Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.06.2015, Page 19

Víkurfréttir - 11.06.2015, Page 19
19VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 11. júní 2015 -fræðslumál pósturu vf@vf.is HELGA KARLSDÓTTIR HÆTTIR KENNSLU EFTIR 45 ÁRA STARF: ERT ÞÚ SÁ ÖFLUGI LEIÐTOGI SEM VIÐ LEITUM AÐ TIL AÐ STÝRA HJARTANU Í STARFSEMI BLÁA LÓNSINS? Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af stjórnunarstörfum nauðsynleg, alþjóðleg reynsla æskileg • Fáguð framkoma og framúrskarandi samskiptafærni • Góð tungumála- og tölvukunnátta • Svigrúm og vilji til að vinna óreglulegan vinnutíma Starfið heyrir beint undir framkvæmdarstjóra félagsins. Viðkomandi verður einn af lykilstjórnendum Bláa Lónsins og stýrir um 100 manna teymi. Umsóknarfrestur er til 23. júní n.k. Nánari upplýsingar á www.bluelagoon.is/leidtogi Við leitum að framúrskarandi stjórnanda og góðri fyrirmynd sem hugsar í lausnum. Viðkomandi þarf að eiga það sameiginlegt með okkur hinum að hafa óbilandi þörf og metnað til að gleðja gesti okkar og skapa ævilangar minningar. Bláa Lónið hefur um árabil verið í hópi bestu heilsulinda heims og hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir framúrskarandi aðstöðu og einstaka upplifun. Bláa Lónið er eitt af 25 undrum veraldar að mati National Geographic. Helga Karlsdóttir heimilis-fræðikennari lét formlega af störfum við skólaslit í Grunnskól- anum í Sandgerði á dögunum. Helga hefur starfað sem kennari allt frá árinu 1971 og í Sandgerði frá 1986. Hún hefur látið mikið að sér kveða, gengt trúnaðarstörfum og unnið ötullega að bættu skólasamfélagi en fyrst og fremst hefur Helga kennt heimilisfræði og sýnt fram á mikilvægi heilbrigðra lífshátta. Heilsuefling og lýðheilsa í viðum skilningi hafa verið henni hugleik- in. Hún nefndi í ræðu sinni, í tilefni dagsins, að hún vonaðist til þess að hún hefði sáð einhverjum fræjum sem síðan ættu eftir að fá að dafna og blómstra enn frekar. Það hefur hún sannarlega gert. Samkoman öll stóð upp og heiðraði Helgu, Fann- ey D. Halldórsdóttir skólastjóri og Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæj- arstjórnar, fóru hlýjum orðum um störf hennar og voru henni færð- ar gjafir frá Sandgerðisbæ, sam- starfsfólki og skólanum og þar með nemendum fyrr og nú. Helga mun áfram vera viðloðandi skólastarf en hún hefur boðið fram krafta sína sem svokölluð lestraramma við Grunnskólann í Sandgerði. VERÐUR LESTRARAMMA VIÐ GRUNNSKÓLANN Í SANDGERÐI Ungmennin vilja meiri fræðslu um kynfræðslu og samkynhneigð Ungmennaráð Reykjanes-bæjar óskaði á fundi sínum 29. maí eftir meiri forvarnarfræðslu og að hún verði samræmd milli skóla. Ráðið óskar sérstaklega eft- ir kynfræðslu og fræðslu um samkynhneigð. Formaður fræðsluráðs gerði grein fyrir málinu. Nauðsynlegt að hlusta á ungmennin, tryggja kennslu í grunnskólum og taka málefnið til umræðu í skólun- um. Kallað verði eftir upplýsingum um hvernig staðið er að kyn- fræðslu í grunnskólum og í framhaldi af því lögð fram til- laga að samræmingu kennslu í kynfræðslu í grunnskólum. Gert verði ráð fyrir námskeiði fyrir kennara á endurmenntun- ardögum í ágúst. Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.