Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.2016, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 16.06.2016, Qupperneq 14
14 fimmtudagur 16. júní 2016VÍKURFRÉTTIR ATVINNA Arctic Pet ehf óskar eftir að ráða starfsfólk í framleiðslu. Starfssvið: Hefðbundin framleiðslustörf í verksmiðju fyrirtækisins á Iðngörðum í Garði. Hæfniskröfur: Jákvæðni Samviskusemi Stundvísi Frumkvæði í starfi Umsóknir og ferilskrár sendist á solmundur@arcticpet.com Öllum umsóknum verður svarað KJÖRFUNDUR VEGNA FORSETAKOSNINGA Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM 25. JÚNÍ 2016 Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00 Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna forsetakosninga liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi. Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga Sumarsýning Listasafns Reykjanes- bæjar, sem að þessu sinni ber heitið Mannfélagið, var opnuð á dögunum. Á sýningunni eru verk eftir 21 lista- mann, aðallega málverk, en einnig er þar að finna ljósmyndaverk og skúlp- túr. Elstur þessara listamanna er Ásgrímur Jónsson (1876-1958), en yngstur Aron Reyr (f. 1974). Listamennirnir eiga það sammerkt að vinna með marg- háttaðar birtingarmyndir mannlegra samskipta, ýmist beint og umbúða- laust eða með táknrænum hætti. Sjónarhorn þeirra getur verið einka- legt, faglegt eða félagslegt. Líta má á þessa sýningu sem eins konar framhald á hinni vinsælu sýn- ingu Kvennaveldið, sem sett var upp í safninu í byrjun árs. Í báðum tilfellum er grennslast fyrir um hlutlæga mynd- list á Íslandi, og hvað það er sem höf- undar slíkra mynda vilja segja okkur um hugmyndir sínar og viðhorf. Á þessari sýningu fjalla 10 konur og 11 karlmenn um samskiptamáta manneskjunnar og þær aðstæður sem kveikja mannleg samskipti. Flestir listamannanna virðast þeirrar skoðunar að Íslendingar myndi náin tengsl sín á meðal fyrst og fremst gegnum sameiginlega iðju, vinnu eða tómstundir, fremur en brýna tilfinn- ingalega þörf. En sýning af þessu tagi er ekki félagsfræði; fyrst og fremst vekur hún okkur til umhugsunar um tungumál og sýnileika tilfinninganna. Flestar myndanna á sýningunni eru fengnar frá tveimur helstu söfnum MANNFÉLAGIÐ í Duus ●● Sumarsýning●Listasafns●Reykjanesbæjar●opnuð landsins, auk þess sem listamennirnir sjálfir hafa lánað nokkrar myndir sem ekki hafa fyrr komið fyrir almennings sjónir. Á sumarsýningunni eru verk eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur, Aron Reyr, Ásgeir Bjarnþórsson, Ásgrím Jónsson, Baltasar, Barböru Árnason, Birgi Snæbjörn Birgisson, Finn Jónsson, Gunnar Karlsson, Gunnlaug Scheving, Helga Þorgils Friðjónsson, Hlaðgerði írisi, Jó- hönnu Kristínu Yngvadóttur, Karen Agnete Þórarinsson, Karólínu Lárusdóttur, Söru og Svanhildi Vilbergsdætur, Sigríði Melrós Ólafsdóttur, Sigurð Guðmunds- son, Stefán Boulter, Tryggva Magnússon og Þórdísi Aðalsteinsdóttur. Sýningar- stjóri er Aðalsteinn Ingólfsson. Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duus Safnahúsum og þar er opið alla daga frá klukkan 12:00 til 17:00. TÖLVUNNI SNJALLSÍMANUMVF.IS Í NÝJUM FÖTUM SPJALDTÖLVUNNI FYLGSTU MEÐ Í... LAUS STÖRF Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði. Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi /laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin. FJÁRMÁLASVIÐ LEIKSKÓLINN TJARNARSEL LEIKSKÓLINN TJARNARSEL LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL Deildarstjóri launadeildar Leikskólakennari Sérkennslustjóri Íþróttakennari/-fræðingur VIÐBURÐIR HÁTÍÐARDAGSKRÁ 17. JÚNÍ Kl. 12: 30 Hátíðarguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju Kl. 13:30 Skrúðganga frá Keflavíkurkirkju Kl. 14:00 - 16:00 Hátíðardagskrá í skrúðgarði Kl. 19:30 - 22:00 Skemmtun í Ungmennagarði Sjá nánar í heilsíðuauglýsingu á öðrum stað í blaðinu. BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR Safnið er lokað föstudaginn 17. júní en opnar laugardag- inn 18. júní kl. 11:00 og er opið til kl. 17:00. Minnum á Sumarlesturinn og að skila þarf bingó- spjöldum til að komast í lukkupottinn. Einnig minnum við á Lesanda vikunnar. Sjá nánar á sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.