Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 30
30 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
„Það eru alls kyns litlir hlutir hjá okkur
sem auðveldlega hefði mátt gera betur. Við
hefðum t.d. ekki átt að tapa gegn Hamri.
Við erum á fínum stað en það gæti verið
betra.
Margsinnis hefur verið talað um
hversu ungt lið Keflvíkinga er.
Hvaða er erfitt við það að vera
með svona ungt lið? „Það er
aðallega stöðuleiki. Svo er það
líka sjálfstraust. Mörgum finnst
kannski stelpunum í hinum lið-
unum vera rosalega stórar, enda
eru þær búnar að horfa upp til þeirra lengi,“
segir Sandra.
Hún segist nokkuð sátt við eigin frammi-
stöðu en hana langar að gera betur. „Auð-
vitað þurfti ég að taka ábyrgð. Það er kominn
tími til enda er þetta fimmta tímabilið mitt,“
segir Sandra. Hún segist frekar þora að taka
af skarið núna og er óhrædd við að taka
skotin sem henni bjóðast.
Sandra var hluti af landsliði Íslands sem lék
gegn sterkum liðum Slóvakíu og Ungverja-
lands. Þar komst miðherjinn ungi vel frá sínu
í baráttu við gríðarlega hávaxin lið. „Það var
rosaleg reynsla og ótrúlega gaman. Þetta voru
alvöru leikir. Þarna vorum við að spila gegn
12 atvinnumönnum sem var alveg geggjað.“
Varðandi möguleika Keflvíkinga á þessu
tímabili þá telur Sandra að liðið eigi vel
heima í fjórum efstu sætunum. „Við höfum
ekki ennþá spilað leik á þessu tímabili þar
sem við höfum sýnt okkar besta og spilað af
fullri getu. Það þarf líka bara að fara að gerast
til þess að við getum verið í toppbaráttu.“
Erfitt er að horfa framhjá brotthvarfi Bryn-
dísar Guðmundsdóttur úr liðinu enda er hún
einn besti leikmaður landsins. Sandra vill
lítið tjá sig um það mál en viðurkennir að það
hafi vissulega haft áhrif á liðið.
„Auðvitað fundum við fyrir þessu og þetta
var mikill missir fyrir okkur. Þetta var líka
bara leiðinlegt. Við sem höfum spilað með
henni og stóðu næst henni, fundum meira
fyrir þessu en þær yngri,“ en Sandra viður-
kennir að það hafi tekið smá tíma fyrir liðið
að hrista þetta mál af sér.
Nesfiskur ehf. óskar eftir að ráða viðgerðamann
fyrir Baader vélar (Baadermann)
í frystihús sitt í Garði
Nánari upplýsingar gefur Ingibergur
í síma 892-2956
Umsóknir skal senda á theodor@nesfiskur.is
-íþróttir
Höfum ekki sýnt okkar besta
Sandra Lind Þrastardóttir hefur leikið feikilega vel með liði Keflavíkur Domino’s
deildinni í vetur. Þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára er þetta fimmta tímabilið hennar í
deildinni. Hún hefur verið einn af leiðtogum hins unga Keflavíkurliðs og hefur unnið sér inn
sæti í landsliðinu. Hún er þokkalega sátt við stöðu Keflavíkur í deildinni og reiknar með því
að liðið verði í efstu fjóru sætunum.
Birna Valgarðsdóttir var heiðruð sérstaklega fyrir sitt framlag til íslensks
körfuknattleiks í hálfleik í leik Íslands og
Slóvakíu sem fram fór í Laugardalshöll á
dögunum. Birna lék 76 landsleiki á ferli
sínum með landsliðinu á árunum 1994
2009. Það gerir hana að næst leikjahæstu
landsliðskonu allra tíma.
