Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2016, Page 7

Víkurfréttir - 17.03.2016, Page 7
8 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR HÆKKUN ÚTSVARS NESVELLIR Bókasafn Reykjanesbæjar MYNDASÖGU- NÁMSKEIÐ LAUS STÖRF HLJÓMAHÖLL VIÐBURÐIR FRAMUNDAN Vakin er athygli á því að þótt álagningarprósenta útsvars í Reykjanesbæ hafi hækkað þ. 1. janúar 2015 í 15,05% mun inn- heimt útsvarshlutfall áfram verða það sama um allt land þ.e. 14,44%. Þetta er vegna innheimtureglna Fjársýslu ríkisins sem sér um innheimtu fyrir ríki og sveitarfélög. Leiðrétting til hækkunar mun svo koma fram við álagningu og uppgjör þann 1. júlí 2016, byggt á skattaskýrslum fyrir 2015. Bæjarbúum er ráðlagt að búa í haginn fyrir bakreikninginn sem þá mun líklega berast vegna þessa. Léttur föstudagur 18. mars kl. 14:00.  Sönghópurinn Uppsigling mætir. Allir hjartanlega velkomnir. Myndasögunámskeið fyrir 12 – 99 ára hefst í Bókasafni Reykjanesbæjar þriðjudaginn 22. mars frá klukkan 16.15- 17.15.  Námskeiðið verður í 4 vikur, alltaf á þriðjudögum frá klukkan 16.15-17.15 og er frítt.  Afrakstur námskeiðs verður að myndasögusýningu í safninu. Nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið í netfangið  bokasafn@reykjanesbaer.is eða í afgreiðslu safnsins. Miðvikudaginn 23. mars verður páskaföndur á bókasafn- inu frá klukkan 15.00 – 17.00. Það kostar ekkert og allir hjartanlega velkomnir. Ertu í atvinnuleit? Reykjanesbær auglýsir eftir starfsfólki í margvísleg störf. Yfirlit yfir laus störf er að finna á vef Reykjanesbæjar, á slóðinni www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf. Þar er einnig hægt að skila inn almennum umsóknum. 17. mars – Helga Bryndís píanisti, einleikstónleikar 7. apríl – Söngvaskáld á Suðurnesjum – Jóhann Helgason 15. apríl – Jón Jónsson ásamt hljómsveit Allar nánari upplýsingar og miðasala á www.hljomaholl.is og í síma 420 1030. Grindvíkingurinn Björn Valur Páls- son hefur látið að sér kveða í raf- og hip hop tónlistarsenunni á Íslandi. Hann mun eiga nokkur lög á næstu plötu Emmsjé Gauta sem er væntan- leg innan skamms auk þess sem hann hefur unnið talsvert með strákunum í Úlfi Úlfi en þar er einnig að fæðast nýtt efni. Björn sem er 24 ára fékk snemma áhuga á tónlist og stundaði á sínum yngri árum nám í Tónlistarskóla Grindavíkur þar sem hann spilaði á gítar og trommur. Hann var eitt- hvað að grúska í hljómsveitum en á unglingsárum kviknaði áhugi Björns á raf- og rappónlist. Snemma fór hann að starfa sem plötusnúður á skemmti- stöðum og víðar en hann hafði ávallt hug á því að gera sína eigin tónlist. Hann ákvað fyrir tæpum tveimur árum að bregða sér til Bandaríkjanna þar sem hann nam svokallaða pródú- seringu í tónlist í góðum skóla í Los Angeles. Þar lærði hann handtökin í bransanum og allt um nútímatón- list og hvað einkennir hana. Björn segir að með tækninni í dag sé hægt að fara ansi langt í tónlistarsköpun. „Það má allt og þú getur gert það sem þú vilt. Vinsælasta tónlistin í dag er kannski frá einhverjum 17 ára gutta sem fann einhverja svala hljóma og bætir trommum við. Svo kemst það í hendurnar á einhverjum rappara sem fleytir tónlistinni enn lengra,“ segir Björn. Hjálpar að hafa góðan grunn í tónlist Eftir að áhuginn á tónlist kviknaði þá varð Björn sér úti um tæki og tól til þess að fikra sig áfram í að skapa eigin tónlist. „Ég fór að fikta í þessu og vildi sjá hversu erfitt það væri að gera takta sjálfur,“ segir Björn sem hrífst mikið af tónlist með miklum bassa. „Það hjálpaði mér mikið að hafa kunnað á trommur áður en ég fór að gera tón- list.“ Hann segir ekki beint auðvelt að gera þessa tegund tónlistar en mikil- vægt sé að þekkja tónlist vel og vita hvað getur virkað saman. „Þetta er orðið mun aðgengilegra í dag með öllum þessum forritum sem eru í boði. Þú getur fundið svo mikið af upplýs- ingum á netinu um hvernig á að gera hlutina og þannig getur þú komið þér áfram. Svo er undir þér komið hversu vel þú vilt hljóma og þá er það bara meiri vinna sem felst í því.“ Á menn- ingarviku Grindavíkur var Björn með námskeið fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á raftónlist. Björn lauk skólagöngu sinni í Los Angeles á síðasta ári þar sem hann út- skrifaðist sem dúx frá skólanum. Eftir heimkomu hefur hann verið gjörsam- lega á kafi í tónlistinni og þá aðal- lega með Emmsjé Gauta og Úlfi Úlfi þar sem þeir félagar spila um land allt flestar helgar. Björn er með nokkur lög á næstu plötu Gauta en þeir fé- lagar eru einnig að vinna að mixteipi sem kemur út fljótlega eftir plötuna. Björn segist ekki spá mikið í því hvort litið sér niður á hip hop tónlist á Ís- landi en tónlistin nýtur gríðarlega vinsælda þrátt fyrir að hljóta kannski ekki mikillar hylli svokallaðra tón- listarspekinga. Sem dæmi þá var ansi umdeilt hve rýr uppskera rapp- ara var á Íslensku tónlistarverðlaun- unum síðustu. „Ég hef ekkert verið að hugsa um það sem aðrir segja og geri bara það sem ég fíla. Ætli það sé ekki gamla fólkið sem er ekki alveg búið að kveikja á þessari tónlist. Það er þó að síast inn hægt og rólega,“ segir Björn léttur að lokum. Allt leyfilegt í raftónlist ●● Björn●Valur●vinnur●tónlist●með●Emmsjé●Gauta●og●Úlfi●Úlfi KYNNING TILLÖGU AÐ BREYTINGU Á DEILISKIPULAGI fyrir iðnaðarsvæði við Vogabraut, Sveitarfélaginu Vogum. Sveitarfélagið Vogar auglýsir hér með kynningu tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna breyttrar staðsetningar á fyrirhugaðri súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju sem til stendur að reisa á iðnaðarsvæðinu við Vogabraut, skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan verður til sýnis og umræðu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2 þriðjudaginn 22. mars nk. á milli kl. 15:30-16:30. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is. Í kjölfar kynningarinnar verður tillagan tekin til umöllunar í bæjarstjórn til samþykktar fyrir formlega auglýsingu hennar. Gefst þá tækifæri til að gera formlegar athugasemdir við tillöguna innan tilskilins athugasemdafrests. Vogum, 17. mars 2016 Skipulags- og byggingarfulltrúi

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.