Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2015, Side 2

Víkurfréttir - 22.12.2015, Side 2
2 þriðjudagur 22. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR -fréttir pósturu vf@vf.is MUNUM EFTIR AÐ GLEÐJA OG NJÓTA UM HÁTÍÐARNAR Fríhöfnin óskar þér gleðilegrar hátíðar og endalausra ævintýra á nýju ári. www.dutyfree.is HVÍT A H Ú S IÐ | S ÍA 2 0 15 OPNUNARTÍMI YFIR JÓL OG ÁRAMÓT AKSTUR STRÆTÓ VILTU KOMA Í TEYMIÐ OKKAR? DUUS SAFNAHÚS JÓLAGJAFIR Ráðhús – Þjónustuver og Bókasafn Lokað 24. – 27. desember Opnað 28. desember kl. 10:00 Lokað 31. desember – 4. janúar Aðra daga er hefðbundinn opnunartími Duus Safnahús og Rokksafn Íslands Lokað 24. og 25. desember Lokað 31. desember og 1. janúar Aðra daga er hefðbundinn opnunartími Sundmiðstöð/Vatnaveröld Opið 23. desember til kl. 16:00 Lokað 24. – 26. desember Opið 31. desember til kl 10.00 Lokað 1. janúar Aðra daga er hefðbundinn opnunartími Íþróttamiðstöð Njarðvíkur Opið 23. desember til kl. 13:00 Lokað 24. – 26. desember Lokað 31. desember og 1. janúar Aðra daga er hefðbundinn opnunartími Strætóferðir innan Reykjanesbæjar falla niður eftirtalda daga yfir jólahátíðina: Aðfangadag 24. desember, jóladag 25. desember, annan í jólum 26.desember, gamlársdag 30. desember og nýársdag 1. janúar. Umhverfissvið óskar eftir húsumsjónarmanni. Starfið felst m.a. í viðhaldi og umsjón fasteigna Reykjanes- bæjar auk annarra starfa. Leitað er eftir áhugasömum og úrræðagóðum starfsmanni sem getur unnið sjálf- stætt og hefur til að bera ríka þjónustulund og mikla færni í mannlegum samskiptum. Krafa um iðnmenntun eða reynslu sem nýtist starfi. Ökuréttindi skilyrði. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2016. Umsóknum skal skila rafrænt á vef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur H Sigurjónsson sviðsstjóri Umhverfissviðs í síma 4216739 eða netfangið gudlaugur.h.sigurjonsson@reykjanesbaer.is. Kerti og spil og bækur fyrir alla. Jólagjafir handa heimamönnum, brottfluttum og öðrum áhugasömum. Samakup hf., sem m.a. rekur verslunarkeðj-urnar Nettó, Samkaup Úrval, Samkaup Strax og Kaskó. úthluta árlega í desember fjöl- mörgum styrkjum til hinna ýmsu samfélags- mála. Þetta er gert samkvæmt stefnu félagsins um samfélagslega ábyrgð. Koma þessir styrkir til viðbótar við önnur samstarfsverkefni sem Samkaup styrkja víðsvegar um landið á hinum ýmsu sviðum allt árið um kring. Nú í desember voru veittir styrkir til: Velferðar- sjóðs Suðurnesja sem er í umsjón Keflavíkur- kirkju, Velferðarsjóðs Ytri-Njarðvíkurkirkju, Grindavíkurkirkju, Hjálpræðishersins í Reykjavík, Fjölskylduhjálpar Íslands, Borgarneskirkju, Sel- fossprestakalls, Mæðrastyrksnefndar Akureykar, Samhljóms sem er fjölskyldu- og styrktarsjóður í Þingeyjarsýlsu, Styrktarsjóðs Húnvetninga, Kar- melsystra á Akureyri, Karmelítuklausturs í Hafn- arfirði og til kærleiksboðbera í Reykjavík. Verktakar á Suður- nesjum skoða mönnun fram- tíðarverkefna XuSamtök atvinnurekenda á Reykjanesi, SAR, boðuðu til fundar með nokkrum verk- tökum sem eru innan samtakana til að fara yfir þau verkefni sem eru framundan næstu árin á Reykjanesi. Voru kynnt verk- efni sem fyrirhugað er að fara í á næstu 