Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2016, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 17.03.2016, Blaðsíða 9
10 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR ATVINNA Blaðberi óskast til að bera út Morgunblaðið í Inri-Njarðvík. Upplýsingar gefur Kristrún í síma 862 0382. „Þetta byrjaði sem áhugamál en er nú farið að taka yfir flest annað,“ segir Guðrún Marteinsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Há- skóla Íslands og frumkvöðullinn á bak við fyrirtækið Taramar. Krem frá fyrirtækinu Taramar eru framleidd í Sandgerði komu fyrstu vörurnar á markað í október síðastliðnum. Á dögunum setti fyrirtækið fjórðu vöruna á markað sem er næturkrem. Elín Þ. Þorsteinsdóttir er markaðs- stjóri Taramar og saman annast hún og Guðrún daglegan rekstur fyrir- tækisins. Framleiðsla kremanna fer fram í Sandgerði en skrifstofan er í Nýsköpunar- miðstöð Íslands. Báðar hafa þær Guð- rún og Elín sterka tengingu til Suður- nesja. Eiginmaður Guðrúnar, Kristberg Kristbergsson, er úr Grænásnum. Elín ólst upp í Keflavík og er dóttir Þor- steins Kristinssonar, grunnskólakennara og Helgu Þorkels- dóttur. „Það var vel til fundið að finna framleiðslunni stað í Sandgerði. Þar er mikil þekking til staðar enda hafa verið gerðar rannsóknir í Þekkingar- setrinu um árabil. Þá höfum við einkar hentungt húsnæði í Vörðunni,“ segir Guðrún. Starfsmenn Taramar eru samtals átta og nú styttist í að þörf verði á fólki í hlutastörf við framleiðsl- una í Sandgerði. Afrakstur áralangra rannsókna Guðrún hefur unnið að þróun húðvaranna frá árinu 2005 og eru þær afrakstur áralangra rannsókna hennar og samstarfsfólks við Háskóla Íslands. Hún segir sífellt fleiri gefa því gaum hvaða efni snyrtivörur innihaldi enda eru vörur Taramar framleiddar eftir hugmyndafræði „slow cosmetics“ þar sem gæði ráða för fremur en magn. „Því miður er það svo að margar snyrtivörur innihalda efni sem eru hreinlega skaðleg. Sum hver eru jafn- vel talin valda krabbameini og önnur eru undir sterkum grun um að klofna í formalin þegar þau eru borin á húðina. Það er talið að konur sem nota húðvörur að staðaldri getið tekið allt að tvö til þrjú kíló af efnum upp í gegnum húðina á ári hverju. Þetta eru auðvitað ekki allt hættuleg efni en mörg af erfiðustu efnunum, svo sem hin eiginlegu rotvarnarefni, eru oft tekin hratt upp í gegnum húð,“ segir Guðrún. Vandamálið er að almennt þá þekkji neytendur ekki þessi efni og eiga erfitt með að forðast þau. Þetta varð hvatinn að því að þessi vinna fór af stað og útkoman eru af- burða hreinar og öruggar húðvörur sem byggja á lífvirkum efnum úr sjávarfangi og lækninga- jurtum. „Lífvirku efnin í kremunum frá Taramar koma úr þörungum sem eru handt índir á hreinum svæðum í Breiðafirði og úr lækn- ingajurtum frá Móður jörð. Vörurnar eru sér- stakar að því leiti að þær hafa mikla virkni og eru mjög hreinar og byggja á nýsköpun og rannsóknum,“ segir Guðrún. Nota engin hefðbundin rotvarnarefni „Lífvirku efnin sem við höfum rann- sakað og einangrað eru mjög hvarf- gjörn og þola illa sólarljós. Því lögðum við mikla áherslu á það við hönnun umbúða að þessi efni væru varðveitt og að neytandinn fengi að njóta eigin- leika þeirra eins og þau væru ný. Því eru Taramar vörurnar framreiddar í svörtu gleri. Þá innihalda kremin frá Taramar ekki nein hefðbundin rot- varnarefni né önnur efni sem geta haft neikvæð áhrif á húðina eða starfsemi líkamans,“ segir Guðrún. Endingartími kremanna frá Taramar er tiltölulega stuttur, eða um sjö til ellefu mánuðir en eftir þann tíma fer lífvirknin dvínandi. Hafa fengið góðar móttökur Elín Þorsteinsdóttir, markaðsstjóri Ta- ramar, segir viðtökurnar hafa verið góðar, enda höfði kremin til breiðs hóps. „Annars vegar er það fólk sem kýs hreinar og öruggar vörur og hins vegar fólk sem vill tæknilegar vörur með mikilli virkni og sýnilegum árangri.