Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR Mi ðstö ð símenntunar á Suðurnesjum undirbýr nú verkefnið Lingua Café að finnskri fyrirmynd. Að sögn Sveindísar Valdimarsdóttur, verkefnastjóra íslenskunámskeiða hjá MSS, er verkefnið einkar spennandi. „Eins og nafnið ber með sér, er hér um að ræða stefnumót á kaffi- húsi, þar sem einstaklingar frá ólíkum löndum hittast yfir kaffi- bolla og velja sér ólík tungumál til tjáskipta.“ Tilgangur verkefnisins er að gefa fólki tækifæri til að æfa tungumálakunnáttu sína, auk þess sem það gefur fólki af ólíkum upp- runa tækifæri til að hittast, kynnast og skiptast á skoðunum. Verkefnið felur meðal annars í sér að undir- búið verður auðvelt námsefni sem nýtist til að aðstoða fólk sem er að hefja nám í íslensku, hvetur það áfram og auðveldar því samskiptin. Löng hefð er fyrir verkefninu Lingua Café í Finnlandi en það hófst fyrst þar fyrir níu árum. Við undirbúninginn hjá MSS er stuðst við reynsluna þaðan. „Okkur hjá MSS finnst þetta mjög spennandi verkefni. Við erum með stóran nemendahóp, íslenskra sem erlendra nemenda sem eru, eða hafa verið, í tungumálanámi hjá okkur. Margir þeirra vilja halda áfram að þjálfa þau tungumál sem þau hafa verið að læra og svo eru eflaust margir til viðbótar sem vilja kíkja á Lingua café til að hitta fólk og þjálfa tungumál sem eru annars ef til vill ekki mikið notuð svona dags daglega eins og spænsku, norsku eða ensku,“ segir Sveindís. Hluti af undirbúningi MSS fyrir tungumálakaffið er að leggja fyrir skoðanakönnun á næstu vikum og eru allir áhugasamir um verkefnið hvattir til að taka þátt. ,,Könnun- ina má fljótlega finna á heimasíðu MSS og það væri gaman ef sem flestir gæfu sér tíma til að taka þátt í henni. Hún á að geta gefið okkur einhvers konar mynd af því hvernig fólk lærir best tungumál og hvaða skoðanir fólk hefur yfir- leitt á tungumálanámi. Það er alltaf gaman að taka þátt í verkefnum sem stuðla að því að nýta nám á praktískan hátt. Það er eitthvað sem við þurfum að gera mun meira af.“ Undirbúningur er nú í fullum gangi og er áætlað að verkefnið byrji á næsta ári. Það er hluti af Nordplus áætlun í menntamálum og er unnið í samstarfi við Finn- land, Eistland, Lettland og Litháen. Undirbúa regluleg tungumálakvöld -mannlíf pósturu vf@vf.is Frá Lingua Café í Finnlandi. Verkefnið hefur verið í gangi þar í níu ár. Tímabundið ley til sölu skotelda í smásölu og ley til skoteldasýninga Lögreglan á Suðurnesjum Upplýsingar til umsækjanda tímabundins leys fyrir sölu skotelda í smásölu og leys til skoteldasýninga frá og með 28. desember 2015 til og með 6. janúar 2016. Þeir aðilar sem hyggjast sækja um ley fyrir sölu skotelda í smásölu í Reykjanesbæ, Garði, Grindavík, Sandgerði og Vogum fyrir og eftir áramót 2015-2016, ber að sækja um slíkt ley til lögreglunnar á Suðurnesjum fyrir kl. 16:00, 8. desember 2015. Hægt er að nálgast umsóknirnar á logreglan.is og á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ að Hringbraut 130. Einnig á lögreglustöðinni í Grindavík, Víkurbraut 25. Ley eru veitt að fullnægðum skilyrðum vopnalaga nr. 16/1998 og gildandi reglugerðar um skotelda. Athugið: • Umsóknaraðilar skila inn umsóknum 8. desember 2015, - til lögreglu að Brekkustíg 39, ásamt fylgigögnum. • Umsóknir um sölustaði sem berast eftir 8. desember 2015 verða ekki teknar til afgreiðslu. • Umsóknaraðilar skulu vera komnir með leyn í hendur þriðjudaginn 22. desember 2015. • Óheimilt er að hea sölu, nema söluaðilar ha í höndum leysbréf frá lögreglu. • Söluaðilar sæki leysbréf á lögreglustöðina við Hringbraut þriðjudaginn 22. desember 2015, kl. 09:00. Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi: • Ley eru aðeins veitt fyrir sölu skotelda að fyrir liggi umsögn viðkomandi slökkviliðs til aðstöðu og sölu skotelda, pökkunar- og geymslustaði. Einnig liggi fyrir ley lóðareiganda, húseiganda eða húsfélags ef umsækjandi er ekki umráðamaður lóðar eða húsnæðis þar sem sala á að fara fram og staðfesting tryggingafélags vegna sölu, geymslu og notkun skotelda. • Ef fyrirhugað er að selja úr skúrum eða gámum, skal vera búið að ganga frá slíkum sölustöðum fyrir kl. 16:00, þriðjudaginn 15. desember 2015 svo lokaúttekt geti farið fram á aðstöðu og öryggisþáttum. Sölustaðir skulu vera minnst 25 fermetrar og búnir samkvæmt kröfum slökkviliðs viðkomandi sveitarfélags. Tilgreina þarf ábyrgðarmann fyrir sölustað, sem hefur sérþekkingu á skoteldum og hefur náð 18 ára aldri. Að gefnu tilefni skal vakin athygli á að sala og meðferð skotelda er einungis heimil á tímabilinu frá og með 28. desember 2015 til og með 6. janúar 2016. Gjald fyrir sölustað er kr. 5.000, skoteldasýningar er kr. 8.300 og brennur kr. 8.300- og greiðist við innlögn umsóknar hjá lögreglu. Reykjanesbær 3. desember 2015. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Brekkustíg 39 - 260 Reykjanesbæ - s. 444 2200. Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.