Víkurfréttir - 17.03.2016, Side 17
18 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR
FIMMTUDAGINN, 17. MARS KL. 19:15
GRILLAÐIR HAMBORGARAR
FYRIR ALLA HEIMALEIKI
ÚRSLITAKEPPNI KARLA HEFST Í KVÖLD!
MÆTUM OG
STYÐJUM
STRÁKANA!
Við leitum að jákvæðum starfsmanni með mikla þjónustulund til starfa
í apótekinu okkar í Keflavík.
Starfssvið
• Ráðgjöf til viðskiptavina
• Almenn þjónusta og sala
Hæfniskröfur
• Reynsla af starfi í apóteki
er kostur
• Söluhæfileikar
• Mikil þjónustulund og jákvæðni
• Lágmarksaldur 20 ára
PI
PA
R\
TB
W
A
-
SÍ
A
Taktu frá tíma til að hugsa
um heilsu okkar hinna
- lægra verð
apotekarinn.is Apótekarinn er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar
um landið. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum
framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigðis og lífsgæða.
Um er að ræða 50% starf.
Umsóknir merktar „Þjónusta“,
ásamt ferilskrá sendist
á starf@apotekarinn.is
fyrir 24. mars nk.
Í dag hefst úrslitakeppni karla í körfu-
bolta en þar mæta þrjú Suðurnesjalið
til leiks. Keflvíkingar fá Tindastól í
heimsókn í hörkurimmu. Grindvík-
ingar mæta deildarmeisturum KR í
Vesturbænum á meðan Njarðvíkingar
sækja Stjörnuna heim á morgun föstu-
dag. Við fengum Njarðvíkinginn Jón
Björn Ólafsson, ritstjóra Körfunnar,
til þess að spá í spilin fyrir komadi
átök. Jón er ekkert of bjartsýnn fyrir
hönd Suðurnesjasveina og býst allt
eins við snemmbúnu sumarfríi hjá
öllum liðum.
Svæsin naflaskoð-
un og samþjöppun
Njarðvík - 7. sæti
og mæta Stjörnunni
Form: Fjórir tapleikir í röð
„Það er ekkert rosalega staðgóður
morgunverður að fara með fjóra tap-
leiki inn í úrslitakeppnina. Alveg sama
þótt menn hafi þóst sjá einhver fín
teikn á lofti hjá mönnum sem hafa
ekki verið að fá mjög margar mínútur
framan af. Það er auðvitað til komið
vegna manneklu. Mér finnst bara
Njarðvík í ekkert of góðri stöðu þó
menn hafi verið brattir á blaðamanna-
fundi nú fyrir úrslitakeppni. Þeir tala
um að þetta sé rétti tíminn til þess að
smella saman en Njarðvíkingar eru
alls ekki í góðum málum á leiðinni inn
í þessa úrslitakeppni.“
Jón segir meiðsli Loga koma á versta
tíma og eins er óvitað hvaða áhrif þetta
inn og út ástand á Bonneau hafi. „Það
er til mikils ætlast ef Njarðvíkingar
búast við einhverju af honum. Þó svo
að hann sé atvinnumaður þá er hann
ekki í leikformi og það þarf að vera
til staðar.“ Jón býst þó við að Njarð-
víkingar bíti frá sér og láti Stjörnuna
hafa fyrir hlutunum.