15-20 árum fyrir um 200 milljarða. Góðar umræður voru á fundinum yfir hvernig hægt verði að manna þessi verkefni. Einnig rætt um að fjölga þarf iðnaðarmönnum og hvernig auglýsa skuli iðnaðarstörf sem framtíðarstarf fyrir ungt fólk. Að sögn Guðmundar Péturssonar formanns SAR var ákveðið að boða til fundar með öllum verktökum á svæðinu í lok janúar eða í byrjun febrúar og fara yfir stöðuna og hvernig bregðast megi við. Flugfreyja festi fingur í klukku- stund á salerni XuLenda þurfti farþegavél frá Turkish Airlines á Keflavíkur- flugvelli um helgina vegna flugfreyju sem hafði slasað sig um borð. Einnig hafði kven- farþegi veikst í fluginu og voru þær báðar fluttar á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja til aðhlynn- ingar. Flugfreyjan hafði fest tvo fingur í ruslaopi inni á sal- erni vélarinnar og sat þar föst í um klukkustund. Í vélinni var bráðaliði sem gat aðstoðað við að losa fingurna. Við skoðun á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja kom í ljós að fingur flugfreyjunnar voru óbrotnir og farþeginn fékk einnig leyfi hjá lækni til að halda áfram för sinni til áfangastaðar. Farþegavélin frá Turkish Airlines á Keflavíkurflugvelli um sl. helgi. Ljósmynd: Kjartan Guðmundur Júlíusson Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunar-fræðingur í Reykjanesbæ, hafði heppnina með sér þegar dregið var úr Jólalukkumiðum sem borist hafa í Nettó og Kaskó í Reykjanesbæ. Þegar dreginn var út þriðji iPhone 6S snjallsíminn var nafn Sigrúnar á miðanum. Hafsteinn Hafsteinsson á Hrauns- vegi 23 í Reykjanesbæ fékk ferða- vinning með Icelandair í sama út- drætti. Þá vann Oddný Ragna Fa- hning Vesturvegi 21 í Vestmanna- eyjum 15.000 kr. gjafabréf í Nettó. Sigrún var ánægð með að fá sím- ann, enda var hún að safna sér fyrir snjalltæki til að geta átt mynd- samtöl við börn og barnabörn í út- löndum. Margrét Hróarsdóttir, einstæð tveggja barna móðir og nemi í orkutæknifræði hjá Keili á Ásbrú var heldur betur með heppnina með sér í síðustu viku þegar Jóla- lukku-miði með hennar nafni var dreginn út í öðrum útdrætti í Jóla- lukku Víkurfrétta. Hún, eins og Sigrún, vann iPhone 6s. Það hafa fleiri haft heppnina með sér í Jólalukkunni. Einn af stærstu vinningum Jólalukkunnar, 55” flatskjár frá Nettó, er kominn fram. Það var Hrefna Gunnarsdóttir sem hlaut þann vinning. Hún er á einn- ig af myndunum sem fylgja þessari frétt ásamt Jóni Eyberg Helgasyni, starfsmanni Nettó í Reykjanesbæ. Síðasti útdráttur í Jólalukkunni verður að morgni aðfangadags. Það er því ástæða til að hvetja fólk til að skila lukkumiðum í kassana sem eru staðsettir í Nettó og Kaskó í Reykjanesbæ því ennþá er til mikils að vinna í þessum magnaða jólaleik Víkurfrétta og verslana. Sigrún hringir myndsímtöl í barnabörnin úr nýjum iPhone 6S Sigrún Ólafsdóttir með nýjan iPhone 6S. Hrefna Gunnarsdóttir vann 55” flatskjá frá Nettó á Jólalukkumiða. Samkaup úthluta styrkjum til samfélagsmála fyrir jólin Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa frá Grindavíkurkirkju, Velferðar- sjóði Suðurnesja og Njarðvíkurkirkju ásamt Bjarka Þór Árnasyni versl- unarstjóra.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.