Víkurfréttir - 22.12.2015, Qupperneq 15
15VÍKURFRÉTTIR • þriðjudagur 22. desember 2015
við þurfum ekki að vera stærst, við
þurfum bara að vera ánægð,“ segir
Róbert.
Verslun í bæjarfélaginu hefur
farið aðeins niður að þeirra mati.
„Þegar við byggðum hér þá var aðal
vandamálið að hér voru ekki bíla-
stæði í kring. Það hefur ekki verið
vandamál síðustu ár. Ég hugsa að
það verði nú ekki spennandi að
búa hérna ef verslanir hérna hverfa
hreinlega á brott,“ segir Róbert en
hann telur að bæjarbúar veriði að
standa saman í að tryggja verslun
og þjónustu á svæðinu.
Starfsfólkið á allt
sama afmælisdag
Fyrir tveimur árum stóðu hjónin
í ráðningum á starfsfólki og sóttu
margir frambærilegir um. „Það var
svo ráðið í þrjár stöður eftir viðtöl
og allt það ferli. Þá kemur það í ljós
að þau eru öll fædd sama daginn,
þann 4. október. Hverjar eru lík-
urnar á því, þetta er alveg einstakt,“
segir Hafdís og Róbert skellir upp
úr. „Þetta er rosalega þægilegt fyrir
okkur því nú er bara haldin ein af-
mælisveisla á ári fyrir starfsfólkið.“
„Það er alltaf voðalega gaman í
þessu en ætlum við þurfum ekki að
fara að huga að starfslokum, búin
að vera í þessu í fjörtíu ár ,. Ætli
hrunið hafi ekki seinkað okkur að-
eins í þeim málum. Núna síðustu
ár er verslun orðin góð aftur og
því er hægt að fara að skoða starfs-
lokin,“ segir Róbert en þau eru rétt
kominn á löglegan aldur til þess að
fara að huga að eftirlaunum.
„Við viljum svo óska öllum við-
skiptavinum og öðrum lands-
mönnum gleðilegra jóla og far-
sældar á nýju ári með þökk fyrir
ánægjuleg samskipti í 40 ár“ segja
þau Hafdís og Róbert að lokum.
pósturu eythor@vf.is
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
Kæliþjónusta
Gísla Wium
ÍSLANDSBLEIKJA
GRINDAVÍK