Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 31

Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 31
31VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 3. desember 2015 Halldór Matthías Ingvarsson er 14 ára bráðefnilegur bardaga­ kappi úr Njarðvík. Halldór hóf að æfa íslenska glímu í fyrra og hefur hann þegar náð að stimpla sig í íþróttina með glæsibrag. Áður var hann byrjaður að æfa júdó og brasilískt jiu jitsu. Hann keppir í öllum þessum greinum og hefur náð afbragðs árangri í þeim öllum. Að sögn Halldórs eru æfingarnar skemmtilegar og félagsskapurinn góður hjá Sleipni, sem er júdódeild UMFN. Undir merkjum deildarinnar eru keppt í júdó, íslenskri glímu, akido og brasilísku jiu jitsu. Margir efnilegir bardagamenn eru innan fé- lagsins og hefur árangur Njarðvík- inga verið frábær undanfarin misseri. Halldór sem er rétt að verða 15 ára er tæplega 1.90 cm að hæð og 100 kg að þyngd. Hann segist alltaf hafa verið sterkur miðað við aldur. Það virðist sannarlega vera því pilturinn hefur verið að glíma við fullorðna þar sem hann gefur ekki þumlung eftir. Á Fjórðungsmóti Glímusambands Íslands á dögunum nældi Halldór sér í bronsverðlaun í fullorðinsflokki „Ég er ekkert smeykur við það að keppa við fullorðna. Það er ekki svo erfitt. Þar fæ ég betri reynslu,“ segir Halldór við blaðamann VF. Hann á sér háleit markmið og stefnir að því að æfa af kappi og reyna að komast á Evrópumeistaramót í júdó eða BJJ þegar fram líða stundir. Eins dreymir hann um að keppa í blönd- uðum bardagalistum í framtíðinni. Þá horfir hann til UFC þar sem Gunnar Nelson er ein af skærustu stjörnunum. Fóru á kostum í Skotlandi Halldór fór til Skotlands ásamt fleiri efnilegum Njarðvíkingum í sumar þar sem hann keppti í keltneskri glímu á hálandaleikum. Greinin svipar til íslenskrar glímu en Halldór hafnaði í þriðja sæti í sínum flokki. Njarðvíkingarnir Ægir Már Baldvins- son og Bjarni Darri Sigfússon sigr- uðu sína þyngdarflokka á leiknum ásamt því að þjálfarinn Guðmundur Gunnarsson komst í úrslitaglímuna þar sem hann tapaði gegn Evrópu- meistaranum í greininni. Sleipnis- menn létu því sannarlega til sín taka á skoskri grundu. Á nýju ári ætlar Hall- dór að vera enn duglegri að æfa og bæta sig í öllum greinum. Hann er nú þegar að æfa nánast alla daga og því er ljóst að metnaðurinn er sannar- lega til staðar. Spennandi verður að fylgjast með Halldóri og félögum hans á nýju ári. Í jólagjafahandbók Lyfju finnur þú fjölbreytt úrval af fallegum og nytsamlegum gjafavörum fyrir alla fjölskylduna. Nældu þér í eintak af jólagjafahandbókinni í næstu verslun Lyfju. - Lifi› heil Allir fá þá eitthvað fallegt... Lágmúla Laugavegi Nýbýlavegi Smáralind Smáratorgi Borgarnesi Grundarfirði Stykkishólmi Búðardal Patreksfirði Ísafirði Blönduósi Hvammstanga Skagaströnd Sauðárkróki Húsavík Þórshöfn Egilsstöðum Seyðisfirði Neskaupstað Eskifirði Reyðarfirði Höfn Laugarási Selfossi Grindavík Keflavík www.lyfja.is Eyþór Sæmundsson // pósturu eythor@vf.is Gefur þeim fullorðnu ekkert eftir Stefnir á Evrópumót og MMA Íslandsmet hjá Söru á HM í Houston XuRagnheiður Sara Sigmunds­ dóttir bætti og jafnaði Íslands­ met á heimsmeistaramótinu í Ólympískum lyftingum sem fram fór í Houston í Banda­ ríkjunum um helgina. Sara jafnaði Íslandsmet í snörun með því að lyfta 80 kg. Hún reyndi svo þrisvar við 85 kg en þau fóru ekki á loft. Hún kláraði svo 105 kg í jafnhendingu og sló þar með Íslandsmet í saman- lögðum árangri og jafnhendingu. Sara reyndi svo við 110 kg í jafn- hendingu í síðustu tilraun en þar fékk hún lyftuna dæmda ógilda. Frábær árangur ungra Keflvíkinga Strákarnir í 5. flokki Keflavíkur í knattspyrnu gerðu vel á Keflavíkurmótinu sem haldið var um þar síðustu helgi. Þeir unnu fjórar deildir af sex á mótinu. Hópurinn er stór, þeir eru 60 talsins og eru meðal þeirra bestu á landinu. Framtíðin virðist sannarlega vera björt hjá Keflavík.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.