Víkurfréttir - 17.03.2016, Blaðsíða 15
16 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR
■ Drífa Thorstensen er umsjónar-
kennari 3. bekkjar í Vogum. Hún
hefur beitt áhugaverðum aðferðum
til að efla áhuga nemendanna á
læsi. „Ég held að þetta hafi byrjað
m e ð a ð fe rð a f r æ ð i n n i
„Pals“ þar sem nemendur
lesa saman tveir og tveir,“
segir hún. Aðferðin bygg-
ist á því að þeir nemendur
sem eru paraðir saman eru
mis sterkir í lestri. Sá sem
er kominn lengra í lestri les
fyrst texta upphátt. „Þann-
ig fær hinn smjörþefinn
af efninu áður en röðin
kemur að honum. Sterkari
lesararnir eru farnir að
leiklesa og hin gera eins og
þannig hjálpast þau að,“ útskýrir
Drífa.
Drífa hefur einnig nýtt aðferðina
„Að skrifa sér til læsis“ sem gengur
út að vinna mikið með texta í tölvu,
nota lyklaborðið og tileinka sér lestur
með því að vinna með bókstafina.
Hún segir algengt að nota aðferðina
þrisvar sinnum í viku yfir afmarkað
tímabil en að hún noti hana þrisvar
sinnum í viku alla önnina. „Nú er
aðferðin hluti af rútínunni hjá okkur.
Mér finnst hún hafa hjálpað nem-
endunum og eflt þau.“
Nemendurnir í 3. bekk, og þar sem
talinn Bragi, hafa skrifað
sögur í hverri viku síðan í
1. bekk. Þá handskrifuðu
þau sögurnar en notast
núna meira við lyklaborð
og tölvur. „Með tölvunum
kemur mikill áhugi hjá
þeim. Þá eru þau ekki eins
mikið að einbeita sér að
skriftinni, heldur að hugsa
um að koma hugsuninni
frá sér og ekki að pæla í því
hvernig stafirnir líta út. Þeir
koma réttir eins og í texta í
bókum.“
Drífa tekur Braga sem dæmi um það
hvernig nemendurnir læra hver af
öðrum. „Áhuginn hjá honum hafði
áhrif svo hinir nemendurnir fóru að
gera eins og hann. Nú er þetta orðið
þannig að einn lærir eitthvað og
miðlar þeirri þekkingu til næsta. Þau
eru mjög áhugasöm. Getan skiptir
engu máli og hver gerir sitt á sínum
forsendum.“
Bragi Hilmarsson, 8 ára nemandi í 3.
bekk í Stóru-Vogaskóla í Vogum, gaf
á dögunum út sína fyrstu bók. Bókin
heitir Ömurleg helgi hjá Pétri og
fjallar um drenginn Pétur sem er sífellt
er stríða Óla bróður sínum. Bókin er
44 síður og eru tvö eintök til útláns á
Bókasafninu í Vogum. Kennari Braga
er þessa dagana að lesa bókina fyrir
3. bekk. Bragi segir gaman að hlusta
á lesturinn enda sé hann eiginlega
búinn að gleyma því hvernig bókin
byrjaði.
Bragi segir söguna uppspuna og
ekki endurspegla samskipti hans við
bróður sinn. Aðspurður að því hvaðan
hugmyndirnar komi kveðst hann ekki
alveg viss. „Ég byrjaði að finna nöfn
á persónurnar og svo byrjaði ég bara
að skrifa,“ segir hann. Í framtíðinni
dreymir Braga um að verða fótbolta-
maður en segir aldrei að vita nema
hann fáist líka við skrif. Bragi er þegar
byrjaður á næstu bók sem ber titilinn
Annar í jólum hjá Pétri. Bragi skrifar
sögurnar í tölvu og segir það ekkert
svo erfitt að nota fingrasetningu á
lyklaborði og skrifa rétt.
Duglegir lestrarhestar í 3. bekk
Ungur rithöfundur í Vogum
●● Sendi●frá●sér●44●síðna●bók●um●bræður.● Er●þegar●byrjaður●á●næstu●bók
Drífa
Thorstensen,
umsjónar-
kennari
3. bekkjar í
Vogum
Filmumyndavél
vinsæl fermingargjöf 1980
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
6
-0
6
1
9
Framtíðarreikningur
– í fullu gildi í framtíðinni
Með því að leggja fermingarpeningana inn á Framtíðarreikning
auðveldar þú þér að láta framtíðardraumana rætast.
Fermingargjafir eldast misvel og með því að spara tryggir
þú að gjöfin þín nýtist í framtíðinni.
Framtíðarreikningur Arion banka ber alltaf hæstu vexti
verðtryggðra sparnaðarreikninga okkar og er bundinn til
18 ára aldurs.
Ef 30.000 kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning
leggjum við 5.000 kr. á móti.