Dagsbrún - 01.10.1896, Page 5

Dagsbrún - 01.10.1896, Page 5
149 — A meðan þefr sátu þarna, og biðu eftir máltíðinni, sem leið- sögu-eng'illinn hafði beðið um, sá ég Garrison taka upp blað, sem lá á kristals borðinu, og sá ég að yflrskrift eða nafn þess var : “Jlinn lieilagi fregnberi,” og var keupendatala þess sögð um trillíón. Eit- stjóri þess var Móises og Job aðstoðarritstjóri, og heflr hann eflaust haft ]par gott tækifæri til að æfa þolinmæðina. Á meðal þeirra, sem í blaðið rituðu, sá ég að voru margir alkunnir, rétttrúaðir kyrkju- stólpar. Eins og við mátti búast, skrifaði Jónannes opinberari í það skáldsögu, framhaldandi blað frá blaði. Jónas var aðalritstjóri náttúrufræðis bálksins. Mátti þar sjá kvæði eftir Salomon, sálma eftir dr. Watt, og ýms ljóðmæli eftir Cowper; þar var einnig langt kvæði eftir Pollak, sem nefndist: “Eilifðar stefnan”. Greinar þær, sem sérstaklega snertu jörð vora, vöktu lielst athygli mitt. Var þetta ein þeirra: ‘ÍNGERSOLL heldur sífelt áfram að storka guði; og það sem hættulegast er fyrir ríki drottins er það, að alt hans vantrúarstarf virðist borga sig vel, En vér erura nú að búa iionum sérstakan samastað eftir dauðann. og mun Helvíti verða sannnefnt sældarheimkyrni í samanburði við þennan bústað hans. Hver einasta sál sem glatast heflr beinlínis eða óbeinlínis af lians völdum, verður þar að eldibrandi til að lcveija hann um alla eilífð; og þegar hann reynir að tala þar, .þá mun hann ekki heyra til sjálfs síns fyrir veini hinna fordæmdu sem bilt- ast þar um af hinum ósegjanlegustu kvölum, alt í kringum hann.” Næst tók ég eftir grein um Boston, á þessa leið: “Verri en Sódóma. Boston heldur áfram að vera jafnóhrædd við Helvíti og stork- andi Himnaríki, eins og hún var á dögum Parkers. Hinn heilagi hvíldardagut’ er þar sifeldlega vanlielgaður með söngskemtunum, listaverka-sýningum, og með því að leyfa aðganga að bókasöfnmn. Þar liefir nú verið bygt vantrúarmustori. Og þar sem áður var að eins einn Parker, þar er nú svo hundruðum manna skiftir, sem ýmUt prédika djöfullega villutrú eða eru að búa sig undir þann starfa. Þjónar drottins eru þar sífelt starfandi af hinu mesta kappi, en áhrif þeirra á vantrúarmennina eru ekki meiri, heldur en álirif hins hei- laga Anthoníusar, or hann fór að prédika fyrir fiskunum. Ekkert minna en jarðskjálfti, sem iegði -borgina gjörsamlega í grunn niður, virðist geta stöðvnð þessa djöfullega stefnu. Hve lengi, ó drottinn ! I-Ive lengi ?” Næsta grein var þannig hljóðandi:

x

Dagsbrún

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/1272

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.