Víkurfréttir - 04.10.2007, Side 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 40. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali - Hafnargata 27 - 230 Keflavík
s: 421 1420 og 421 4288 - fax 421 5393 - Netfang: asberg@asberg.is
Hólagata 16, Sandgerði
Gott 109m2 einbýlishús með
3 svefnherbergjum, stofa, anddyri, eldhús
og þvottahús. Steyptur bílskúrsgrunnur
við húsið. Góður staður, stutt í skólann
og sundlaugina.
19.200.000,-
Gauksstaðavegur 6A, Garður
Eldra 91m2 einbýlishús með frábæru
útsýni ásamt 70m2 bílskúr sem er in-
nréttaður að hluta til sem íbúð, tilvalið til
útleigu. Getur verið laust strax.
TILBOÐ
Gónhóll 16, Njarðvík
Glæsilegt 161m2 parhús með bílskúr.
3 svefnherbergi, parket og flísar á gólfum,
sólstofa sem gengið er í úr stofunni. Eikar
innihurðar, forhitari á miðstöðvarkerfinu.
Heitur pottur á verönd.
33.900.000,-
Smáratún 36, e.h. Keflavík
Mjög góð 4ra herbergja 135m2 íbúð á efri
hæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi með
21m2 bílskúr. Ný eldhúsinnrétting og búið
að endurnýja þakjárn og þakkant.
Góð staðsetning.
20.900.000,-
Mávabraut 1a, Keflavík
Mjög góð 123m2 íbúð á 1 hæð í
fjórbýlishúsi. Bílskýli í kjallara sem er
sameiginlegt með annari íbúð. Parket og
flísar á gólfum. Stór og góð
sameign í fjórbýlinu.
23.000.000,-
Steinás 1, Reykjanesbæ
Glæsilegt 139m2 parhús með bílskúr.
Parket og flísar á gólfum, hitalögn með
hitastillum í gólfum. Stór og mikil afgirt
verönd með heitum potti. Innréttingar úr
kirsuberjavið og innihurðar úr mahony.
33.000.000,-
asberg.is
Brekkubraut 13, Keflavík
183m2 e.h. og ris ásamt 34m2 bílskúr. 5 til
6 herbergja í íbúðinni. Búið að endurnýja
þakjárn, skolplögn, neysluvatnsl. og
miðstöðvarlögn. Stutt í alla þjónustu.
27.000.000,-
Urðarás 12, Reykjanesbæ
307m2 einbýli á besta stað. Húsið mun
afhendast þannig að allar stéttar verða
fullgerðar með hellulögn eða steinsteypu
og ísettum hitalögnum. Að innan skilast
húsið tilbúið undir tréverk og málingu.
57.800.000,-
Ath skipti á ódýrari eign.
Það má segja að atvinnuá-stand hafi verið gott á öllu
landinu undanfarin 2 ár og at-
vinnuleysi í sögulegu lágmarki
miðað við landið í heild sinni.
Við á Suðurnesjum megum
vel við una mið að við þær
uppsagnir sem áttu sér stað
vorið 2006 þegar öllum starfs-
mönnum Varnarliðsins var sagt
upp störfum. Þar misstu vinnu
sína hátt í 600 manns og meiri
hlutinn eða 73% (429) var af
Suðurnesjum en 27% (162) af
höfuðborgarsvæði. Mikið fram-
boð á atvinnu og eftirspurn eftir
vinnuafli gerði það að verkum
að fólk átti auðveldar með að
finna sér starf að nýju .
Það var aðdáunarvert hvað for-
ystumenn bæjarfélagsins og
stéttarfélagana brugðust skjótt
við. Það var unnið af kappi og
í samvinnu við þá aðila sem
komu að málum við að bregð-
ast eins vel og hægt var við erf-
iðum kringumstæðum. Ráðgjaf-
arstofa var sett á laggirnar sem
sinnti eingöngu starfsmönnum
Varnarliðsins með upplýsingar
um störf í boði, námskeið o.fl.
Þar unnu að stærstum hluta 2
starfsmenn sem unnu krefjandi
og þýðingarmikið starf fram til
áramóta 2006.
Þegar upp var staðið komu sam-
tals 110 manns inn á atvinnu-
leysisskrá sem telst í lægra mæli
miðað við tölurnar á undan. Ald-
urssamsetning hópsins var ólík
því sem við áttum að venjast
þ.e.a.s. að fjölmennasti hópur-
inn var í aldurshópnum 50 ára
og eldri. Það var líka eftirtekt-
arvert í viðtölum við þennan
myndarlega hóp hve fólk var al-
mennt ánægt í fyrra starfi og
jákvætt í viðmóti. Þó svo að enn
sitji eftir fólk án atvinnu er það
okkar von og trú að atvinnu-
rekendur skoði betur þá mögu-
leika að ráða til sín eldra fólk
með mikla reynslu að baki og
óbilandi kjark á nýja tíma.
Á tíma bili voru menn ugg-
andi um hvað og hvernig yrði
að málum staðið varðandi það
svæði sem skyndilega losnaði
við brotthvarf hers ins. Sem
betur fer fóru þau mál á besta
veg eins og alþjóð er þegar kunn-
ugt um. Því má m.a. þakka góðu
samstarfi og einhug okkar fólks
heima í héraði. Þarna er orðið til
eitt stórt skólasamfélag í sífelldri
mótun auk þess sem fyrirtæki
og verktakar sækja inn á svæðið
sem er sniðið að fjölbreyttri
þjónustu við okkar alþjóðlega
flugvöll. Margir hafa byrjað nám
við nýjan skóla (Keilir) og stefna
ótrauðir á vit nýrra ævintýra.
Suðurnesin standa frammi fyrir
því í dag að vera einn fýsilegasti
kosturinn þegar fólk ákveður
sér búsetu og er af ýmsu að taka.
Atvinna í boði, góðir skólar og
metnaðarfullt starf í gangi innan
þeirra, stutt í verslun og þjón-
ustu, góðar vegasamgöngur o.fl.
Ketill G. Jósefsson
Steinunn B. Sigurðardóttir
Vmst. á Suðurnesjum
Eitt ár liðið síðan bandarískur her
yfirgaf herstöðina á Miðnesheiði
Bréf til blaðsins: