Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.03.2007, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 01.03.2007, Blaðsíða 23
23ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR 1 Man.City-Wigan 1 1 2 Arsenal-Reading 1 1 3 Fulham-Aston Villa 1 1 X 4 Newcastle-Middlesbro 1 1 X 2 5 Portsmouth-Chelsea 2 2 6 Sheff.Utd-Everton 1 2 2 7 Watford-Charlton X 2 X 2 8 Burnley-Crystal Palace 1 2 X 2 9 Ipswich-Q.P.R. 1 1 10 Leeds-Sheff.Wed. 1 1 2 11 Luton-Wolves 2 2 12 Plymouth-Stoke 1 X 2 1 13 W.B.A.-Sunderland 1 X 1 Fyrirtækjaleikur barna- og unglingaráðs Keflavíkur VÖRUHÚS FRÍHAFNAR SBK Tímamót í íslenskri hnefaleikasögu Hnefaleikafrömuðurinn Guðjón Vilhelm heldur til Þýskalands á morgun til þess að dæma heimsmeistarabardaga á vegum Alþjóða hnefaleikasambandsins eða WBA. Guðjón er fyrsti Ís- lendingurinn sem dæmir fyrir WBA og segir það mikinn heiður og stórt skref fyrir hann persónulega að hafa verið boð- aður í verkefnið. Í janúar hélt Guðjón til Sví- þjóðar og var þar dómari í fyrstu atvinnumannahnefaleikakeppn- inni þar í landi í 37 ár. Þar ving- aðist Guðjón við rétta aðila með íslenska hákarlinn að vopni. „Í Svíþjóð kynntist ég Ove Ovesen en hann hefur dæmt hnefaleika síðan 1974 og dæmdi m.a. bar- daga hjá Muhammed Ali. Ég gaf honum íslenskan hákarl og upp hófst á meðal okkar góður vin- skapur. Í kjölfar starfa minna í Svíþjóð sendi Ove bréf til WBA og mældi með mér sem dóm- ara,“ sagði Guðjón. Bréfið frá Ove rataði rétta leið og fyrir um hálfum mánuði síðan hafði WBA samband við Guðjón og bað hann um að dæma bardag- ann í Þýskalandi sem fram fer um helgina. „Þetta er bardagi í millivigt millum þeirra Sebast- ian Silverster sem er titilhafinn og andstæðingur hans verður Al- exio Ferlan. Ég verð einn þriggja stigadómara í bardaganum í fjögurra dómara teymi,” sagði Guðjón en hann telur að þjóð- erni sitt hafi spilað stóran þátt í að hann hafi verið valinn í verkið. ,,Ég kem frá litlu landi þar sem atvinnuhnefaleikar eru ekki leyfðir og því kannski hlut- lausari en aðrir.“ Hvaða þýðingu telur Guðjón að þetta hafi fyrir íslenska hnefaleikadómara? „Við eigum eftir að sjá dóm- urum fjölga og fyrir mig er þetta stórt skref. Við eigum góða dóm- ara í ólympískum hnefaleikum og við megum gera ráð fyrir því að margir góðir hlutir frá Íslands hálfu eigi eftir að ger- ast í boxinu á næstunni,“ sagði Guðjón, fyrsti Íslendingurinn sem klæðist dómarabúningi fyrir WBA. Spurning hvort Guð- jón fái fleiri verkefni ef hann tekur með sér svið eða súrsaða hrútspunga til Þýskalands. Arnar Freyr meiddur Bakvörðurinn Arnar Freyr Jónsson, leikmaður Keflavíkur í Iceland Express deild karla, verður hugsanlega ekki meira með liðinu á þessari leiktíð eftir að hann meiddist í leik gegn Hamri/Selfoss á sunnu- dag. Að öllum líkindum hefur Arnar skaddast á utan- verðum liðböndum hægri fótar og einnig á liðþófa í hné. Þá kennir Arnar sér einnig meiðsla í ökkla. Fyrir liggur að Arnar fari í myndatöku og nákvæmari skoðun en ljóst má vera að meiðsli leikmannsins koma sér afar illa fyrir Kefla- víkurliðið sem hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit í vetur. Skemmdir unnar í Keflavíkurstúkunni Ljót aðkoma blasti við á Kefla- víkurvelli á laugardag þar sem búið var að brjóta fjölmörg sæti í stúkunni og fleygja niður á völlinn. Jón Örvar Arason, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar