Víkurfréttir - 01.11.2007, Side 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Stúfholt 3, 105 Reykjavík
Falleg 2ja herbergja íbúð. 36m2 +
sérgeymsla í kjallara hússins, íbúð með
mikla möguleika á góðum stað.
11.000.000
Hringbraut 94b, Keflavík
Stór og góð 4ra herbergja 122m2 neðri
hæð með sérinngangi. Búið að endurnýja
skolplögn og þakjárn hússins.
Steypt bílskúrsplata.
17.000.000
Suðurgata 40, Sandgerði
174m2 einbýli á tveimur hæðum, ásamt
50m2 bílskúr. Búið að endurnýja neyslu-
vatnslögn og miðstöðvarlögn. Stór
sólpallur með heitum potti á baklóðinni.
34.900.000
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali - Hafnargata 27 - 230 Keflavík
s: 421 1420 og 421 4288 - fax 421 5393 - Netfang: asberg@asberg.is
Brekkustígur 4, Njarðvík
125m2 e.h. og ris í tvíbýli ásamt 33m2
bílskúr. Sérinngangur er í íbúðina.
4 svefnherbergi.
19.900.000
Blikabraut 15, Keflavík
Glæsileg 137m2 e.h. í fjórbýli með 3
svefnherbergjum og sérinngangi. Eign
á vinsælum stað. Búið að endurnýja
þakjárn og neysluvatnslagnir.
21.900.000
Mávabraut 1a, Keflavík
Mjög góð 123m2 íbúð á 1 hæð í fjórbýli.
Bílskýli í kjallara sem er sameiginlegt með
annari íbúð. Parket og flísar á gólfum.
Stór og góð sameign í fjórbýlinu.
23.000.000
Nónvarða 2, Keflavík
Stór 121m2 íbúð á e.h. í tvíbýli með
sérinngangi. Húsið var allt tekið í gegn að
utan pússað og málað árið 2007. Íbúðin
er laus strax til afhendingar.
17.900.000
Stafnesvegur 1eh, Sandgerði
102m2 eign á e.h., við skóla og íþróttas-
væði. 3 herb, parket og flísar á gólfum,
nýjir gluggar, útihurð og nýtt þak. Búið er
að endurnýja neysluvatnslagnir og skolp.
16.000.000
Faxabraut 34c Keflavík
Snyrtileg 72m2 íbúð á jarðhæð með
sérinngangi. 2 svefnherbergi. Parket og
flísar á gólfum. Mikið endurnýjað að
innan. Getur losnað fljótlega.
11.900.000
asberg.is
Silfurtún 16, Garði
3.herb. íbúð á 2. hæð í fjórbýli. Baðher-
bergi nýlega tekið í gegn, plastparket og
flísar á gólfum og stórar svalir. Snyrtileg
og falleg eign með frábæru útsýni!
15.400.000.
Fagrigarður 6, Keflavík
138m2 einbýli með 3 til 4 svefnh. ásamt
35m2 bílskúr. Flísar og eikar parket á gól-
fum. Búið að endurnýja þakkant, þakjárn
og allt gler í húsinu. Stutt í alla þjónustu.
34.100.000
Brekkustígur 15, Njarðvík
Mjög góð 124m2 efri hæð í tvíbýli með
3 svefnherbergjum og 26m2 bílskúr.
Parket og flísar á gólfum, sérinngangur.
Eign á góðum stað.
21.800.000.
KÓLESTERÓL, öðru nafni blóð fita, er hverj um
mannslíkama lífsnauðsynlegt,
en get ur ver ið
stór hættu legt
h j a r t a n u í o f
stórum skömmt-
um í blóðinu. Sér-
fræðingar telja
að um 20% jarð-
arbúa séu með of
háa blóðfitu. Algengustu dán-
armein mannanna má rekja til
hjartasjúkdóma. Margir geta
haldið blóðfitunni í skefjum
með heilsusamlegu matar-
æði og reglulegri hreyfingu á
meðan aðrir komast ekki hjá
lyfjainntöku til að sporna gegn
hækkandi blóðfitu.
Kólesteról í líkamanum gegnir
margháttuðu hlutverki. Auk
þess að eiga sinn þátt í að byggja
upp heilbrigðar frumur, er kól-
esterólið mikilvægt framleiðslu
gallsýru vegna meltingarinnar,
framleiðslu D-vítamíns vegna
beinabyggingarinnar og fram-
leiðslu kynhormóna. Hvern
dag sem líkaminn notar eitt til
tvö grömm af kólesteróli fram-
leiðir hann sjálfur nauðsynlegt
kólesteról fyrir lifrina. Þar fyrir
utan vinna einstaklingar kól-
esteról úr fæðunni og mikið af
því er skaðlegt.