“ Hún segir flesta viðskipta- vinina vera konur en að þó nokkrir karlar séu einnig meðal viðskipta- vinanna og þá oft karlar sem tengjast þeim konum sem nota vörurnar. „Við höfum heyrt frá ótalmörgu fólki sem er með húðvandamál og hefur ekki fundið krem við hæfi en hefur getað notað vörurnar frá Taramar og það er mjög ánægjulegt,“ segir hún. Eignarhaldsfélag Suðurnesja er kjöl- festufjárfestir í Taramar. Nýjar leiðir hafa verið farnar í markaðssetningu og byggjast á svokölluðum B-hlut- höfum. „Þá fjárfestir fólk í fyrirtækinu fyrir að lágmarki 100.000 krónur og nýtur arðs af fjárfestingunni og ýmissa fríðinda, eins og að hafa kost á því að versla vörurnar á lægra verði en gengur og gerist í búðum. Í hópnum er einnig fólk sem prufar vörurnar á þróunarstigi,“ segir Elín. B-hluthaf- arnir eru nú hátt í 200 og segir Elín þá gegna veigamiklu hlutverki. „Hópur- inn breiðir út hróður kremanna og hefur reynst mjög öflugt markaðstæki. Þannig hafa skapast góð tengsl á milli fyrirtækisins og þessara eigenda sem skila sér í miklu umtali og útbreiðslu upplýsinga, meðal annars í gegnum Facebook-síðu Taramar.“ FRAMLEIÐA KREM ÚR SJÁVAR- FANGI OG LÆKNINGAJURTUM ●● Nýsköpunarfyrirtækið●Taramar●framleiðir●húðvörur●í●Sandgerði ●● Neytendur●meðvitaðir●um●innihald●snyrtivara Því miður er það svo að margar snyrtivörur innihalda efni sem eru hreinlega skaðleg Nokkrar stöður tollvarða í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli eru lausar til umsóknar hjá embætti Tollstjóra. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi störf sem henta jafnt konum sem körlum. Í tengslum við ráðningu þarf að þreyta þríþætt inn- tökupróf, bæði skriflegt og líkamlegt, en nánari upplýsingar um það er að finna á www.tollur.is. Starf tollvarða felur m.a. í sér: • Eftirlit með skipum, flugvélum, farþegum og áhöfnum. • Eftirlit og skoðun vörusendinga og tollskjala. • Sérhæfðar leitir svo sem í bílum, með gegnumlýsingarbúnaði o.s.frv. • Greining á áhættu vöru- og farþegaflæðis. Menntunar- og hæfniskröfur: • Stúdentspróf eða menntun sem má meta til slíks náms. • Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Góðir greiningarhæfileikar. • Gott andlegt og líkamlegt atgervi. • Samviskusemi, nákvæmni og traust vinnubrögð. • Hæfni í mannlegum samskiptum. • Almenn ökuréttindi. • Hreint sakavottorð. Reynsla og þekking úr öðrum störfum nýtist vel í starfi toll- varða. Háskólamenntun er einnig eftirsóknarverð þar sem í mörgum verkefnum er áhersla á greiningarhæfni, talnalæsi, tölfræði, skýrslugerð og tölvufærni. Nánari upplýsingar um starfið veita Kári Gunnlaugsson og Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir, í síma 560-0300. Umsóknarfrestur er til 29. mars nk. Sótt er um starfið rafrænt á www.tollur.is/laus-storf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Tollvarðafélags Íslands. Um starfskjör, rétt- indi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Gildi Tollstjóra eru traust, samvinna og framsækni. Ráðn- ingar hjá embættinu taka mið af þeim. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. TOLLVÖRÐUR SPENNANDI STARF Í LIFANDI UMHVERFI AÐALFUNDUR Verslunarmannafélags Suðurnesja verður haldinn að Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ, þriðjudaginn 22. mars nk. kl. 18:00. DAGSKRÁ Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins Stjórn Verslunarmannafélags Suðurnesja

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.