Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.06.2015, Side 21

Víkurfréttir - 11.06.2015, Side 21
21VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 11. júní 2015 SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA - nýjung í fjölmiðlun VF frá árinu 2013. Mannlíf, fjör og atvinnulífið á Suðurnesjum. Vikulegur þáttur sýndur á ÍNN, á vf.is og hjá Kapalvæðingu í Reykjanesbæ. VÍKURFRÉTTIR - vikulegt fréttablað - dreift frítt inn á hvert heimili og fyrirtæki á Suðurnesjum Nýtt efni, viðtöl, menning, mannlíf, íþróttir, greinar og pistlar. FRÉTTAVEFURINN VF.IS - vinsælasti héraðsfréttavefurinn í 20 ár og einn af 25 vinsælustu vefjum landsins. GOLFVEFURINN KYLFINGUR.IS - vinsælasti golffréttavefur landsins fagnar 10 ára afmæli á þessu ári. PRENTÞJÓNUSTAN OG HÖNNUN Auglýsingahönnun í blöð, bæklinga, kynningarefni og hvers kyns prentverk. Nafnspjöld, logo og myndbandsgerð. Gerum tilboð. VÍKURFRÉTTIR Sími 421 0000 01 02 03 04 05 Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar undirritaði á dögunum árs- reikning bæjarins eftir aðra um- ræðu. Helstu niðurstöður eru þær að 195 milljón króna rekstraraf- gangur varð á árinu 2014. Er þetta sérstaklega jákvæður árangur í ljósi þess hve lág útsvarsprósenta Grindavíkur er sem og fasteigna- gjöld, en útsvar í Grindavík er 13,99% meðan landsmeðaltal er 14,52%. Fasteignagjöld á íbúðar- húsnæði er þar að auki með þeim lægstu á landinu. Rekstur í samanteknum reikn- ingsskilum A og B hluta skilaði 400,7 milljónum króna í veltufé frá rekstri sem er 16,5% af heildartekj- um. Fjárfestingar voru miklar á árinu 2014, eða 806,3 milljónir kr. Helstu liðir eru framkvæmdir við nýtt bókasafn og tónlistarskóla og við- byggingu við íþróttamiðstöð. Á árinu voru engin ný lán tekin og voru framkvæmdirnar fjármagn- aðar með veltufé og um 289,6 millj- ónum af handbæru fé. Þrátt fyrir þessar fjárfestingar er eignastaða Grindavíkurbæjar mjög sterk, en handbært fé í árslok 2014 var 1.297,4 milljónir króna. Heildareignir eru 8.174,9 millj- ónir króna. Heildarskuldir og skuldbindingar eru 1.517,6 millj- ón króna. Lífeyrisskuldbinding er um 483,6 milljón króna og þar af er áætluð næsta árs greiðsla 19,7 milljónir króna. Langtímaskuldir eru 743,1 milljón króna og þar af eru næsta árs afborganir 26,9 millj- ónir króna. Eigið fé í samanteknum reiknings- skilum er 6.657,3 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall 81,4%, sem er með því hæsta á landinu. Skuldahlutfall A- og B-hluta skv. 2. tl. 64. gr. sveitarstjórnarlaga nemur 62% af reglulegum tekjum. Þar af eru 20% vegna skuldar sem til er komin vegna kaupa á Orkubraut 3 af HS Orku hf. en sú skuld er 492,9 milljónir króna og er greidd með auðlindagjaldi og lóðarleigu frá HS Orku hf. Skuldaviðmið er negatíft í A-hluta þar sem hreint veltufé er hærra en heildarskuldir að teknu tilliti til frádráttar vegna lífeyrisskuld- bindingar. Í A- og B-hluta er skuldaviðmiðið 6,6%. Isavia hefur hlotið gullmerki jafnlaunaúttektar PwC. Vottunin staðfestir að launajafnrétti er hjá Isavia og munur innan við 3,5% á milli kynja. Niðurstaðan er í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað. Isavia hefur lagt mikla áherslu á jöfn laun kvenna og karla og það að fá gullvottun í fyrstu tilraun sýnir að sú áhersla hefur skilað árangri. Jafnlaunaúttekt PwC greinir kynbundinn launa- mun innan fyrirtækja þegar tekið hefur verið tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á laun, s.s. menntunar, starfsaldurs, starfaflokks og vinnustunda. Þannig veitir hún upplýsingar um raunverulegan launamun kynj- anna hjá fyrirtækinu. „Við erum mjög stolt af því að hafa fengið gullmerki PwC og það sýnir að áherslur okkar hvað varðar launa- jafnrétti hafa skilað sér. Við vonum að þessi vottun okkar verði hvatning til annarra fyrirtækja um að fylgja á eftir. Við vitum það að það getur tekið tíma að jafna launamun sé hann til staðar, en við vitum líka að vilji er það eina sem þarf,“ segir Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia. Sýning áhugaljósmyndarafé-lagsins Ljósops í Reykjanes- bæ „Andlit bæjarins“ verður aðal sýningin á Ljósanótt og verður í sal Listasafns Reykjanesbæjar. Til stóð að Ellert Grétarsson yrði með sýningu þar en hann hætti við hana í mótmælaskyni við yfir- völd vegna ákvarðana þeirra um stóriðju í Helguvík. Björgvin Guðmundsson í Ljósopi hefur mundað vélina í þessu magn- aða verkefni „Andlit bæjarins“ og í fyrrakvöld var síðasta myndatöku- kvöldið. Nærri 90 manns mættu fyrir framan linsuna hjá kappan- um og samtals tók hann myndir af nærri því 300 manns. Ljósop er með aðstöðu á Vatnsnesi í Keflavík í gömlu húsi sem áður hýsti m.a. Byggðasafn Reykjanesbæjar. Ljósop auglýsti eftir fyrirsætum eða andlitum og var öllum frjálst að koma. Hann sagðist ekki viss um að þær myndu allar verða sýndar á sýn- ingunni á Ljósanótt en þó væri ljóst að það væri meira svigrúm til að sýna fleiri myndir vegna stærðar salarins. „Þetta hefur gengið von- um framar, byrjaði rólega en hef- ur farið vaxandi og náði miklum toppi síðasta kvöldið. Ég er mjög spenntur og félagar mínir í Ljósopi líka. Þó ég hafi tekið myndirnar þá er ljóst að það er að ýmsu að hyggja fyrir svona sýningu og ég mun þurfa aðstoð frá þeim.“ Björgvin hefur sýnt á netinu all nokkrar myndanna sem hann hef- ur tekið og hafa þær vakið athylgi fyrir sérstakan stíl og þótt mjög skemmtilegar. Hann var ekki lengi með hverja fyrirsætu, smellti innan við tíu myndum á mann og verkið gekk því vel. „Ertu með nægar film- ur,?“ spurði ein fyrirsætan, eldri karlmaður. „Þetta er allt digital, engar filmur lengur,“ sagði ljós- myndarinnar. Þó vel hafi gengið að mynda er ljóst að eftirvinnan verður þó mun meiri eins og gefur að skilja. „Þetta verður djobbið mitt í sumarfríinu,“ sagði Björgvin og brosti. Það er ljóst að margir munu líka brosa þegar sýningin opnar á Ljósanótt í haust. Á vefsíðunni http://andlitbaejar- ins.com/ er hægt að sjá afrakstur Björgvins fyrir lokakvöldið og þar getur fólk keypt myndirnar. Sjónvarp Víkurfrétta kíkti á loka- kvöldið hjá Björgvini og mun sýna innslag frá heimsókninni í þætti vikunnar. Jákvæð rekstrarafkoma, lágir skattar og litlar skuldir -fréttir pósturu vf@vf.is „Andlit bæjarins“ verður aðal sýning Ljósanætur Það var nóg að gera hjá Björgvini og félögum síðasta myndatökukvöldið. Frá afhendingu vottunarinnar. Isavia hlýtur gullmerki PwC í jafnlaunaúttekt

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.