Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.12.2007, Síða 8

Víkurfréttir - 06.12.2007, Síða 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR Vnr. 74092301 Rafhlöðu- borvél SKIL rafhlöðuborvél, 12V, vinnuborð fylgir. 5.990 Vnr. 74094580 Stingsög SKIL stingsög 800W, vinnuborð fylgir. 6.990 Vnr. 74098005 Hitabyssa SKIL hitabyssa, 2000W, vinnuborð fylgir. 7.990 TILVAL IN JÓLAG JÖF Vnr. 74095155 Hjólsög SKIL hjólsög, 1150W, vinnuborð fylgir. 7.990 FYLGIR MEÐ VINNUBORÐ Við kaup af einhverjum af fjórum SKIL verkfærunum í auglýsingunni fylgir frábært vinnuborð frá SKIL með í kaupunum FRÁBÆR JÓLAGJÖF Opnunartímar BYKO Suðurnesi: Virka daga frá 8-18, laugardaga frá 9-15 Umfangsmikil rannsókn á banaslysinu á Vesturgötu í Keflavík: Allir starfsmenn rannsókn-ardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum vinna nú að rannsókn banaslyssins á Vest- urgötu sl. föstudag, þegar fjögurra ára drengur, Kristinn Veigar Sigurðsson, varð fyrir bifreið. Hann lést af áverkum sem hann hlaut í slysinu. Ökumaður bifreiðarinnar sem ók á drenginn stakk af frá slysa- vettvangi. Sólarhring síðar hand- tóku lögreglumenn pólskan karlmann á fertugsaldri. Hann var stöðvaður við sérstakt eftir- lit lögreglu á bifreið sem passar við lýsingu sjónarvotta. Bif- reiðin var jafnframt skemmd og á bílnum voru trefjar úr fatn- aði. Sýni af trefjum sem fund- ust á bílnum og trefjar úr fatn- aði drengsins hafa verið sendar utan til rannsóknar hjá færustu sérfræðingum. Talsmaður lögreglunnar á Suð- urnesjum segir mikinn þunga lagðan í rannsókn málsins. Þar leggist rannsóknarlögreglu- menn og lögreglumenn í al- mennri deild á eitt. Hinn grun- aði í málinu er í gæsluvarðhaldi og verður það fram á miðjan dag í dag, fimmtudag. Ennþá eru að berast vísbend- ingar til lögreglunnar á Suður- nesjum og eru þær allar kann- aðar. Talsmaður lögreglunnar segir engar nýjar fréttir af rann- sókninni aðrar en þær að málið sé flókið úrlausnar. Yfirheyrslur fari allar í gegnum túlka og taki því lengri tíma en ella. Hinn grunaði í málinu sé pólskur og fjögur vitni í málinu, sem hand- tekin voru á sunnudag og sleppt sólarhring síðar, voru einnig pólsk. Fram hefur komið að vitnin hafi reynt að búa til falska fjarvistarsönnun fyrir hinn grun- Lögreglan fylgir eftir öllum vísbendingum Vinir og velunnarar fjöl-skyldu Kristins Veigars, litla drengsins sem lést í um- ferðarslysinu við Vesturgötu, hafa stofnað styrktarreikning til aðstoðar fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum. Reikningsnúmerið er 0542-14- 605021, kennitala 110282-3389. Bæjarbúar sem standa að söfn- uninni vildu hvetja alla til að láta sitt ekki eftir liggja. Frá vettvangi banaslyssins á Vesturgötu á föstudagskvöld. Mynd: hilmar@vf.is Hinn grunaði í málinu leiddur fyrir dómara. Mynd: pket@vf.is aða í málinu. Sl. þriðjudag voru settar niður þrjár hraðahindranir á Vestur- götu á kaflanum á milli Hring- brautar og Hafnargötu. Varan- legar aðgerðir til að draga úr umferðarhraða í götunni verða framkvæmdar í vor. Styrktarreikn- ingur stofnaður fyrir fjölskyldu Kristins Veigars Minningarstund um litla drenginn var haldin í Keflavíkurkirkju á mánudagskvöld. Mynd: hilmar@vf.is

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.