Víkurfréttir - 22.12.2015, Qupperneq 22
22 þriðjudagur 22. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Þorbjörg Magnea Óskars-dóttir, eða Tobba listakona,
eins og hún er betur þekkt, er með
mörg járn í eldinum í skúrnum
við húsið sitt. Þar málar hún
myndir, smíðar skartgripi, tafl-
borð, styttur af lundum, vitum
og krummum, gerir skúlptúra
og nú síðast aðventukransa. Þá
er aðeins fátt eitt nefnt. Tobba er
úr Njarðvík og byrjaði að mála í
kringum 16 ára aldurinn en hefur
fengist við sköpun alla tíð. „Ég
leiraði mikið með mömmu sem
krakki og fór svo síðar að mála.
Ég er með ADHD og lesblindu og
gekk mjög illa í grunnskóla. Ég
var alltaf teiknandi í bækurnar
í skólanum og það kom fyrir að
ég væri rekin úr tíma fyrir það,“
segir hún. Tobba sér sjálf um alla
smíðavinnu við listsköpunina og
á orðið gott safn verkfæra. ,,Það
má eiginlega segja að ég sé með
æði fyrir verkfærum því ég nota
þau mikið og safna þeim.“ Tobba
vinnur í föndurbúð á daginn en
sinnir svo listinni á kvöldin og um
helgar, fyrir utan að sinna syni sín-
um sem er 8 ára. Hún hefur líka
kennt á námskeiðum hjá Símennt
víða um land og segir það vera
mjög gefandi.
Hugmyndirnar koma á kvöldin
Hugmyndir að listaverkum koma
yfirleitt til Tobbu á kvöldin þegar
hún er að fara að sofa. Áður fyrr fór
hún því oft að skapa á nóttunni en
hætti því eftir að sonurinn fædd-
ist. Nú leggur hún hugmyndirnar á
minnið og hefst handa strax næsta
morgunn. Tobba er nú byrjuð að
undirbúa sýningu sem verður á
Ljósanótt. Þar ætlar hún að sýna
skúlptúra. „Þessir skúlptúrar fjalla
um það sem er að gerast í þjóðfélag-
inu. Þeir tákna ýmist sorg, kvíða,
einmanaleika eða ofbeldi. Svo er
einn þeirra sem táknar geðrof,“ út-
skýrir Tobba. Vinkona hennar fékk
geðrof og fannst Tobbu á lýsing-
unum frá henni að það væri eins
og að vera með fíl í höfðinu því fólk
skynjar hluti sem aðrir gera ekki,
eins og bleika fíla. Sá skúlptúr er
því manneskja með bleikan fíl inni
í hausnum.
Vildi gera sinn eiginn krans
Skúlptúrar Tobbu hafa verið til sölu
í versluninni Smíði og skart við
Skólavörðustíg í Reykjavík og hafa
notið mikilla vinsælda. Hún hefur
einnig málað myndir af norðurljós-
unum sem ferðamenn hafa verið
hrifnir af. Tobba rak áður Gallerý 8
með nokkrum öðrum listakonum
við Hafnargötuna en starfsemin
fjaraði svo út. Þær hafa nú opnað
jólamarkað í húsnæðinu og eru að-
ventukransarnir fáanlegir þar. Um
tilurð kransanna segir Tobba að
hana hafi langað til að gera sinn
eiginn krans. „Það kom tískubóla
fyrir ári síðan og allir gerðu kransa
úr trékúlum. Ég vildi gera eitthvað
öðruvísi og gerði því mína eigin.
Svo hefur fólk verið hrifið af þeim,
enda ekki mikið úrval af krönsum
til sölu.“ Engir tveir kransar eru
eins hjá Tobbu.
Er mikið jólabarn
Tobba er mikið jólabarn og hlakkar
alltaf til jólanna. Hún ætlar að
skreyta heimilið í vikunni með
syni sínum en þau ætla svo að verja
jólunum í Glasgow hjá mömmu
Tobbu. Á aðfangadagskvöld verður
kalkúnn á veisluborðinu og svo
íslenskur lambahryggur á jóla-
dag. „Ég tek rauðkálið og annað
íslenskt og ómissandi með mér út.
Við ætlum líka að hafa kjötsúpu
einhvern tíma um jólin og ég fer
með hráefni í hana með mér út.
Það verður gaman um jólin núna
eins og alltaf.“
Hátíðarguðsþjónustur
Aðfangadagur 24. desember
Jólin allstaðar, hátíðar
barna- og fjölskyldustund
kl. 16:00
Jólaguðspjall sett upp
og jólasálmar sungnir.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 18:00
Nóttin var sú ágæt ein kl. 23:30
Miðnæturstund í kirkjunni.
Söngsveitin Kóngarnir syngja
undir stjórn Arnórs Vilbergssonar.
Jóladagur 25. desember
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00
Helgistundir á stofnunum á Jóladag
Kl. 13:00. Helgistund
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Kl. 15:00 Nesvellir - hjúkrunarheimili
Kl. 15:30 Hlévangur - hjúkrunar-
heimili
Gamlársdagur 31. desember
Hátíðarguðsþjónusta kl. 18:00.
Nýársdagur 1. janúar
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00.
Kjartan Már Kjartansson flytur
hátíðarræðu.
Kór Keflavíkurkirkju, messuþjónar,
organisti og prestar þjóna við
hátíðarguðsþjónustur.
Útvarpað verður frá Keflavíkurkirkju
á Hljóðbylgju Suðurnesja fm 101.2
yfir jól og áramót í Keflavíkurkirkju
Er með
æði fyrir
verkfærum
Tobba listakona ætlar að dvelja í Glas-
gow um jólin hjá mömmu sinni. Tobba er
þúsundþjalasmiður og skapar ýmis konar list
í skúrnum við hús sitt, þar á meðal fallega að-
ventukransa.
Einn skúlptúra Tobbu heitir Geðhvörf.
Sá er af manneskju með bleikan fíl inni
í hausnum því þannig túlkaði Tobba
lýsingar konu sem hafði fengið geðhvörf.