Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2016, Page 17

Víkurfréttir - 17.03.2016, Page 17
18 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR FIMMTUDAGINN, 17. MARS KL. 19:15 GRILLAÐIR HAMBORGARAR FYRIR ALLA HEIMALEIKI ÚRSLITAKEPPNI KARLA HEFST Í KVÖLD! MÆTUM OG STYÐJUM STRÁKANA! Við leitum að jákvæðum starfsmanni með mikla þjónustulund til starfa í apótekinu okkar í Keflavík. Starfssvið • Ráðgjöf til viðskiptavina • Almenn þjónusta og sala Hæfniskröfur • Reynsla af starfi í apóteki er kostur • Söluhæfileikar • Mikil þjónustulund og jákvæðni • Lágmarksaldur 20 ára PI PA R\ TB W A - SÍ A Taktu frá tíma til að hugsa um heilsu okkar hinna - lægra verð apotekarinn.is Apótekarinn er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigðis og lífsgæða. Um er að ræða 50% starf. Umsóknir merktar „Þjónusta“, ásamt ferilskrá sendist á starf@apotekarinn.is fyrir 24. mars nk. Í dag hefst úrslitakeppni karla í körfu- bolta en þar mæta þrjú Suðurnesjalið til leiks. Keflvíkingar fá Tindastól í heimsókn í hörkurimmu. Grindvík- ingar mæta deildarmeisturum KR í Vesturbænum á meðan Njarðvíkingar sækja Stjörnuna heim á morgun föstu- dag. Við fengum Njarðvíkinginn Jón Björn Ólafsson, ritstjóra Körfunnar, til þess að spá í spilin fyrir komadi átök. Jón er ekkert of bjartsýnn fyrir hönd Suðurnesjasveina og býst allt eins við snemmbúnu sumarfríi hjá öllum liðum. Svæsin naflaskoð- un og samþjöppun Njarðvík - 7. sæti og mæta Stjörnunni Form: Fjórir tapleikir í röð „Það er ekkert rosalega staðgóður morgunverður að fara með fjóra tap- leiki inn í úrslitakeppnina. Alveg sama þótt menn hafi þóst sjá einhver fín teikn á lofti hjá mönnum sem hafa ekki verið að fá mjög margar mínútur framan af. Það er auðvitað til komið vegna manneklu. Mér finnst bara Njarðvík í ekkert of góðri stöðu þó menn hafi verið brattir á blaðamanna- fundi nú fyrir úrslitakeppni. Þeir tala um að þetta sé rétti tíminn til þess að smella saman en Njarðvíkingar eru alls ekki í góðum málum á leiðinni inn í þessa úrslitakeppni.“ Jón segir meiðsli Loga koma á versta tíma og eins er óvitað hvaða áhrif þetta inn og út ástand á Bonneau hafi. „Það er til mikils ætlast ef Njarðvíkingar búast við einhverju af honum. Þó svo að hann sé atvinnumaður þá er hann ekki í leikformi og það þarf að vera til staðar.“ Jón býst þó við að Njarð- víkingar bíti frá sér og láti Stjörnuna hafa fyrir hlutunum. „Stjarnan læðist þarna í 2. sætið með því að sigra síðustu fjóra leiki sína í deildinni á meðan Njarðvíkingar tapa síðustu fjórum. Það er því voðalega auðvelt að segja að Stjarnan sé sigur- stranglegri, en ég set spurningamerki við það. Mér finnst Njarðvíkingar ekkert allt of miklir „underdogs“ í ein- víginu því frammistaða þeirra gegn Stjörnunni í deildinni var nokkuð góð.“ „Njarðvíkingar voru aldrei að horfa á neitt sjöunda sæti þegar þessi deild fór af stað. Þetta er hins vegar staðan sem þeir þurfa að vinna sig úr. Ég held að þeir hafi helst viljað mæta Keflavík af þessum þremur toppliðum. Njarð- víkingum dugir ekkert annað en ein- hver svæsin naflaskoðun og einhvers konar samþjöppun í hópnum til þess að komast upp úr þessu einvígi. Eftir að þeir bættu við Hauki Helga þá gerðu margir þá kröfu að þeir væru að fara að berjast um titilinn en fjarvera Loga setur þá frekar aftarlega á merina í þessari titilumræðu.“ Hill er enginn Earl Brown Keflavík - 3. sæti og mæta Tindastól Form: Tapað síðustu þremur af fimm „Þeir hafa haft orðspor á sér fyrir að vera harðir og fastir fyrir í gegnum tíðina. Ef það er einhvern tímann þörf á því þá er það í þessari seríu. Þetta Stólalið, þeir biðja bara um meira ef þú ert eitthvað að lemja á þeim. Stólarnir tóku báða deildarleikina og því miður þá sé ég ekki þetta Keflavíkurlið, sem við sáum í lok deildarkeppni, ná í sigur þarna fyrir norðan. Það þýðir bara að menn séu að fara í sumarfrí eftir 8-liða úrslitin enn eina ferðina. En Tinda- stólsmenn geta ekkert hlaupið með þeim ef þeir hitta á sinn leik. Þessi ótímabæru og illa ígrunduðu skot verða að detta og þau gera það ekkert í öllum leikjum. Ef þau detta þá eru þeir hættulegir út um allan völl. Það þarf t.d. að fylgja Magga Gunn eftir frá „Curry-svæðinu“ og þegar þess þarf þá ertu búinn að opna teigvörnina þína svo mikið. Þá fara menn eins og Reggie að ógna bæði með því að keyra að körfunni og skjóta fyrir utan. Þegar það gerist þá ertu kominn í vandræði gegn Keflavík.“ Jón telur að Keflvíkingar þurfi á þeim stöðuleika að halda sem einkenndi liðið í upphafi móts, núna þegar al- varan tekur við. „Þeir þurfa ein- hvern veginn að enduruppgötva sig fyrir þessa úrslitakeppni. Við sáum leik hérna um daginn þar sem Valur Orri skorar ekki stig og hann var að dominera þetta mót liggur við hérna í upphafi. Það eru allt of miklar sveiflur hjá þessu liði. Fyrirfram sé ég þá vera í viðlíka vandræðum og Njarðvík. Á leiðinni inn í einvígið lítur út fyrir að þeir sjái ekki körfubolta í apríl.“ Glíma Jerome Hill við fyrrum félaga sína í Tindastól mun hafa mikið að segja um útkomu einvígisins. Jón er þó ekki á því að Keflvíkingar hafi bætt lið sitt með því að skipta á Earl Brown og Hill. „Jerome Hill finnst mér vera meira hættumerki fyrir Keflavík en annað. Í síðasta leik á móti Stólunum þá virtist hann ekki vera að halda fók- us. Þó svo að hann skori sín stig, þá ef þú horfir á þetta heildrænt þá var hann meiri baggi. Kannski hefur hann náð því úr nösunum á sér, að vera að spila gegn liðinu sem rak hann. Það er vonandi bara búið, maður myndi vænta þess af atvinnumanni. Það gátu fá lið hamið Earl Brown. Mér finnst Hill vera þægilegri fyrir varnir ann- ara liða. Mér fannst hverfa úr vopna- búrinu við þessa tilfærslu. Earl var Suðurnesjaliðin þurfa rokk og dúndur til þess að lifa af ● Suðurnesjasveinar verða í basli í 8-liða úrslitum að mati ritstjóra Körfunnar

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.