Mannslíkaminn getur upp á sitt
eindæmi framleitt D-vítamín,
fái hann til þess næga sól. Það
hefur aftur bein áhrif á serótónín-
magn í heila, sem segir mikið
til um andlega heilsu fólks.
Sólarljósið með hjálp kólester-
óls getur því óbeint stuðlað að
léttri lund. Kólesteról er helst að
finna í fiski og mjólkurafurðum.
Kostir D-vítamíns Claciferol
virkjar fosfat- og kalsíumefna-
skipti. Skortur á þessum efnum í
bernsku getur leitt til beinarýrn-
unar, beinkrama, beinbrota á
eldri árum. Of stórir skammtar
af D-vítamíni geta hins vegar
leitt til þorsta og ógleði.
Hormónar eru boðefni, sem
stilla saman frumubúskapinn,
en helst verður ruglingur ef
eggjahvítuefni skortir. Horm-
ónar eru framleiddir af kirtlum
og losna svo út í blóðrásina.
Sem dæmi má nefna insúlín og
histamín.
Of mikil fita í blóðinu getur sest
að í æðaveggjum, sem leitt getur
til þrenginga, stíflana og æða-
kalkana. Hættulegustu afleiðing-
arnar eru hjartaáföll þó í reynd
geti öll líffæri beðið skaða af.
Helstu áhættuþættir hjartaáfalla
eru taldir vera reykingar, hár
blóðþrýstingur, ættarsaga um
hjartasjúkdóma, hreyfingarleysi
og sykursýki.
Sykursýki er samsafn nokkurra
tegunda, sem eiga það sameigin-
legt að líkaminn nýtir ekki blóð-
sykurinn sem skyldi auk þess
sem insúlín-upptaka líkamans
er trufluð. Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin WHO hefur frá
árinu 1998 flokkað sykursýki
niður í fjórar tegundir.
Tegund 1: Algjör skortur er á
insúlíni þar sem frumur í brisi
eru ekki fyrir hendi.
Tegund 2: Insúlínónæmi.
Tegund 3: Arfgengar frumu-
skemmdir og sjúkdómar tengdir
hormónatruflunum.
Tegund 4: Meðgöngusykursýki.
Hækkandi blóðfita kallar á að-
gerðir, sem lúta einna helst að
fituminna fæði og aukinni hreyf-
ingu. Mikið hefur þó verið ritað
og rætt um hollustu eða óholl-
ustu fitu. Fjölmargar skoðanir
virðast enn vera á lofti hvað
hana varðar og ekki munu öll
kurl vera enn komin til grafar
hvað fituna varðar í heimi nær-
ingarfræðinnar.
Maðurinn er það sem hann
b o r ð a r o g h a n n b o r ð a r
nokkrum sinnum á dag, lífið
út sem eru fjölmargar máltíðir
miðað við 80 ára mannsævi. Það
er því vert að líta til hollustu mat-
arins ef menn vilja auka þrek
sitt og lífsgæði. Það, sem ekki
er á bannlistanum, eru afurðir á
borð við soya, ólífuolíu, ferskar
kjötvörur, mjólkurafurðir, ferska
ávexti, grænmeti, belgjurtir og
hýðiskornvörur. Hreyfinguna
þarf líka að taka föstum tökum,
en tilheyri menn ekki hópi al-
vöru „sportista“ má alltaf finna
leiðir fyrir aukna áreynslu í dag-
lega lífinu. Það má t.d. hugsa
sér að fara fótgangandi eða á
hjóli styttri leiðir í stað þess að
setjast upp í bíl og aka af stað.
Og einnig er vert að hafa í
huga að stigagangar eru mun
heilsusamlegri en lyfturnar. Að
sama skapi er upplagt að leggja
bílnum ekki nákvæmlega fyrir
framan áfangastað, heldur að-
eins frá til að þurfa að ganga
smá spöl. Og þegar ferðast er í
strætó má hugsa sér að fara út
einni stoppistöð á undan eða á
eftir áætluðum áfangastað.
Það er þó alltaf góð regla að
byrja ekki á fullu í ræktinni
nema í samráði við heimilis-
lækninn sinn.
Birgitta Jónsdóttir Klasen er
menntuð í náttúrulækningum,
svæðameðferð, með kennslurétt-
indi, og sálfræðilegri ráðgjöf og
hefur stundað meðferð á þessum
sviðum bæði á eigin stofu og hjá
klínískum sálfræðingi.
Kólesteról er bæði skaðlegt og nauðsynlegt
„Það er þó alltaf góð regla að byrja ekki á fullu í ræktinni nema í samráði við heimilislækninn sinn.“
Birgitta Jónsdóttir Klasen fjallar um kólesteról: