Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 1
Mælingar á útblæstri frá kísilverum í Helguvík verður skipulögð af fyrirtækj­ unum sjálfum. Fyrirtækin velja eftirlitsaðila sem Umhverfisstofnun þarf svo að samþykkja. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Reykja­ nesbæ við fyrirspurn Víkurfrétta um tilhögun mælinga í Helguvík. Starfsleyfi veranna eru háð vöktunaráætlunum sem fyrirtækin sjálf leggja til. Í þeim er tiltekið hver muni sjá um mælingarnar. Umhverfisstofnun þarf svo að samþykkja vöktunaráætlunina og þar með þá aðila sem sjá um vöktunina. Vöktunaráætlun United Silicon er nú í endur- skoðun hjá Umhverfisstofnun sem hefur óskað eftir frekari gögnum. Vöktunaráætlun Thorsil er ekki tilbúin. Farið hefur verið fram á sam- eiginlega vöktunaráætlun allra verksmiðjanna í Helguvík, það er kísilveranna tveggja og álvers ef af byggingu þess verður. Vöktunaráætlan- irnar verða opinber gögn og aðgengileg á síðu Umhverfisstofnunar. Reykjanesbær hefur farið fram á að vera virkur aðili í eftirliti á vöktuninni og verður ásamt kísilverunum og Umhverf- isstofnun í samráðshóp þar sem farið er yfir niðurstöður mælinga. Sjá nánar á bls. 8. vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2015 • 47. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR Nýr& betri opnunartími Virka daga 9-20 Helgar 10-20 Nettó reykjaNesbæ ATH! NÝR OG BETRI OPNUNARTÍMI KASKO • IÐAVÖLLUM 14 • REYKJANESBÆ Virka daga Helgar 10:00 – 19:00 10:00 – 18:00 Skýtur skökku við þessi dræma þátttaka „Það skýtur skökku við að af þeim rúmlega 2800 manns sem rituðu nafn sitt á undirskriftalistana, þar sem þessarar kosningar var krafist, skuli aðeins um 600 vera búnir að kjósa nú þegar innan við 2 sólarhringar eru eftir af kosningunni,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í pistli á heimasíðu Reykjanesbæjar í gær- morgun en greinina má einnig sjá á vf.is. „Gera má ráð fyrir að þeir sem harðast hafa talað gegn uppbygg- ingu í Helguvík séu búnir að kjósa en að þeir sem eru fylgjandi mál- inu síður. Það er mikilvægt að fá skýra niðurstöðu í kosninguna og því eru allir bæjarbúar hvattir til að kjósa. Nú hafa aðeins tæplega 6% íbúa á kjörskrá kosið eða um 600 manns af þeim rúmlega 10 þús. sem eru á kjörskrá. Kosningunni líkur að- fararnótt föstudagsins 4. des. kl. 02:00. Kísilsverin í Helguvík sjá sjálf um mengunarmælingu Jólasnjór í gamla bænum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.