Birna er bæði leikja- og stigahæsti leik-
maður úrvalsdeildarinnar frá upphafi en
hún hefur spilað með fjórum liðum í efstu
deild. Tindastóli, Breiðablik, Grindavík og
lengst af með Keflavík þar sem hún lék
314 leiki. Þar vann hún alla þá titla sem í
boði eru oftar en einu sinni. Hún vann sjö
Íslandsmeistaratitla með Keflvíkingum og
fimm sinnum varð hún bikarmeistari með
liðinu. Birna hætti í boltanum eftir síðasta
tímabil.
Fyrir mánuði síðan varð fékk Grindvík
ingurinn Petrúnella Skúladóttir mikið
höfuðhögg sem hefur haldið henni frá
leik og starfi meira og minna síðan. At
vikið gerðist í leik gegn Stjörnunni og fékk
Petrúnella heilahristing eftir þungt högg á
gangaugað. Hún vonast til þess að byrja að
spila fljótlega.
„Þetta er allt að smella hjá
okkur. Það hefur verið mikið um
meiðsli og nýir leikmenn hafa
verið að koma inn, þannig að
þetta tekur bara sinn tíma,“ segir
Petrúnella. Hún er nokkuð sátt
við gengi liðsins en telur það þó
eiga talsvert inni. „Ég hef engar áhyggjur
af framhaldinu, við verðum alveg þarna á
toppnum. Við höfum alla burði til þess að
gera atlögu að þessum titlum sem eru í boði.
Petrúnella segir liðið afar vel mannað og
telur að Grindvíkingar hafi á að skipa ein-
hverjum sterkasta hóp sem hún hefur spilað
með. „Það er alltaf gaman að spila með góðu
liði og það heldur manni í þessu, að eiga
möguleika á þessum titlum sem eru í boði.
Manni langar bara að standa sig fyrir liðið og
svo er einnig farið að síga á seinni hlutann á
ferlinum.“ Petrúnella er þó rétt orðin þrítug
og virðist vera í feikilega góðu formi þetta
tímabilið. Hún er meðal efstu kvenna í öllum
helstu tölfræðiþáttum Domino’s deildarinnar
og leiðir deildina í stolnum boltum.
Sökum meiðslanna missti Petrúnella af
landsleikjum Íslands gegn Slóvakíu og Ung-
verjalandi. Hún vonast til þess að fá grænt
ljós á að spila fljótlega en segir erfitt að glíma
við meiðsli af þessu tagi.
„Ég er með stanslausan höfuðverk og þarf
að bryðja verkjatöflur. Ég ætla á næstunni að
prófa hugleiðslu og höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð því ég má í rauninni ekkert
hreyfa mig. Þetta eru erfiðustu meiðsli sem
ég hef þurft að glíma við. Mikil ógleði, svimi
og höfuðverkur,“ segir þessi mikli baráttu-
jaxl. Hún segir það taka á andlegu hliðina að
geta ekki verið með. Oft langi hana til þess að
skreppa á æfingu eða spila.
„Manni finnst ekkert vera að sér þannig séð,
að maður gæti harkað þetta af sér. Það er
bara of hættulegt þegar svona meiðsli eru
annars vegar. Þetta er ekki bara körfuboltinn
sem um ræðir, maður á fjölskyldu þannig að
maður þarf að passa sig.“
Grindvíkingar eru í þriðja sæti deildarinnar
en þær léku við Stjörnuna í gær, miðviku-
dag. Næsti leikur liðsins er svo gegn sterku
Haukaliði þann 12 desember.
Sjaldan verið með eins sterkt lið
segir Grindvíkingurinn Petrúnella Skúladóttir
sem glímir við erfiðustu meiðsli ferilsins.
Birna Valgarðs heiðruð í Höllinni
Fyrir framlag sitt til íslensks körfubolta
FRÍTT Á LEIKINN
FÖSTUDAGINN, 4. DESEMBER KL. 19:15
GRILLAÐIR HAMBORGARAR
FYRIR ALLA HEIMALEIKI
Hér eigast þær við á vellinum, Sandra og Petrúnella.