segir að þeir hafi orðið varir við skemmdarverk af þessu tagi að undanförnu, en ekki svo mikið í einu. Hann segir að engin annar völlur í fremstu röð sé ógirtur með ótakmörkuðu aðgengi almennings. Erfitt sé hins vegar að girða hann af því hlaupabrautin í kringum hann er afar vinsæl meðal bæjarbúa. Keflavík lá gegn Blikum Keflvíkingar máttu sætta sig við 3-2 ósigur gegn Breiðablik í öðrum leik sínum í Lengju- bikarnum í knattspyrnu um síðustu helgi. Mörk Kefla- víkur í leiknum gerðu þeir Guðmundur Steinarsson og Magnús Sverrir Þorsteinsson. Keflavík lenti 3-0 undir eftir 23. mínútna leik. Guðjón Árni Antoníusson fékk rautt spjald í leiknum og í kjölfarið fengu Blikar vítaspyrnu og Kefl- víkingar einum færri. Næsti leikur Keflvíkinga í Lengjubik- arnum verður þann 3. mars í Reykjaneshöllinni þegar þeir taka á móti ÍBV kl. 15:00. Deildarmeistarar? Nj arð v í k i ng ar er u á gó ðri l e i ð me ð að verða deildarmeistarar í Iceland Express deild karla í körfuknattleik og ef svo verður þá verður það fyrsti deildarmeistaratitill Einars Árna Jóhannssonar, þjálfara Njarðvíkur og sá fyrsti hjá liðinu síðan 2001. Njarðvík tók á móti KR í toppslag deildarinnar á mánudag og hafði betur gegn gestum sínum 83-73 með flugeldasýningu frá Jeb Ivey og Brenton Birmingham í fjórða leikhluta. Njarðvíkingar hafa nú fjögurra stiga forskot á KR og Skallagrím þegar þr jár umferðir eru eft ir og mæta botnliði Fjölnis í Grafarvogi í kvöld kl. 19:15. Takist Njarðvíkingum að leggja Fjölni að velli verða þeir deildarmeistarar þar sem KR og Skallagrímur geta einungis jafnað þá að stigum en Njarðvík hefur betur í innbyrðisviðureignum gegn liðunum. Eins og fyrr segir, þá verða þeir að vinna Fjölni til að verða deilarmeistarar og það má ekki vanmeta liðin í fallbaráttunni. Þau geta bitið! Guðjón í dómarasætinu þegar Írarnir komu í heimsókn til Reykjanesbæjar. ÍRB í fantaformi Sundsveit ÍRB fór á kostum í Gullmóti KR sem fram fór í innilauginni í Laugardal um síðustu helgi og hafði þar yfirburðasigur í mótinu með 500 stigum meira en liðið í 2. sæti mótsins. Glæsilegur árangur hjá ÍRB og ljóst að liðið er í fantaformi um þessar mundir enda mörg stórmót framundan. Soffía Klemenzdóttir sigraði í stigakeppni telpna (13-14 ára) og Kristófer Sigurðsson sigr- aði í stigakeppni sveina (12 ára og yngri). Þrátt fyrir að vera í þungum æfingum náði sundfólk ÍRB að sýna góða takta í mótinu. Þess má geta að þau Davíð og Elfa náðu lágmörkum inn í ung- lingalandslið Íslands sem tryggir þeim þátttöku á sterku alþjóð- legu sundmóti í Luxembúrg rétt eftir páska. Fjöldi sundmanna náði tilskyldum lágmörkum til þátttöku á Íslandsmeistaramót- inu í 50 metra laug sem fram fer eftir 3 vikur og Aldursflokka- móti Íslands sem fram fer í enda júní í sumar. Jeb Ivey lét vel til sín taka í fjórða leikhluta gegn KR og skóp Njarðvíkursigurinn í slagtogi með Brenton Birmingham. Níunda leikvika er hafin og að þessu sinni mætast SBK og Vöruhús Fríhafnar. Í síðustu viku mættust Áfangar og Sjúkraþjálfun Suðurnesja þar sem Sjúkraþjálfunin var með 10 rétta og fór með sigur af hólmi en Áfangar höfðu 8 rétta. Ómar, Bjarni og Hulda tippa fyrir Vöruhús Fríhafnarinnar en Hjalti tippar fyrir SBK þessa helgina. Vöruhúsið er á toppi deildarinnar með 10 stig og geta aukið forskot sitt um helgina.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.