Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.2016, Síða 20

Víkurfréttir - 16.06.2016, Síða 20
20 fimmtudagur 16. júní 2016VÍKURFRÉTTIR tillaga að starfsleyfi FYRIR MÓTTÖKU-, FLOKKUNAR- OG SORPBRENNSLUSTÖÐ Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Sorpeyðingarstöð Suðurnesja fyrir meðferð og förgun úrgangsefna á athafnasvæði sorpbrennslustöðvar- innar í Helguvík og geymsluhúsnæði að Fitjabraut 10, Reykjanesbæ. Heimilt er að taka á móti allt að 25.000 tonnum af úrgangi á ári. Starfsleyfistillagan miðast við sambærilega starfssemi og verið hefur hjá rekstraraðila. Helstu breytingar frá eldra starfsleyfi eru þær að heimild til brennslu sótt- mengaðs úrgangs var aukin úr 300 tonnum í 400 tonn og heimild til brennslu spilliefna var aukin úr 800 tonn- um í 1.000 tonn. Tillagan mun liggja frammi á skrifstofu Reykjanesbæjar á tímabilinu 13. júní til 8. ágúst 2016. Á vef Umhverfis- stofnunar má finna auglýsta tillögu og umsóknargögn. Umhverfisstofnun hefur ekki áform um að halda almennan kynningarfund um tillöguna á auglýsinga- tíma, en mun endurskoða þá ákvörðun ef eftir því verður óskað. Frestur til að gera athugasemdir um starfsleyfistillöguna er til 8. ágúst 2016. Við höfum aukið leikfangaúrvalið á pósthúsinu svo nú er það stútfullt af skemmtilegheitum. Þú finnur pakkann hjá okkur. PAKKAR SKEMMTILEGRI LEGOPLAYMO SUMARVÖRUR FÓTBOLTAMYNDIR NÝJAR VÖRUR Fjórhjólaslys og bílveltur við Grindavík Flytja þurfti erlenda konu, sem féll af fjólhjóli í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina, undir læknishendur þar sem hún kenndi sér meins eftir byltuna. Óhappið varð með þeim hætti að konan sat fyrir aftan eiginmann sinn sem ók hjólinu. Á Nesvegi, rétt vestan við Grinda- vík, ók hann á stein og við það missti konan jafnvægið og féll til jarðar. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilsu- gæslu Suðurnesja en mun ekki hafa slasast alvarlega. Nokkuð hefur verið um slys í um- ferðinni í umdæminu á undanförnum dögum. Má þar nefna tvær bílveltur, aðra vestan við Strandakirkju og hina rétt við Bót í Grindavík. Þrennt var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en meiðsl reyndust ekki vera alvarleg. Tólf ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 162 kíló- metra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukku- stund. Hans bíður 150.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í þrjá mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Þá voru allmargir ökumenn kærðir fyrir brot á stöðvunarskyldu, að leggja ólöglega, nota síma án handfrjáls búnaðar og akstur án öryggisbelta. Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist höfðu ekki verið færðar til skoðunar eða voru ótryggðar. Lögreglan heimsækir heimagistingar Lögreglan á Suðurnesjum mun á næstunni heimsækja aðila sem auglýsa heima- gistingu á svæðinu. Erindi lögreglu verður að athuga hvort tilskilin leyfi séu til staðar sem og bókhaldsgögn yfir reksturinn. Lögreglan vill fylgjast með því að þeir sem bjóða upp á heimagistingu í um- dæminu fari að lögum og reglum þar að lútandi. Vill lögreglan hvetja þá aðila sem ekki hafa orðið sér úti um leyfi að gera það hið snarasta. Á 160 km hraða á brautinni Ferskur sjónvarpsþáttur á vf.is og ÍNN.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.