Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2016, Page 2

Víkurfréttir - 17.03.2016, Page 2
2 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR Helguvíkurhöfn hagnast um tugi milljóna króna á ári með aukinni flugumferð. Á síðasta ári komu tólf olíuflutningaskip til hafnar í Helgu- vík með flugvélaeldsneyti fyrir Kefla- víkurflugvöll. Hver skipakoma skilar milljónum í annars auralítinn kassa hafnarinnar. Þegar olíuflutningaskip leggst að bryggju í Helguvík þá skiptir máli hversu stórt skipið er í brúttótonnum. Þannig getur þriggja sólarhringa stopp hjá 25.000 brúttótonna skipi skilað 1.560.250 krónum í skipagjöld og 15.000 brúttótonna skip skilar 827.250 krónum fyrir sama tíma. Þá skiptir miklu máli hversu miklum farmi er skipað upp. Á hvert tonn af eldsneyti sem er dælt frá borði leggjast 355 krónur. Það þýðir að þúsund tonn af eldsneyti skila 355.000 krónum til hafnarinnar. 1.000 tonn eru því 355.000 krónur og 20.000 tonn skilja eftir sig 7,1 milljón króna. Að meðal- tali var skipað upp 18.000 tonnum af flugvélaeldsneyti í hverri skipakomu olíuskipa á síðasta ári og þær voru tólf, eins og áður hefur komið fram og eldsneytistonnin 216.000. Þá borga skipin sérstaklega fyrir hafnsöguþjón- ustu og fyrir lóðsbáta. Halldór Karl Hermannsson, hafnar- stjóri Reykjaneshafnar, sagði í samtali við Víkurfréttir að þessar skipakomur skipti höfnina miklu máli. Með auk- inni flugumferð til landsins á þessu ári má annað hvort búast við fleiri olíu- flutningaskipum eða stærri skipum. Aðstæður til að taka á móti olíuflutn- ingaskipum í Helguvík eru góðar. Þannig er höfnin í Helguvík það djúp að hingað koma olíuskip á leið til Nor- egs til að létta sig áður en þau sigla inn Oslóarfjörð með eldsneyti fyrir Gardemoen-flugvöll. Flugvélaelds- neytið kemur hingað m.a. frá Suður- Ameríku en hingað sigla skipin frá Venesúela og skilja eftir hluta farmsins hér áður en haldið er áfram til Noregs. Flugið eykur hag Helguvíkurhafnar ●● Olíuskip●á●leið●til●Noregs●skilja●eftir●hluta●af●farmi●í●Helguvík ●● 20.000●tonn●af●flugvélaeldsneyti●skilja●eftir●rúmar●7●milljónir●í●Reykjanesbæ Icelandair stundvísasta félagið ■ Icelandair var stundvísasta flugfélagið frá Keflavíkurflugvelli í febrúar en easyJet var stundvísast í janúar. Hlutfall brottfara Icelandair á réttum tíma voru 79% og hlutfall lendinga á réttum tíma voru 70%. Sömu hluföll hjá WOW air voru 69% við brottfarir og 50% við lendingar. easyJet er með versta hlutfall brottfara á réttum tíma, eða 66%, en besta hlutfall lendinga á réttum tíma, eða 80%. Þegar skoðuð eru heildarhlutföll flugferða á réttum tíma er Icelandair með besta hlutfallið eða 75%, easyJet er næst með 73% og WOW air er með 60% hlutfall. SUMARSTÖRF Í VOGUM 2016 Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá sveitarfélaginu sumarið 2016. Stöður okkstjóra í vinnuskóla Flokkstjóri starfar undir stjórn forstöðumanns umhvers og eigna. Hann stjórnar star vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild, er uppbyggilegur og til fyrirmyndar. Flokkstjóri verður að hafa bílpróf og geta hað störf í lok maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu. Flokkstjóri skal vera á 19. aldursári eða eldri. Umsjónarmaður leikjanámskeiðs Leitað að einstaklingi til að sjá um námskeið sumarsins. Umsækjendur þurfa að geta skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum. Skilyrði er að umsækjandi sé á 19. aldursári eða eldri. Sumaraeysingar í íþróttamiðstöð Um er að ræða störf við afgreiðslu, þrif, gæslu á böðum, laugarvörslu og annað tilfallandi. Starfsmaður þarf að standast hæfnispróf sundstaða, vera stundvís og geta unnið undir álagi. Skilyrði er að umsækjandi sé  20 ára eða eldri. Starfsmaður verður að geta hað störf í júní. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu. Unnið er á vöktum. Vinnuskóli, félagsmiðstöð og íþróttamiðstöð eru tóbakslausir vinnustaðir. Umsóknarfrestur fyrir umrædd störf er til 1. apríl 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja. Námsmenn jafnt sem atvinnuleitendur, karlar og konur eru hvött til að sækja um ofangreind störf. Nánari upplýsingar um störn veita frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225 og forstöðumaður umhvers og eigna gsm 893 6983. Umsókn sendist rafrænt á stefan@vogar.is eða skilist á pappír á skrifstofu Sveitarfélagsins. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsmiðstöðvar, í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar eða á skrifstofu Sveitarfélagsins. Vikan sem er að líða var viðburðarík hjá þingmanninum Páli Vali Björns- syni úr Grindavík en sá fágæti atburður átti sér stað á Alþingi á þriðjudag að tvö þingmál þingmanns úr minna- hluta voru samþykkt samhljóða. Páll Valur er þingmaður Bjartrar fram- tíðar og tilheyrir því minnihlutanum á Alþingi. Annars vegar var það þingmál hans um breytingu á lögum um fæðingarorlof fyrir foreldra sem eignast andvana börn eftir 22. vikna meðgöngu sem var samþykkt. Hins vegar þingsályktunartillaga um að 2 0 . n ó v e m - ber á ári hverju verði helgaður f r æ ð s l u u m mannrétt indi barna í skólum landsins. Upphafið að því að Páll Valur ákvað að leggja ti l breytingar á l ö g u m u m fæðingarorlof má rekja til þess er hjónin Einar Árni Jóhanns- son og Guðmunda Guðlaug Sveins- dóttir vöktu athygli á því að samtals áttu þau aðeins rétt á þriggja mánaða fæðingarorlofi eftir að hafa eignast andvana dóttur, Önnu Lísu, þann 5. september 2014. Lögunum var breytt á þann veg að hvort foreldri um sig fær þrjá mánuði í fæðingarorlof. Páll Valur segir þetta mikið réttlætismál. „Ég vildi ná fram fullu fæðingarorlofi, 9 mánuðum, fyrir foreldra sem hafa eignast andvana barn en það eru alltaf málamiðlanir í pólitík. Þetta var gott skref sem ég er mjög ánægður með og heyri úti í samfélaginu að margir eru ánægðir með að þetta hafi verið samþykkt.“ Páll Valur er með kennaramenntun og vann áður með Einari Árna í Njarð- víkurskóla. „Þau komu fram í fjöl- miðlum og skoruðu á okkur þing- menn að breyta þessu. Ég tók við boltanum frá þeim og hélt áfram með málið. Til þess er ég,“ segir hann. Páll kveðst alla tíð hafa haft mikinn áhuga á málefnum barna. Í samstarfi við UNICEF, Barnaheilla og Umboðs- mann Barna hefur hver flokkur skipað einn þingmann sem talsmann barna á Alþingi og gegnir Páll Valur því hlutverki fyrir Bjarta framtíð. Hann kveðst hafa tekið hlutverkið alvarlega og hefur síðan hann tók við því unnið að því að 20. nóvember ár hvert verði helgaður mannréttindum barna og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. „Hugmyndin er að á þeim degi verði sáttmálinn kynntur fyrir börnum og meira gert úr honum. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að allir dagar eigi að vera helgaðir mannréttindum barna en þetta er fyrsta skrefið í þá átt að kynna sáttmál- ann betur fyrir börnum.“ Samkvæmt ný- legri könnun MMR treysta aðeins 17 pró- s e n t l a n d s - manna Alþingi og oft heyrist í umræðunni að þingmenn eigi erfitt með að v inna saman til heilla fyrir landsmenn. Að- spurður hvort að tíðindi vikunnar gefi tilefni til bjartsýni um að það sé að breytast segir Páll Valur að alltaf eigi að vera bjartsýnn og ekki síst í starfi þingmannsins. „Ég fór af stað í pólitík með það að fororði að bæta vinnu- brögð og vinna að meiri sátt. Það er oft erfitt. Það er búinn að vera mikill órói í samfélaginu og það er slæmt hvað Alþingi mælist með lítið traust því þetta er ein af mikilvægustu stofn- unum samfélagsins. Auðvitað eigum við að reyna að gera allt sem við getum til að vinna saman og samþykktirnar auka mér bjartsýni.“ Hann segir að alþingismenn yfir höfuð séu gott fólk sem leggi sig allt fram en hafi mis- jafnar skoðanir. „Þessi pólitíski kúltúr hefur verið helsjúkur lengi og það þarf að laga þennan sjúkling sem pólitíkin er. Ég hef tamið mér það sem þing- maður að koma vel fram við alla og hef kannski áunnið mér smá virðingu með því. Við eigum alltaf að geta talað okkur niður á lausnir en það eru auð- vitað alltaf einhver mál sem um ríkir ágreiningur og þá ræður meirihlut- inn.“ Tvö þingmál Páls Vals samþykkt samhljóða AÞ-Þrif is looking for people to hire. Must speak english or icelandic. Preferably between 20–40 years of age. Driving license and clean criminal record is required. Please send application via email at gerda@ath-thrif.is titled “Job”. NEED A JOB? Skeiðarási 12 210 Garðabæ Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar Olíuflutningaskipið Unique Explorer frá Hong Kong kemur til Helguvíkurhafnar sl. föstudag. VF-mynd: Hilmar Bragi

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.