Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.2016, Síða 2

Víkurfréttir - 16.06.2016, Síða 2
2 fimmtudagur 16. júní 2016VÍKURFRÉTTIR ■ Kennarar við Tónlistarskólann í Garði hafa sent bæjaryfirvöldum í Sveitarfélaginu Garði erindi þar sem þeir vekja athygli á slæmri húsnæðisað- stöðu tónlistarskólans og brýnni þörf á úrbótum. Bæjarráð Garðs tók erindið fyrir á fundi sínum fyrir helgi. Í gögnum bæjarráðs kemur fram að kostnaðargreining á nokkrum mögulegum kostum fyrir nýtt eða endurbætt húsnæði tónlistarskólans er í vinnslu hjá skipulags- og byggingar- sviði bæjarins og ættu niðurstöður að liggja fyrir fljótlega. Vekja athygli á slæmri húsnæð- isaðstöðu tónlistarskóla í Garði ■ Heildarfasteignamat á Suðurnesjum hækkar um 6,8 prósent fyrir árið 2017 samkvæmt frétt á vef Þjóðskrár. Á landinu öllu hækkar fast- eignamat um 7,8 prósent. Matið á Vesturlandi hækkar um 5,8 prósent, á Vestfjörðum um 6,9 prósent, um 0,2 prósent á Norðurlandi vestra, 5,7 prósent á Norðurlandi eystra, 5,6 prósent á Austurlandi og 4,8 prósent á Suðurlandi. Hækkunin á höfuðborgarsvæðinu er 8,8 prósent á milli ára. Fasteignamatið byggir á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna. Nýja fast- eignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2016. Það tekur gildi 31. desember 2016 og gildir fyrir árið 2017. Fasteignamat á Suðurnesjum hækkar um 6,8 prósent ■ Í maí 2016 voru alls 255 atvinnuleitendur á Suðurnesjum. Þar af voru 12 í Garði, segir í gögnum bæjarráðs Sveitarfélagsins Garðs. Það samsvarar 1,5 prósent atvinnuleysi í sveitarfélaginu. Atvinnulausum hefur fækkað verulega á undanförnum mánuðum og lýsir bæjarráð ánægju með þá jákvæðu þróun. 255 án atvinnu á Suðurnesjum ●● 12●án●atvinnu●í●Sveitarfélaginu●Garði Matsveinn eða matráður óskast í 100% starf við Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá 8. ágúst 2016. Laun eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við hlutaðeigandi stéttarfélag. Í anda heilsueflandi framhaldsskóla er unnið eftir ráðleggingum og markmiðum Landlæknis- embættisins hvað varðar hollustu og næringargildi matarins. Mötuneytið er ætlað bæði nem- endum og starfsfólki. Nemendur skólans eru um 1000 og starfsmenn eru tæplega 100. Í starfinu felst meðal annars að sjá um: Rekstur mötuneytis skólans, matseld og frágang, innkaup og móttöku matvara, kaffiveitingar á fundum í samvinnu og í samráði við skólastjórnendur ofl. Auk viðeigandi menntunar og/eða reynslu er sóst eftir starfsmanni sem hefur til að bera góða samskiptahæfni, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og hefur áhuga á að vinna með ungu fólki. Umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu skal skila í tölvupósti til skólameistara á netfangið kras@fss.is eigi síðar en 27. júní 2016. Nánari upplýsingar má fá í síma 421-3100 eða í tölvupósti hjá Kristjáni Ásmundssyni skólameistara, kras@fss.is og Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara, gp@fss.is. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Skólameistari ÓSKUM AÐ RÁÐA MATSVEIN EÐA MATRÁÐ Alda er nýr heilsudrykkur sem er væntanlegur í verslanir á næstu dögum. Drykkurinn er þróaður af Codland, sem er fullvinnslufyrirtæki í eigu grindvísku útgerðar- félaganna Vísis og Þorbjarnar. Nýi heilsudrykkurinn inniheldur collagen en það er ein tegund próteins sem við inntöku getur bætt heilsu og hreyfigetu. Það örvar umbrot frumna í brjóski og liðum og stuðlar að endurnýjunarferli í bandvefjum en efnið styður til dæmis vefi í beinum, húð, vöðvum og sinum líkamans. Notkun collagens ýtir jafnframt undir til dæmis stinna og slétta húð. „Það kom upp hugmynd hjá okkur í Codland að nýta það collagen sem við erum að framleiða í ferskan og nátt- úrulegan drykk. Við höfum verið að búa til collagen úr þorskroði og þróa það áfram og nú erum við komin með þessa framleiðslu í hendurnar, sem er þessi frábæri heilsu- drykkur, Alda,“ segir Tómas Eiríksson hjá Codlandi. Codland hefur unnið að drykknum í samstarfi við brugg- húsið Steðja í Borgarfirði. Drykkurinn hefur verið til sölu á veitingastaðnum Hjá Höllu í Grindavík að undanförnu en er væntanlegur í verslanir á næstu dögum. Alda er ferskur límonaðidrykkur og blandaður með collagen. Hann er jafnframt sykurlaus og því góður heilsudrykkur. Tómas vonast því til að drykkurinn verði staðsettur hjá annarri heilsuvöru í verslunum en ekki hjá gosdrykkjum. Nánar er fjallað um nýja drykkinn í Sjónvarpi Víkurfrétta sem er á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, klukkan 21:30. Tómas Eiríksson með flösku af Öldu, nýjum heilsudrykk frá Cod– landi. VF-mynd: Hilmar Bragi Nýr heilsudrykkur úr þorskroði Héraðsdómur Reykjavíkur hefur stað- fest úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál þess efnis að Isavia beri að afhenda Kaffitári útboðsgögn vegna leigu á veitingarými í flug- stöðinni á Keflavíkurflugvelli. Í út- boði á rými í flugstöðinni tók Kaffi- tár þátt en fékk því ekki úthlutað. Fyrirtækið krafðist þess í kjölfarið að fá að sjá niðurstöður og rökstuðning Isavia fyrir vali á öðrum fyrirtækjum. Í tilkynningu frá Isavia segir að fé- lagið hafi talið nauðsynlegt að dóm- stólar myndu skera úr um það hvaða gögn teljist viðkvæm fjárhags- og við- skiptagögn í skilningi upplýsingalaga. Isavia hafi ekki talið rétt að birta við- kvæm viðskiptagögn fyrirtækjanna án dómsúrskurðar. Að mati Isavia er mikilvægt að niðurstaða hafi fengist í héraðsdómi en telur þó mikilvægt að hæstiréttur fái málið til efnislegrar meðferðar og endanlegrar niðurstöðu. Gögnin verða því ekki afhent að svo stöddu. Þá segir í tilkynningu Isavia að þær upplýsingar sem þátttakendur í forvalinu veittu í útboðsgögnum séu ólíkar og mun ítarlegri en þær upplýs- ingar sem bjóðendur í hefðbundnum opinberum útboðum veita. Isavia ber að afhenda Kaffi- tári útboðsgögn

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.