Víkurfréttir - 22.12.2015, Blaðsíða 10
10 þriðjudagur 22. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Margrét Guðrún Svavars-dóttir hóf að stunda hnefa-
leika rétt um fermingu. Áður
hafði hún æft fimleika. Hún seg-
ist hafa fengið leið á fimleikunum
og langaði að prófa eitthvað
nýtt. Hún sló til og þótti íþróttin
gríðarlega skemmtileg. Margrét
sem núna er 17 ára og að margra
mati efnilegasta hnefaleikakona
landsins. Hún er ein kvenna sem
hefur hlotið svokallað silfur-
merki í íþróttinni en stefnan er
sett á gullið snemma á nýju ári.
Hvað var það sem heillaði Margréti
við hnefaleika? „Þetta er svo mikil
útrás sem þú færð á æfingum,“
segir Margrét sem öðlast hefur
aðra sýn á hnefaleika frá því að hún
kynnist íþróttinni fyrst. „Maður leit
á þetta sem einhver slagsmál og var
smá hikandi við að byrja. Þetta er
langt því frá að vera þannig. Þetta
er eins og skák þar sem þú hugsar
nokkra leiki fram í tímann.“ Hún
segir fjölskylduna sína hafa verið
hikandi í fyrstu varðandi boxið en
núna hafi þau mjög jákvætt viðhorf
í garð íþróttarinnar.
Kom heim með gull
frá Danmörku
Fyrsta ólympíska viðureign Mar-
grétar fór fram árið 2014 á alþjóð-
legu móti í Hvidovre, Danmörku.
Á mótinu hlaut hún gullverðlaun
fyrir að sigra sinn þyngdarflokk.
Hún er með í hópi þriggja fyrstu
Íslendinga til þess að snúa heim
með gullið af Hvidovre Box cup, og
eina konan. Sama ár hlaut hún gull
fyrir sigur sinn á móti Hnefaleika-
félags Kópavogs. Þessi afrek leiddu
til þess að hún var valin hnefaleika-
kona Reykjanesbæjar 2014. Til þess
að standast það álag sem hnefa-
leikakappar verða fyrir í bardaga
þarf mikla þjálfun og undirbúning.
„Þú þarft að prófa að verða fyrir því
álagi á æfingum með því að fara á
móti mismunandi andstæðingum.
Þannig finnur þú hvernig þú bregst
við mismunandi aðstæðum,“ segir
Margrét.
Stærsta mót hennar í ólympískri
grein núna í ár var á Grænlandi, en
þar mætti Margrét sínum harðasta
andstæðing til þessa. Margrét sýndi
mikla yfirburði í fyrstu og annari
lotu en var stöðvuð í þriðju lotu
á skrokkhöggi. Var það þó mikil
reynsla fyrir þessa ungu íþrótta-
konu. „Andlega geta hnefaleikar
verið mjög erfiðir og það getur
verið erfitt að koma sér í „mó-
mentið“. Þetta er ótrúlega stór hluti
af hnefaleikum og ef þú hefur ekki
þennan andlega hluta þá eru minni
líkur á því að ná langt. Ef þú nærð
ekki að einbeita þér þá mun þér
ekki ganga vel,“ segir Sandgerð-
ingurinn Margrét.
Keppir reglulega við stákana
Það hefur alltaf reynst erfitt að finna
andstæðinga fyrir Margréti, en
stelpur á þessum aldri og þyngdar-
flokk (75kg) eru ekki á hverju strái.
Það breyttist allt 2014 með tilkomu
diploma hnefaleika. Slík umgjörð
er gerð til að íþróttamenn geti sýnt
fram á tæknikunnáttu gegn and-
stæðingi óháð þyngd og kyni. Hún
hefur keppt flesta sína bardaga á
móti strákum yfir hennar þyngdar-
flokki en aldrei átt í neinum erfið-
leikum með það. Hún er mjög vön
því að fara gegn körlum á æfingu
og fyrir marga hefur það verið
auðmýkjandi reynsla að boxa við
hana. Hún var í hópi þeirra fyrstu
á landinu til að fá diploma í hnefa-
leikum hérlendis, en slíkar viður-
kenningar hafa ekki verið gefnar út
áður. Í febrúar síðastliðnum hlaut
hún bronsmerki í diploma fyrir
framúrskarandi einkunn í fimm
bardögum. Næst hlaut hún silfur
og var fyrst á landinu til þess, núna
í september. Á næsta ári stendur
hún til með að taka þátt m.a. í Ís-
landsmóti ásamt því að vinna sér
inn gullmerki í diploma, en eftir
einn bardaga til viðbótar verður
hún fyrsta stelpan til að ná þeim
árangri. Eini sem hefur fengið gull-
merki hingað til er æfingafélagi
hennar, Arnar Smári Þorsteinsson.
Hafa miklar mætur á Margréti
Björn Snævar Björnsson yfirþjálf-
ari Hnefaleikafélags Reykjaness
rifjar upp þegar þessi 13 ára stelpa
mætti fyrst á æfingar. „Hún hafði
eignileika til aðlögunar sem ekkert
okkar hafði orðið vitni að áður. Það
tekur örskamma stund fyrir hana
að skilja aðstæður,“ segir Björn.
Margréti var snemma boðið að
fara upp í keppnishóp til að sækja
æfingar 6 daga vikunna, með iðk-
endum sem eru lengra komnir.
Mæting hennar hefur alltaf verið
til fyrirmyndar að sögn þjálfarans.
Margrét er í miklum metum hjá
æfingafélögum sínum sem segja
hana vera m.a.: Óútreiknanlega,
skemmtilega, hreinskilina, óstöð-
vandi, ástríðufulla, metnaðarfulla
og heiðarlega.
Stefnir út fyrir landssteinana
Í framtíðinni sér Margrét fyrir sér
að fara erlendis að keppa í auknum
mæli. Þannig öðlist hún víðtæka
reynslu og kynnist mismunandi
stílbrigðum. „Ég tel mig vera mjög
höggþunga og það hefur reynst
mér vel. Ég spila inn á það og því
kannski lakari í vörninni. Ég er
sífellt að reyna að bæta það sem
ég er veikust í.“ Margrét er fremur
hávaxin og hún segir það vera
þægilegt að vera með lengri útlimi
en andstæðingurinn. Áhugavert
verður að fylgjast með Margréti
á nýju ári þar sem hennar bíða
spennandi verkefni.
-viðtal pósturu eythor@vf.is
Skák fremur en slagsmál
Sandgerðingurinn Margrét Guðrún er ein efnilegasta hnefaleikakona landsins
þökkum fyrir viðskiptin á árinu
sem er að líða og gleðilegt nýtt ár