér nú lítið upp við smá ver-
tíðarstemmingu í verslun og þjónustu
og stóðu vaktina með bros á vör.
Á laugardeginum var mikið um að vera.
Glæsileg dagskrá á hátíðarsviðinu við
Kvikuna fyrir unga sem aldna, krafta-
keppnin "Sterkasti víkingur í heimi" fór
fram á bryggjunni og leiktæki frá Sprell
vöktu mikla lukku. Um kvöldið voru
svo glæsilegir tónleikar frá Skonrokk
í íþróttahúsinu og böll og skemmtan-
ir útum allan bæ. Sunnudagurinn er
svo auðvitað stóri dagurinn, Sjómanna-
dagurinn sjálfur, og var áfram nóg um
að vera á bryggjunni. Hátíðardagskrá
Sjómanna- og vélstjórafélagsins, kodda-
slagur, sædýrasýning, barnaskemmtun
og margt fleira.
„Skipuleggjendur hátíðarinnar vilja
koma á framfæri þökkum til allra þeirra
sem að henni komu og tóku þátt. Við
þökkum gestum kærlega fyrir komuna
og hlökkum til að sjá ykkur að ári,“ segir
í tilkynningu frá Grindavíkurbæ.
Sturla Atlas
á sumarsmellinn í ár
Berta Svansdóttir er 17 ára Keflavíkurmær.
Hún er að vinna í fiski í sumar og æfir fót-
bolta. Útilegur og hátíðir með skemmti-
legu fólki kemur henni svo í sumarfíling.
Aldur og búseta?
17 ára Keflvíkingur.
Starf eða nemi?
Vinn í fiski og er líka nemi í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Hvernig hefur sumarið verið hja þér?
Nokkuð fínt, úlnliðsbrotnaði sem kom í
veg fyrir margt en tók þátt í The Color Run
um daginn sem var mjög skemmtilegt.
Hvar verður þú að vinna í sumar?
Í fiski.
Hvernig á að verja sumarfríinu?
Vinna, slaka á og ferðast.
Ætlar þú að ferðast í sumar, og hvert þá?
Já, ætla fara út á land með bæði fjöl-
skyldunni og vinum.
Eftirlætis staður á Íslandi?
Verð að velja tvo, Akur-
eyri og Árskógssandur.
Hvað einkennir íslenskt sumar?
Útilegur, grillmatur og fótbolti.
Áhugamál þín?
Fótbolti.
Eitthvað sem þú stundar aðeins á sumrin?
Já, ég æfi fótbolta með Mfl. kvk í Keflavík.
Hvað ætlar þú að gera um versl-
unarmannahelgina?
Það er ekki ákveðið, fer annaðhvort til Akureyrar
á unglingalandsmótið eða til Eyja á Þjóðhátíð.
Hvað fær þig til þess komast
í sumarfíling?
Fara í útilegur eða á hátíð-
ir með skemmtilegu fólki.
Hvað er sumarsmellurin
í ár að þínu mati?
Sturla Atlas - San Francisco
Hvað er það besta við
íslenskt sumar?
Miðnætursólin er alltaf falleg.
En versta?
Rigning og rok.
Uppáhalds grillmatur?
Lambalæri með bökuðum kart-
öflum og góðri sósu. Klikkar ekki!
Sumardrykkurinn?
Skógarberja Berg Toppur.
B
er
ta
Sv
an
sd
ót
ti
r
SJÓARINN SÍKÁTI FÓR FRAM UM HELGINA Í BLÍÐSKAPARVEÐRI
25-30 þúsund gestir
Auglýsingasími
Víkurfrétta er 421 0001
Póstur:
fusi@vf.is
UMSJÓN:
PÁLL ORRI PÁLSSON
POP@VF.IS