Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 2
2 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir pósturu vf@vf.is
Mikil eftirspurn er eftir leiguhúsnæði á Suðurnesjum að
sögn Reynis Kristinssonar hjá
Tjarnarverki ehf. en fyrirtækið
leigir út 107 íbúðir í Reykjanesbæ
og Vogum. „Það er að myndast
ákveðinn leigumarkaður á Suður
nesjum en það þarf lengri tíma
til að byggja hann upp. Það er
stefnan hjá Tjarnarverki að fólk
geti leigt til langs tíma og þannig
verið öruggt á sínum stað,“ sagði
Reynir.
Að sögn Reynis er leiguverð á
Suðurnesjum töluvert lægra en
á höfuðborgarsvæðinu. Hér sé
meðalverð á fermetra leiguhús-
næðis um 1600 krónur á mánuði,
samanborið við 2000 til 2500
krónur þar. „Leiguverðið fer hækk-
andi. Það þótti töluvert þegar við
hækkuðum verðið upp í 1600
krónur á fermetrann fyrr á þessu
ári. Það eru þó dæmi um að íbúðir
á Suðurnesjum séu leigðar út fyrir
1700 til 1800 krónur á fermetrann,
það sér maður á auglýsingum á
vefnum Bland og á Facebook.“
Sá hópur fólks sem leigir íbúðir
af Tjarnarverki ehf. eru að sögn
Reynis á ýmsum aldri en flestir eru
ungt fólk með börn. „Oft hefur fólk
verið í kytrum áður en getur svo
með batnandi atvinnuástandi leyft
sér að leigja nýja íbúð en flestar
íbúðirnar sem við leigjum út voru
byggðar á árunum 2007 til 2008.“
Lengstur er biðlistinn eftir 60 til 70
fermetra íbúðum og getur biðin því
tekið nokkra mánuði. „Við leigjum
líka út fimm herbergja íbúðir sem
hafa verið mjög vinsælar. Þá er fólk
að stækka við sig hjá okkur, fer úr
minni leiguíbúð og í stærri.“
Karlmaður var nýlega dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa haft tvær
og hálfa milljón króna af Guð
jóni Árna Konráðssyni, manni
með þroskaskerðingu. Fjallað var
um málið á RÚV. Hinn ákærði
blekkti starfsmenn Sparisjóðsins
í Keflavík til að millifæra peninga
af reikningi Guðjóns til sín.
Málið var kært til lögreglunnar á
Suðurnesjum árið 2007 en ákæra
var ekki gefin út fyrr en árið 2013.
Það hversu lengi málið dróst er
ástæða þess að Hæstiréttur ákvað
að skilorðsbinda dóminn. Lög-
maður mannsins íhugar að höfða
mál á hendur íslenska ríkinu vegna
mikilla tafa á rannsókn málsins.
Í umfjöllun RÚV var rætt við
systur mannsins, Jónu Ósk Kon-
ráðsdóttur, og sagði hún rannsókn
málsins hafa verið klúður frá upp-
hafi til enda. Málið hafi haft gríðar-
leg áhrif á fjárhag bróður síns.
Hann eigi ekki neitt í dag en hafi
verið vel stæður áður en það kom
upp. Hún áætlar að hinn ákærði
hafi haft um 9 milljónir af honum.
Hún telur að hinn ákærði hafi
einnig svikið Guðjón í fasteigna-
viðskiptum en lögregla rannsakaði
það mál ekki.
Í svari Lögreglunnar á Suður-
nesjum til RÚV sagði að gríðarlegt
álag hafi verið á rannsóknardeild á
þeim tíma er málið var í rannsókn,
auk þess sem krafa um niðurskurð
hafi verið mikil.
Vísir að leigumarkaði að
myndast á Suðurnesjum
- Langir biðlistar eftir 60 til 70 fm íbúðum
Segir rannsókn
lögreglu klúður frá
upphafi til enda
- Hinn ákærði blekkti starfsmenn SpKef
ÍBÚAKOSNINGU
AÐ LJÚKA
JÓLIN Í DUUS
FJÖLSKYLDUDAGSKRÁ
HANDPRJÓNUÐ SJÖL
SÖLUSÝNING Í DUUS SAFNAHÚSUM
VIÐTALSTÍMAR/
APPOINTMENTS
MRSÍ/ICELANDIC HUMAN RIGHTS
Rafrænni íbúakosningu um breytingar á deiliskipulagi
í Helguvík lýkur kl. 02:00 4. desember. Í dag er því
síðasti dagurinn til að fá aðstoð við rafræn auðkenni á
Bókasafni Reykjanesbæjar. Safnið er opið milli kl. 9:00
og 18:00. Tengil í rafrænan kjörseðil má finna á
www.ibuakosning.is, www.reykjanesbaer.is,
www.island.is og á Facebook síðu Reykjanesbæjar.
Jólasveinarnir hafa villst í Bryggjuhúsinu. Finnið þá í
skemmtilegum fjölskylduratleik. Heitt kakó og
piparkökur í þátttökuverðlaun fyrir börnin á Kaffi Duus.
Óskalistagerð í Stofunni, allt efni á staðnum.
