Víkurfréttir - 16.06.2016, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 16. júní 2016VÍKURFRÉTTIR
ATVINNA
Arctic Pet ehf óskar eftir að ráða starfsfólk í framleiðslu.
Starfssvið:
Hefðbundin framleiðslustörf í verksmiðju fyrirtækisins á
Iðngörðum í Garði.
Hæfniskröfur:
Jákvæðni
Samviskusemi
Stundvísi
Frumkvæði í starfi
Umsóknir og ferilskrár sendist á solmundur@arcticpet.com
Öllum umsóknum verður svarað
KJÖRFUNDUR
VEGNA FORSETAKOSNINGA
Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM 25. JÚNÍ 2016
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00
Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli
Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna forsetakosninga liggur frammi
almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis
persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
Sumarsýning Listasafns Reykjanes-
bæjar, sem að þessu sinni ber heitið
Mannfélagið, var opnuð á dögunum.
Á sýningunni eru verk eftir 21 lista-
mann, aðallega málverk, en einnig er
þar að finna ljósmyndaverk og skúlp-
túr.
Elstur þessara listamanna er Ásgrímur
Jónsson (1876-1958), en yngstur Aron
Reyr (f. 1974). Listamennirnir eiga
það sammerkt að vinna með marg-
háttaðar birtingarmyndir mannlegra
samskipta, ýmist beint og umbúða-
laust eða með táknrænum hætti.
Sjónarhorn þeirra getur verið einka-
legt, faglegt eða félagslegt.
Líta má á þessa sýningu sem eins
konar framhald á hinni vinsælu sýn-
ingu Kvennaveldið, sem sett var upp í
safninu í byrjun árs. Í báðum tilfellum
er grennslast fyrir um hlutlæga mynd-
list á Íslandi, og hvað það er sem höf-
undar slíkra mynda vilja segja okkur
um hugmyndir sínar og viðhorf.
Á þessari sýningu fjalla 10 konur
og 11 karlmenn um samskiptamáta
manneskjunnar og þær aðstæður
sem kveikja mannleg samskipti.
Flestir listamannanna virðast þeirrar
skoðunar að Íslendingar myndi náin
tengsl sín á meðal fyrst og fremst
gegnum sameiginlega iðju, vinnu eða
tómstundir, fremur en brýna tilfinn-
ingalega þörf. En sýning af þessu tagi
er ekki félagsfræði; fyrst og fremst
vekur hún okkur til umhugsunar um
tungumál og sýnileika tilfinninganna.
Flestar myndanna á sýningunni eru
fengnar frá tveimur helstu söfnum
MANNFÉLAGIÐ í Duus
●● Sumarsýning●Listasafns●Reykjanesbæjar●opnuð
landsins, auk þess sem listamennirnir sjálfir hafa lánað nokkrar myndir sem
ekki hafa fyrr komið fyrir almennings sjónir. Á sumarsýningunni eru verk eftir
Aðalheiði S. Eysteinsdóttur, Aron Reyr, Ásgeir Bjarnþórsson, Ásgrím Jónsson,
Baltasar, Barböru Árnason, Birgi Snæbjörn Birgisson, Finn Jónsson, Gunnar
Karlsson, Gunnlaug Scheving, Helga Þorgils Friðjónsson, Hlaðgerði írisi, Jó-
hönnu Kristínu Yngvadóttur, Karen Agnete Þórarinsson, Karólínu Lárusdóttur,
Söru og Svanhildi Vilbergsdætur, Sigríði Melrós Ólafsdóttur, Sigurð Guðmunds-
son, Stefán Boulter, Tryggva Magnússon og Þórdísi Aðalsteinsdóttur. Sýningar-
stjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.
Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duus Safnahúsum og þar er opið
alla daga frá klukkan 12:00 til 17:00.
TÖLVUNNI SNJALLSÍMANUMVF.IS
Í NÝJUM FÖTUM
SPJALDTÖLVUNNI
FYLGSTU
MEÐ Í...
LAUS STÖRF
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til
stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á
vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi
/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari
upplýsingar um störfin.
FJÁRMÁLASVIÐ
LEIKSKÓLINN TJARNARSEL
LEIKSKÓLINN TJARNARSEL
LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL
Deildarstjóri launadeildar
Leikskólakennari
Sérkennslustjóri
Íþróttakennari/-fræðingur
VIÐBURÐIR
HÁTÍÐARDAGSKRÁ 17. JÚNÍ
Kl. 12: 30 Hátíðarguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju
Kl. 13:30 Skrúðganga frá Keflavíkurkirkju
Kl. 14:00 - 16:00 Hátíðardagskrá í skrúðgarði
Kl. 19:30 - 22:00 Skemmtun í Ungmennagarði
Sjá nánar í heilsíðuauglýsingu á öðrum stað í blaðinu.
BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR
Safnið er lokað föstudaginn 17. júní en opnar laugardag-
inn 18. júní kl. 11:00 og er opið til kl. 17:00.
Minnum á Sumarlesturinn og að skila þarf bingó-
spjöldum til að komast í lukkupottinn.
Einnig minnum við á Lesanda vikunnar.
Sjá nánar á sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn