Víkurfréttir - 03.12.2015, Qupperneq 22
22 fimmtudagur 3. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal pósturu hilmar@vf.is
Í Garðinum eru ákjósanlegar aðstæður til að njóta
norðurljósa. Garðskagi er
vinsæll áfangastaður þar sem
langferðabílar koma fullir
af ferðamönnum á kvöldum
þegar norðurljósa er von.
Síðasta vetur voru dæmi um
að yfir 20 langferðabílar væru
á Garðskaga á sama tíma í
norðurljósaferðum. Þá segja
tölur að yfir 100.000 ferða
menn komi árlega í Garðinn
og á Garðskaga. Nú á að leggja
í vegferð að byggja enn frekar
upp ferðaþjónustu á Garð
skaga.
Á síðasta ári fékk Sveitarfélagið
Garður þá Sigurð Þorsteinsson
og Jóhann Ísberg til að vinna að
stefnumótun í atvinnumálum í
Garði með áherslu á ferðaþjón-
ustu. Þeir hafa nú sýnt því áhuga
að vinna að frekari uppbygg-
ingu í ferðamálum á Garðskaga
með samkomulagi við Sveitar-
félagið Garð. Til að vinna frekar
að málinu hefur verið stofnað
félagið Garðskagi ehf. Norður-
ljósunum verður gert hátt undir
höfði í þeirri uppbyggingu sem
framundan er.
Áformin voru m.a. kynnt á íbúa-
fundi í Garðinum á dögunum.
Víkurfréttir ræddu við Magnús
Stefánsson, bæjarstjóra í Garði,
í framhaldi af fundinum.
„Það eru ýmsar hugmyndir
sem hafa verið reifaðar. Við
erum núna að fara að setja af
stað verkefni sem aðilar ætla að
taka að sér og verða eins konar
staðarhaldarar hér á Garð-
skaga og halda utan um ferða-
þjónustu og starfsemi á þessu
svæði,“ segir Magnús í samtali
við Víkurfréttir og bætir við:
„Við ætlum að vinna að því að
auka hér ferðaþjónustu og mæta
þar með þörfum mjög margra
sem koma hingað á Garðskaga
á hverju ári.“
Það er mikill fjöldi sem kemur
í Garðinn og á Garðskaga
á hverju ári.
„Ég hef heyrt tölur um yfir
100.000 ferðamenn á Garð-
skaga á ári. Það sýnir hvað það
er mikil aðsókn að þessu svæði
hérna.“
Hverjar eru þær hugmyndir
sem á að vinna með?
„Við höfum þær hugmyndir að
leggja áherslu á byggðasafnið
okkar og sögu Garðsins, út-
gerðarsöguna og byggðasöguna.
Síðan eru áform um að vera
með norðurljósasýningar með
fræðsluefni og kvikmyndum.
Þeir sem hingað koma geta þá
kynnt sér það efni. Þar munum
við leggja áherslu á hafið og
norðurljósin og að hér verði
bær hafsins og norðurljósa.“
Það er talað um að hér sé gott
að horfa á norðurljósin. Hér er
ekkert sem skyggir á.
„Hér kemur mikill fjöldi fólks á
kvöldin þegar það eru aðstæður
til að sjá norðurljós. Hér er lítil
ljósmengun og engin fjöll í ná-
grenninu þannig að hér eru oft
góð skilyrði til að sjá norðurljós.
Þau dansa hér um himininn við
mikla gleði þeirra sem hingað
koma.“
Hversu hratt verður unnið?
„Við erum að horfa fram í tím-
ann með uppbyggingu. Hér er
töluvert af húsakosti til staðar.
Hugmyndin er að endurskipu-
leggja það og nýta betur. Við
höfum einnig rætt við Vega-
gerðina um að fá að nýta stóra
vitann betur til sýningahalds
þannig að það verður væntan-
lega mikið um að vera þar. Við
erum með byggðasafnshúsið
sjálft en þar er meiningin að
endurskipuleggja safnið og allt
sem því við kemur og koma
upp norðurljósasýningum. Þá
er veitingaaðstaða í húsinu og
vonandi tekst vel að vinna úr
því þannig að þetta verði okkur
til sóma og þeim til gleði sem
koma og njóta.“
Magnús segir að eitt af aðkall-
andi verkefnum á Garðskaga
sé að bæta verulega salernisað-
stöðu fyrir ferðamenn. Sótt
hefur verið um í framkvæmda-
sjóð ferðamannastaða en hug-
myndir eru um myndarlega
aðstöðu í tengslum við hús
byggðasafnsins á Garðskaga.
Síðasta vetur komu þau kvöld að
yfir 20 langferðabifreiðar voru á
Garðskaga á sama tíma.. Ef sú
staða verður uppi áfram gæti
þurft að takmarka þann fjölda
sem sækir Garðskaga hverju
sinni. „Við viljum getað veitt þá
þjónustu til þeirra sem koma
með þeim hætti að sómi sé að
og ekki síst til að vernda svæðið,
því Garðskagi er náttúruperla.
Með þessari uppbyggingu er
verið að tryggja að Garðurinn
sé ferðamannastaður allt árið
um kring. Hingað er vinsælt
að koma yfir sumartímann til
að njóta sólarlagsins og ásókn í
norðurljósaupplifun hefur auk-
ist mikið síðustu misseri. Það er
stutt á Garðskaga frá flugvell-
inum og einnig frá Reykjavík.
Hingað er mikill straumur yfir
sumartímann og hér er ævin-
týralegt að upplifa sólsetrið
yfir hásumarið. Það er mikið
af fólki sem kemur hingað á
Garðskaga til að njóta þess,“
segir Magnús.
Þið stefnið á að vera
Norðurljósabærinn?
„Já, við stefnum á það og ég
tel reyndar að við séum það
vegna þeirrar ásóknar og að-
stæðna til norðurljósaskoð-
unar. Garðurinn er Norður-
ljósabærinn með ákveðnum
greini,“ segir Magnús bæjar-
stjóri Stefánsson í samtali
við Víkurfréttir.
NORÐURLJÓSA-
BÆRINN GARÐUR
– Yfir 100.000 ferðamenn sækja Garðskaga heim á hverju ári
Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Garði.
Dansandi norðurljós á Garðskaga.