Skessan er í jólaskapi og hefur skreytt hellinn sinn.
Hún tekur við óskalistum í póstkassann sinn og kemur
þeim til jólasveinanna.
Opið í Duus safnahúsum alla daga frá kl. 12-17.
Aðgangur ókeypis.
Sýning og sala á handprjónuðum hyrnum og langsjölum
eftir hönnuðinn Magdalenu Sirrý í Stofunni í Duus
Safnahúsum. Opið laugardaginn 5. desember kl. 16:00 –
19:00 og sunnudaginn 6. desember kl. 13:00 – 17:00.
Mannréttindaskrifstofa Íslands (MRSÍ) verður
meðviðtals tíma fyrir innflytjendur í Reykjanesbæ,
milli kl. 12.00 -16.00 9. desember í Fjölskyldusetrinu,
Skólavegi 1. Þjónustuver Reykjanesbæjar tekur á móti
tímapöntunum í síma 421-6700 milli
kl. 9.00 – 16.00 alla virka daga. Taka þarf fram hvort
þörf sé á túlkaþjónustu í viðtalinu.
Icelandic Human Rights (MRSÍ) will have appoint-
ments for immigrants in Reykjanesbær between 12:00
o´clock to 16:00 o´clock on the 9 of Desember in the
Family Centre at Skólavegi 1. It is necessary to book
appointments through customer service at the Town
hall, phone 421-6700 between the hours 9:00 to 16:00
o´clock on weekdays. If necessary, need for an
interpreter in the interview has to be stated.
JÓLABALL
FATLAÐS FÓLKS
Reykjanesbær og Ráin bjóða fötluðu fólki á jólaball á
Ránni í dag milli kl. 14:00 og 16:00. Jólasveinar koma í
heimsókn, skemmtiatriði verða á dagskrá og dansað
í kringum jólatré við undirleik bæjarstjóra og forseta
bæjarstjórnar. Boðið verður upp á veitingar og svo er
aldrei að vita nema sveinarnir lumi á einhverju góðgæti.
Bæjaryfirvöld í Grindavík hafa ákveðið að skipta út
efnum af tveimur sparkvöllum
í bæjarfélaginu sem eru með
dekkjakurli því sem Læknafélag
Íslands hefur varað við. Annar
völlurinn er frá árinu 2006 og
hinn frá 2010. Skipta á gúmmí
kurlinu út á næsta ári. Í svari
frá bænum við fyrirspurn Vík
urfrétta kemur fram að fram
kvæmdin hafi verið sett inn á
fjárhagsáætlun Grindavíkur
bæjar fyrir árið 2016. Ákveðið
hafi verið að vera til fyrir
myndar og leyfa börnunum að
njóta vafans.
Skipt verður um bæði gervigras
og gúmmíkurl á eldri vellinum.
Á nýrri vellinum verður dekkjak-
urlið ryksugað burt og gúmmí af
viðurkenndri gerð sett í staðinn,
það er ljóst að lit og án efna sem
teljast skaðleg heilsu eða meng-
andi. Er það í samræmi við sam-
þykkt stjórnar KSÍ frá 9. októ-
ber síðastliðnum þar sem sam-
þykkt var að mæla gegn notkun
á endurnýttum hjólbörðum í
nýjum völlum með knattspyrnug-
rasi og við endurnýjun eldri valla.
Gúmmíkurli skipt út í
Grindavík á næsta ári
Fjölgun umsókna
í fjarnám
Háskólabrúar
XuUmsóknum í fjarnám Há
skólabrúar Keilis hefur fjölgað
milli ára og eru þær fjórðungi
fleiri núna en á sama tíma í
fyrra. Nú stunda rúmlega tvö
hundruð einstaklingar aðfara
nám að háskólanámi í Keili,
þar af um helmingurinn í
fjarnámi. Þá hófu um þrjátíu
einstaklingar fjarnám í Há
skólabrú með vinnu í lok nóv
ember, en það nám er kennt
á tveimur árum og hentar vel
þeim aðilum sem vilja taka
lengri tíma eða vilja stunda
námið með vinnu.
Við næstu útskrift í janúar 2016
má reikna með að heildar-
fjöldi útskrifaðra nemanda úr
Háskólabrú verði samtals hátt
í 1.400. Keilir býður upp á að-
fararnám í samstarfi við Háskóla
Íslands og hafa langflestir nem-
endur haldið áfram í háskóla-
nám bæði hérlendis og erlendis.
Námið hefur á undanförnum
árum markað sér sérstöðu í að
veita einstaklingsmiðaða þjón-
ustu og stuðning við nemendur,
ásamt því að miða kennsluhætti
við þarfir fullorðinna nemenda.
Fjarnám Háskólabrúar Keilis
hefst næst 4. janúar 2016 og
er umsóknarfrestur til 14.
desember næstkomandi. Að
loknu námi uppfylla nemendur
inntökuskilyrði í háskóla og telst
námið sambærilegt stúdents-
prófi samkvæmt samningi Keilis
og Háskóla Íslands. Nánari upp-
lýsingar á www.haskolabru.ist