Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2016, Síða 15

Víkurfréttir - 17.03.2016, Síða 15
16 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR ■ Drífa Thorstensen er umsjónar- kennari 3. bekkjar í Vogum. Hún hefur beitt áhugaverðum aðferðum til að efla áhuga nemendanna á læsi. „Ég held að þetta hafi byrjað m e ð a ð fe rð a f r æ ð i n n i „Pals“ þar sem nemendur lesa saman tveir og tveir,“ segir hún. Aðferðin bygg- ist á því að þeir nemendur sem eru paraðir saman eru mis sterkir í lestri. Sá sem er kominn lengra í lestri les fyrst texta upphátt. „Þann- ig fær hinn smjörþefinn af efninu áður en röðin kemur að honum. Sterkari lesararnir eru farnir að leiklesa og hin gera eins og þannig hjálpast þau að,“ útskýrir Drífa. Drífa hefur einnig nýtt aðferðina „Að skrifa sér til læsis“ sem gengur út að vinna mikið með texta í tölvu, nota lyklaborðið og tileinka sér lestur með því að vinna með bókstafina. Hún segir algengt að nota aðferðina þrisvar sinnum í viku yfir afmarkað tímabil en að hún noti hana þrisvar sinnum í viku alla önnina. „Nú er aðferðin hluti af rútínunni hjá okkur. Mér finnst hún hafa hjálpað nem- endunum og eflt þau.“ Nemendurnir í 3. bekk, og þar sem talinn Bragi, hafa skrifað sögur í hverri viku síðan í 1. bekk. Þá handskrifuðu þau sögurnar en notast núna meira við lyklaborð og tölvur. „Með tölvunum kemur mikill áhugi hjá þeim. Þá eru þau ekki eins mikið að einbeita sér að skriftinni, heldur að hugsa um að koma hugsuninni frá sér og ekki að pæla í því hvernig stafirnir líta út. Þeir koma réttir eins og í texta í bókum.“ Drífa tekur Braga sem dæmi um það hvernig nemendurnir læra hver af öðrum. „Áhuginn hjá honum hafði áhrif svo hinir nemendurnir fóru að gera eins og hann. Nú er þetta orðið þannig að einn lærir eitthvað og miðlar þeirri þekkingu til næsta. Þau eru mjög áhugasöm. Getan skiptir engu máli og hver gerir sitt á sínum forsendum.“ Bragi Hilmarsson, 8 ára nemandi í 3. bekk í Stóru-Vogaskóla í Vogum, gaf á dögunum út sína fyrstu bók. Bókin heitir Ömurleg helgi hjá Pétri og fjallar um drenginn Pétur sem er sífellt er stríða Óla bróður sínum. Bókin er 44 síður og eru tvö eintök til útláns á Bókasafninu í Vogum. Kennari Braga er þessa dagana að lesa bókina fyrir 3. bekk. Bragi segir gaman að hlusta á lesturinn enda sé hann eiginlega búinn að gleyma því hvernig bókin byrjaði. Bragi segir söguna uppspuna og ekki endurspegla samskipti hans við bróður sinn. Aðspurður að því hvaðan hugmyndirnar komi kveðst hann ekki alveg viss. „Ég byrjaði að finna nöfn á persónurnar og svo byrjaði ég bara að skrifa,“ segir hann. Í framtíðinni dreymir Braga um að verða fótbolta- maður en segir aldrei að vita nema hann fáist líka við skrif. Bragi er þegar byrjaður á næstu bók sem ber titilinn Annar í jólum hjá Pétri. Bragi skrifar sögurnar í tölvu og segir það ekkert svo erfitt að nota fingrasetningu á lyklaborði og skrifa rétt. Duglegir lestrarhestar í 3. bekk Ungur rithöfundur í Vogum ●● Sendi●frá●sér●44●síðna●bók●um●bræður.● Er●þegar●byrjaður●á●næstu●bók Drífa Thorstensen, umsjónar- kennari 3. bekkjar í Vogum Filmumyndavél vinsæl fermingargjöf 1980 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 6 -0 6 1 9 Framtíðarreikningur – í fullu gildi í framtíðinni Með því að leggja fermingarpeningana inn á Framtíðarreikning auðveldar þú þér að láta framtíðardraumana rætast. Fermingargjafir eldast misvel og með því að spara tryggir þú að gjöfin þín nýtist í framtíðinni. Framtíðarreikningur Arion banka ber alltaf hæstu vexti verðtryggðra sparnaðarreikninga okkar og er bundinn til 18 ára aldurs. Ef 30.000 kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning leggjum við 5.000 kr. á móti.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.