Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 03.12.2015, Blaðsíða 22
22 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR -viðtal pósturu hilmar@vf.is Í Garðinum eru ákjósan­legar aðstæður til að njóta norðurljósa. Garðskagi er vinsæll áfangastaður þar sem langferðabílar koma fullir af ferðamönnum á kvöldum þegar norðurljósa er von. Síðasta vetur voru dæmi um að yfir 20 langferðabílar væru á Garðskaga á sama tíma í norðurljósaferðum. Þá segja tölur að yfir 100.000 ferða­ menn komi árlega í Garðinn og á Garðskaga. Nú á að leggja í vegferð að byggja enn frekar upp ferðaþjónustu á Garð­ skaga. Á síðasta ári fékk Sveitarfélagið Garður þá Sigurð Þorsteinsson og Jóhann Ísberg til að vinna að stefnumótun í atvinnumálum í Garði með áherslu á ferðaþjón- ustu. Þeir hafa nú sýnt því áhuga að vinna að frekari uppbygg- ingu í ferðamálum á Garðskaga með samkomulagi við Sveitar- félagið Garð. Til að vinna frekar að málinu hefur verið stofnað félagið Garðskagi ehf. Norður- ljósunum verður gert hátt undir höfði í þeirri uppbyggingu sem framundan er. Áformin voru m.a. kynnt á íbúa- fundi í Garðinum á dögunum. Víkurfréttir ræddu við Magnús Stefánsson, bæjarstjóra í Garði, í framhaldi af fundinum. „Það eru ýmsar hugmyndir sem hafa verið reifaðar. Við erum núna að fara að setja af stað verkefni sem aðilar ætla að taka að sér og verða eins konar staðarhaldarar hér á Garð- skaga og halda utan um ferða- þjónustu og starfsemi á þessu svæði,“ segir Magnús í samtali við Víkurfréttir og bætir við: „Við ætlum að vinna að því að auka hér ferðaþjónustu og mæta þar með þörfum mjög margra sem koma hingað á Garðskaga á hverju ári.“ Það er mikill fjöldi sem kemur í Garðinn og á Garðskaga á hverju ári. „Ég hef heyrt tölur um yfir 100.000 ferðamenn á Garð- skaga á ári. Það sýnir hvað það er mikil aðsókn að þessu svæði hérna.“ Hverjar eru þær hugmyndir sem á að vinna með? „Við höfum þær hugmyndir að leggja áherslu á byggðasafnið okkar og sögu Garðsins, út- gerðarsöguna og byggðasöguna. Síðan eru áform um að vera með norðurljósasýningar með fræðsluefni og kvikmyndum. Þeir sem hingað koma geta þá kynnt sér það efni. Þar munum við leggja áherslu á hafið og norðurljósin og að hér verði bær hafsins og norðurljósa.“ Það er talað um að hér sé gott að horfa á norðurljósin. Hér er ekkert sem skyggir á. „Hér kemur mikill fjöldi fólks á kvöldin þegar það eru aðstæður til að sjá norðurljós. Hér er lítil ljósmengun og engin fjöll í ná- grenninu þannig að hér eru oft góð skilyrði til að sjá norðurljós. Þau dansa hér um himininn við mikla gleði þeirra sem hingað koma.“ Hversu hratt verður unnið? „Við erum að horfa fram í tím- ann með uppbyggingu. Hér er töluvert af húsakosti til staðar. Hugmyndin er að endurskipu- leggja það og nýta betur. Við höfum einnig rætt við Vega- gerðina um að fá að nýta stóra vitann betur til sýningahalds þannig að það verður væntan- lega mikið um að vera þar. Við erum með byggðasafnshúsið sjálft en þar er meiningin að endurskipuleggja safnið og allt sem því við kemur og koma upp norðurljósasýningum. Þá er veitingaaðstaða í húsinu og vonandi tekst vel að vinna úr því þannig að þetta verði okkur til sóma og þeim til gleði sem koma og njóta.“ Magnús segir að eitt af aðkall- andi verkefnum á Garðskaga sé að bæta verulega salernisað- stöðu fyrir ferðamenn. Sótt hefur verið um í framkvæmda- sjóð ferðamannastaða en hug- myndir eru um myndarlega aðstöðu í tengslum við hús byggðasafnsins á Garðskaga. Síðasta vetur komu þau kvöld að yfir 20 langferðabifreiðar voru á Garðskaga á sama tíma.. Ef sú staða verður uppi áfram gæti þurft að takmarka þann fjölda sem sækir Garðskaga hverju sinni. „Við viljum getað veitt þá þjónustu til þeirra sem koma með þeim hætti að sómi sé að og ekki síst til að vernda svæðið, því Garðskagi er náttúruperla. Með þessari uppbyggingu er verið að tryggja að Garðurinn sé ferðamannastaður allt árið um kring. Hingað er vinsælt að koma yfir sumartímann til að njóta sólarlagsins og ásókn í norðurljósaupplifun hefur auk- ist mikið síðustu misseri. Það er stutt á Garðskaga frá flugvell- inum og einnig frá Reykjavík. Hingað er mikill straumur yfir sumartímann og hér er ævin- týralegt að upplifa sólsetrið yfir hásumarið. Það er mikið af fólki sem kemur hingað á Garðskaga til að njóta þess,“ segir Magnús. Þið stefnið á að vera Norðurljósabærinn? „Já, við stefnum á það og ég tel reyndar að við séum það vegna þeirrar ásóknar og að- stæðna til norðurljósaskoð- unar. Garðurinn er Norður- ljósabærinn með ákveðnum greini,“ segir Magnús bæjar- stjóri Stefánsson í samtali við Víkurfréttir. NORÐURLJÓSA- BÆRINN GARÐUR – Yfir 100.000 ferðamenn sækja Garðskaga heim á hverju ári Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Garði. Dansandi norðurljós á Garðskaga.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.