„Stjarnan læðist þarna í 2. sætið með
því að sigra síðustu fjóra leiki sína í
deildinni á meðan Njarðvíkingar tapa
síðustu fjórum. Það er því voðalega
auðvelt að segja að Stjarnan sé sigur-
stranglegri, en ég set spurningamerki
við það. Mér finnst Njarðvíkingar
ekkert allt of miklir „underdogs“ í ein-
víginu því frammistaða þeirra gegn
Stjörnunni í deildinni var nokkuð
góð.“
„Njarðvíkingar voru aldrei að horfa
á neitt sjöunda sæti þegar þessi deild
fór af stað. Þetta er hins vegar staðan
sem þeir þurfa að vinna sig úr. Ég held
að þeir hafi helst viljað mæta Keflavík
af þessum þremur toppliðum. Njarð-
víkingum dugir ekkert annað en ein-
hver svæsin naflaskoðun og einhvers
konar samþjöppun í hópnum til þess
að komast upp úr þessu einvígi. Eftir
að þeir bættu við Hauki Helga þá
gerðu margir þá kröfu að þeir væru að
fara að berjast um titilinn en fjarvera
Loga setur þá frekar aftarlega á merina
í þessari titilumræðu.“
Hill er enginn
Earl Brown
Keflavík - 3. sæti
og mæta Tindastól
Form: Tapað síðustu
þremur af fimm
„Þeir hafa haft orðspor á sér fyrir að
vera harðir og fastir fyrir í gegnum
tíðina. Ef það er einhvern tímann þörf
á því þá er það í þessari seríu. Þetta
Stólalið, þeir biðja bara um meira ef þú
ert eitthvað að lemja á þeim. Stólarnir
tóku báða deildarleikina og því miður
þá sé ég ekki þetta Keflavíkurlið, sem
við sáum í lok deildarkeppni, ná í sigur
þarna fyrir norðan. Það þýðir bara að
menn séu að fara í sumarfrí eftir 8-liða
úrslitin enn eina ferðina. En Tinda-
stólsmenn geta ekkert hlaupið með
þeim ef þeir hitta á sinn leik. Þessi
ótímabæru og illa ígrunduðu skot
verða að detta og þau gera það ekkert
í öllum leikjum. Ef þau detta þá eru
þeir hættulegir út um allan völl. Það
þarf t.d. að fylgja Magga Gunn eftir frá
„Curry-svæðinu“ og þegar þess þarf
þá ertu búinn að opna teigvörnina
þína svo mikið. Þá fara menn eins og
Reggie að ógna bæði með því að keyra
að körfunni og skjóta fyrir utan. Þegar
það gerist þá ertu kominn í vandræði
gegn Keflavík.“
Jón telur að Keflvíkingar þurfi á þeim
stöðuleika að halda sem einkenndi
liðið í upphafi móts, núna þegar al-
varan tekur við. „Þeir þurfa ein-
hvern veginn að enduruppgötva sig
fyrir þessa úrslitakeppni. Við sáum
leik hérna um daginn þar sem Valur
Orri skorar ekki stig og hann var að
dominera þetta mót liggur við hérna í
upphafi. Það eru allt of miklar sveiflur
hjá þessu liði. Fyrirfram sé ég þá vera
í viðlíka vandræðum og Njarðvík. Á
leiðinni inn í einvígið lítur út fyrir að
þeir sjái ekki körfubolta í apríl.“
Glíma Jerome Hill við fyrrum félaga
sína í Tindastól mun hafa mikið að
segja um útkomu einvígisins. Jón er
þó ekki á því að Keflvíkingar hafi bætt
lið sitt með því að skipta á Earl Brown
og Hill. „Jerome Hill finnst mér vera
meira hættumerki fyrir Keflavík en
annað. Í síðasta leik á móti Stólunum
þá virtist hann ekki vera að halda fók-
us. Þó svo að hann skori sín stig, þá
ef þú horfir á þetta heildrænt þá var
hann meiri baggi. Kannski hefur hann
náð því úr nösunum á sér, að vera að
spila gegn liðinu sem rak hann. Það
er vonandi bara búið, maður myndi
vænta þess af atvinnumanni. Það gátu
fá lið hamið Earl Brown. Mér finnst
Hill vera þægilegri fyrir varnir ann-
ara liða. Mér fannst hverfa úr vopna-
búrinu við þessa tilfærslu. Earl var
Suðurnesjaliðin
þurfa rokk og dúndur til þess að lifa af
● Suðurnesjasveinar verða í basli í 8-liða úrslitum að mati ritstjóra Körfunnar