Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.2016, Síða 8

Víkurfréttir - 16.06.2016, Síða 8
8 fimmtudagur 16. júní 2016VÍKURFRÉTTIR Keilir útskrifaði 163 nemendur við hátíðlega athöfn á Ásbrú síðasta föstudag. Við athöfn- ina brautskráðust nemendur úr Háskólabrú, Íþróttaakademíu og Flugakademíu, auk nem- enda í leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku á vegum Thompson Rivers University og Keilis. Með útskriftinni hafa 267 nemendur lokið námi frá skólum Keilis á árinu og stefnir í að þeir verði orðnir rúmlega 300 talsins í sumar, þar sem enn á eftir að brautskrá nemendur af verk- og raungreinadeild Háskólabrúar Keilis, auk nemenda í tæknifræði- námi Háskóla Íslands og Keilis. Aldrei hafa jafn margir einstaklingar lokið námi í Keili á einu ári síðan skólinn hóf starfsemi sína árið 2007. Háskólabrú Keilis útskrifaði í allt 60 nemendur úr þremur deildum, þar af sjö fjarnámsnem- endur. Soffía Waage Árnadóttir, forstöðumaður Háskólabrúar, flutti ávarp. Dúx var Erna Björt Árnadóttir með 9,5 í meðaleinkunn. Fékk hún bók frá Íslandsbanka og lesbretti frá Keili sem viðurkenningu fyrir námsárangur. Rósa Björk Ágústsdóttir, nemandi við félagsvísinda- og laga- deild, flutti ræðu útskriftarnema. Með útskrift- inni hafa samtals 1.403 nemendur útskrifast úr Háskólabrú Keilis og hafa lang flestir þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. Flugakademía Keilis útskrifaði 27 atvinnuflug- mannsnemendur. Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíunnar, flutti ávarp. Dúx var Kolbeinn Ísak Hilmarsson með 9,77 í meðaleinkunn, en það er næst hæsta einkunn úr atvinnuflugmanns- námi Keilis frá upphafi. Kolbeinn fékk gjafabréf frá WOWair og bók frá Icelandair. Ræðu útskriftar- nema flutti Axel C.Thimell. 58 nemendur útskrifuðust sem ÍAK þjálfarar úr Íþróttaakademíu Keilis, 50 einkaþjálfarar og átta styrktarþjálfarar. Arnar Hafsteinsson, forstöðu- maður Íþróttaakademíu Keilis, flutti ávarp. Tinna Mark Antonsdóttir fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangur í ÍAK einkaþjálfaranámi með 9,8 í meðaleinkunn og Arna Ösp Gunnarsdóttir fyrir ÍAK styrktarþjálfaranám með 9,25 í meðaleinkunn. Fengu þær gjafabréf í Nike versluninni frá Sporthús- inu í Reykjanesbæ. Þá brautskráðust 18 nemendur úr háskólanámi Thompson Rivers University (TRU) og Keilis í leið- sögunámi í ævintýraferðamennsku. Ross Cloutier, yfirmaður námsins hjá TRU, flutti ávarp og Fífa Lísa Óskarsdóttir flutti ræðu útskriftarnema. Dúx var Unnur Ósk Unnsteinsdóttir með 8,56 í meðal- einkunn og fékk hún gjöf frá GG sjósport fyrir námsárangur. Í ræðu sinni velti Hjálmar Árnason, framkvæmda- stjóri Keilis, upp spurningunni um það hvað skipti máli í lífinu og nefndi sérstaklega virðingu fyrir orðum, náttúru, samferðarfólki og sjálfum sér. Þá hvatti hann nemendur til að halda lífi í gleðinni. Samtals hafa nú 2.639 nemendur lokið námi úr deildum Keilis á níu árum. Meðfylgjandi myndir voru teknar við útskriftina sl. föstudag. Fjölmennasta útskrift- arár Keilis frá upphafi TÖLVUNNI SNJALLSÍMANUMVF.IS Í NÝJUM FÖTUM SPJALDTÖLVUNNI FYLGSTU MEÐ Í... Spennu- og dramasögur verða helst fyrir valinu Í hverri viku í allt sumar verður valinn Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanes- bæjar. Lesandi vikunnar birtist í Víkurfréttum alla fimmtudaga í sumar. Í lok hvers mánaðar fær einhver einn heppinn lesandi lestrarverðlaun. Allir sem vilja taka þátt eða mæla með lesanda þurfa að skrá sig en það er hægt að gera í af- greiðslu Bókasafnsins eða á heimasíðu safnsins: sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn Lesandi vikunnar að þessu sinni er Ásdís Kjartansdóttir. Ásdís er þroska- þjálfi í Myllubakkaskóla og hún ætlar njóta sumarfrísins á ferðalagi um landið með góða bók við höndina. Hvaða bók ertu að lesa núna? Ég var að byrja á Vertu úlfur eftir Héðinn Unnsteinsson. Hver er þín eftirlætisbók? Me before you eftir Jojo Moyes. Hvernig bækur lestu helst? Spennu- og dramasögur verða helst fyrir valinu. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Þúsund bjartar sólir eftir Khaled Hos- seini. Hvaða bók ættu allir að lesa? Það ættu bara allir að vera duglegir að lesa! Hvar finnst þér best að lesa? Uppi í rúmi. Hver er uppáhalds rithöfundurinn þinn? Einar Kárason. LESANDI VIKUNNAR

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.