Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.2016, Side 23

Víkurfréttir - 16.06.2016, Side 23
Gerðaskóli auglýsir eftir bekkjarkennara á yngsta stigi. Umsóknir með mynd, ásamt ferilskrá og upplýsingum um umsagnaraðila berist til skólastjóra á netfangið johann@gerdaskoli.is eða til Gerðaskóla, Garðbraut 90, 250 Garður. Ráðið er í starfi ð frá 1. ágúst 2016 Umsóknarfrestur er til 28. júní 2016 Nánari upplýsingar veitir Jóhann Geirdal skólastjóri í síma 8984808. ATVINNA GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ 17. JÚNÍ AYGO BLUE. BLÁTT ÁFRAM KRÚTTLEGUR. ÍS LE N SK A/ SI A. IS /T O Y 79 54 2 04 /1 6 Toyota Reykjanesbæ · Njarðarbraut 19 · Reykjanesbæ · Sími: 420-6600 REYKJANESBÆ Fótboltaáhugafólk á Suðurnesjum hefur kannski velt því fyrir sér hver hann sé þessi hárprúði piltur er sem hleypur upp og niður vænginn hjá Keflvíkingum í 1. deildinni. Þarna er á ferðinni Tómas Óskarsson, 17 ára piltur sem nýlega hefur látið að sér kveða í fótboltanum. Hann var lítið sem ekkert inni í myndinni hjá Keflvík- ingum í fyrra en hefur núna verið einn af fáum ungum leikmönnum sem hafa fengið tækifæri í byrjunarliði Keflvíkinga. Tómas hefur alla tíð verið vængmaður eða leikið fyrir aftan framherja í holunni svokölluðu. Hann er hraður leikmaður og skapar þannig oft hættu þegar hann kemst á ferðina. Tómas á ekki langt að sækja hæfileikana en afi hans, Einar Gunnarsson, var einn af máttarstólpum og fyrirliði hins sigursæla Keflavíkurliðs á sjöunda og átt- unda áratug síðustu aldar. Fékk að byrja í grannaslagnum á heimavelli Tómas var dulegur að æfa í vetur og segir það vera að skila sér núna. Hann var þó ekki að búast við því að fá mikinn spilatíma í sumar. „Nei ég bjóst nú ekki við því að fá sénsinn,“ segir hann í spjalli við Víkurfréttir. Tómas viðurkennir að hafa verið stressaður þegar hann fékk þau tíðindi að hann myndi byrja inn á í sínum fyrsta leik, en það var grannaslagur gegn Grindavík á heima- velli. „Ég var dálítið hissa og bjóst ekki við þessu. Maður reyndi bara að pæla sem minnst í því og spila sinn leik.“ Tómas hefur núna komið við sögu í öllum leikjum Kefl- víkinga í sumar og er nokkuð sáttur við gengi liðsins og það tækifæri sem hann hefur fengið. Tómas kann vel að meta þá reynslu sem hann er að öðlast og nýtir alla þá reynslu sem er í kringum hann í öflugu Keflavíkurliði. „Það er mjög gott að spila með þessum strákum. Þeir leiðbeina manni vel,“ segir þessi efnilegi leikmaður að endingu. Bjóst ekki við því að fá sénsinn Hinn 17 ára Tómas Óskarsson er að festa sig í sessi hjá Keflvíkingum

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.