Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.10.2007, Page 27

Víkurfréttir - 04.10.2007, Page 27
27ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR Trankovic bestur í Garðinum Draumatímabil Víðismanna skaut upp kollinum í sumar þar sem liðið bæði tryggði sér sæti í 2. deild á næstu leiktíð og þá höfðu Víðismenn sigur í deildinni eftir sigur á Gróttu í úrslitaleik á Njarðvíkurvelli. Varnarjaxlinn Aleksandar Trankovic var valinn besti leikmaður sumarsins en hann var sem járnkarl í vörn Víðis- manna. Óvíst er hvort Steinar Ingimundarson verði áfram með Víði á næstu leiktíð en ljóst er að hann hefur laðað allt það besta fram í Garð- mönnum sem þjálfari liðsins. Þrjár deildir á þremur árum Keflvíkingurinn Gunnar Oddsson hefur nú farið upp um þrjár knattspyrnudeildir á þremur árum með liðin sín. Hann tók við Reyni og kom þeim í 1. deild úr þeirri þriðju og nú er hann farinn upp í Landsbankadeildina m e ð Þ r ó t t R e y k j a v í k . Gunnar samdi til þriggja ára við Þróttara en honum til armæðu kemst hann ekki ofar en í Landsbankadeildina. Hann getur jú reyndar orðið Íslandsmeistari með Þrótt og ætti það ekki að koma á óvart sé tekið mið af fluginu á Gunnari í þjálfarasætinu. Jóhann annar í tvíliðaleik Borðtenniskappinn Jóhann Rúnar Kristjánsson varð í 2. sæti ásamt breska félaga sínum Paul Davies á opna borðtennismótinu í Lignano á Ítalíu um síðustu helgi. Þá varð Jóhann í 5.-8. sæti í sínum flokki og því um gríðargóðan árangur að ræða hjá Jóhanni þar sem mótið var fyrnasterkt. Eftir tvær vikur mun Jóhann halda til Slóveníu þar sem Evrópumeistaramótið fer fram. Brynja framkvæmdastjóri UMFN Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra UMFN. Um er að ræða 50% starf en Brynja er kunnug félaginu í gegnum störf sín í stjórn s u n d d e i l d a r U M F N . Brynja mun hafa aðstöðu í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur og viðtalstímarnir verða mánudaga til fimmtudag frá kl. 9-12. Fyrirliðarnir bestir í Keflavík Upp og niður í Sandgerði Lilja Íris Gunnarsdóttir og Jónas Guðni Sævarsson voru valin bestu leikmenn Keflavíkur á lokahófi deildar- innar sem fram fór á Ránni í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Lilja og Jónas eru fyrirliðar Keflavíkurliðanna og hafa átt góðu persónulegu gengi að fagna í sumar. Karlalið Keflavíkur fataðist flugið á miðri leiktíð og vann ekki leik eftir Skagaleikinn fræga en Keflavíkurkonur náðu inn í bikarúrslit þar sem þær lágu 3-0 gegn KR. Nokkuð rýrt sumar hjá meistaraflokkunum en sannarlega glæsilegur ár- angur hjá kvennaliðinu að kom- ast á Laugardalsvöllinn. Þeir Símun Samuelsen og Baldur Sigurðsson fóru til erlendra liða á leiktíðinni og veikti það karla- liðið til muna og þá var nokkuð um meiðsli annarra lykilmanna en Keflvíkingar luku keppni í 6. sæti deildarinnar með 21 stig. Hallgrímur Jónasson er nú ytra á reynslu og óvíst hvernig þau mál munu fara en líkur eru á því að hann sækist eftir atvinnu- mannasamningi svo enn má gera ráð fyrir að rakni úr hóp Keflavíkur og því bíður stjórn- arinnar og þjálfara ærinn starfi fyrir næstu leiktíð. Salih Heimir Porcha sannaði að hann kann sitthvað fyrir sér í knattspyrnunni því á sínu fyrsta ári með Keflavíkurkonur komst hann í bikarúrslit en liðið hafn- aði í 4. sæti í deildarkeppninni. Jónas og Lilja leika ólíkar stöður á vellinum. Lilja Íris er hjartað í vörn Keflavíkurkvenna og hefur margsannað gildi sitt á vellinum en Jónas er djúpur miðjumaður og mikill hlaupagikkur sem vakið hefur óskipta athygli fjöl- miðla sem og annarra liða með vaskri framgöngu sinni á vell- inum. Kristján Guðmundsson þjálf- ari Keflvíkinga, framlengdi samning sinn við félagið til 2009 í vikunni. Í viðtali við VF gagnrýndi Kristján aðstöðuleysi knatt- spyrnudeildar sem hann segir að þurfi að bæta verulega á næstu árum. Í viðtalinu, sem má sjá í VefTV á vefsíðu Víkurfrétta www.vf.is, fer Kristján yfir víðan völl í athyglisverðu samtali. Reynismenn fóru með leift-urhraða upp úr 3. deild og í 1. deildina en í sumar kom hikst í mulningsvélina frá Sandgerði og máttu þeir sætta sig við að falla í 2. deild. Töluverð umferð erlendra leikmanna og lánsmanna var í Sandgerði í sumar og var út- gerðin á köflum nokkuð erfið. Reynismenn leika því í 2. deild að ári en ekki er víst hvort Jakob Már Jónharðsson verði áfram með liðið þar sem hann gerði aðeins eins árs samning við fé- lagið og engar viðræður hafnar um endurnýjun samninga. Þá er enn allt of snemmt að segja til um stöðu leikmannamála sem verða skoðuð nánar eftir lokahóf Knattspyrnudeildar Reyni þann 13. október n.k. í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Á efri myndinni eru þau Jónas Guðni og Erla Sigursveinsdóttir, móðir Lilju Írisar á lokahófi knattspyrnudeildarinnar. Hér á neðri myndinni er Lilja í baráttunni gegn Fjölni í VISA bikarkeppninni. Sandgerðingar magalentu á heimavelli gegn Þrótti og féllu þar í 2. deild. VF -M yn d/ J ón Ö rv ar

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.