Dagsbrún - 01.10.1896, Side 9

Dagsbrún - 01.10.1896, Side 9
— 153 — “En Móises kom hingað trúandi á eínn og að eins einn guð, ‘hinn sanna guð’; og það er ekkert leyndarmál, að minsta kosti fyrir hinum eldri íbúum Hiinnaríkis, að hann var m.jög alvarlega mótfallinn og reyndi með öllu móti að koma í veg fyrir, að Jehóva eftirléti öðrum nokkurn hluta tignar sinnar og veldis, og allra síst syni sínum, fæddum af jarðneskri konu. I stuttu mál: Það er sagt, að hann hafi fyrirlitið og fordæmt öll þessi afskifti guðs og Maríu - Krists ' móður, sem algerlega heiðingleg. — En síðan að Jehóva framkvæmdi það áform sitt, hefir Móises ekki sagt eitt einasta orð um það, þar til nú í ‘Fregnberanum' “En það hefir frá fyrstu vakið eftirtekt hér, að framkoma Móis- esar gagnvart Kristi og móður hans, hefir ætíð verið hin blíðasta og Ijúfmannlegasta, eins og væru þau hans eigin börn. 0g þess vegna hafa margir haldið, að hann skoðaði það sem glæp, að Gvðingar vildu ekki aðhyllast Krist sem guðs son. En hver hefði getað i- myndað sér, það sem nú er á daginn komið, að þessi framkoma hans var sprottin af meðaumkvun, af þvl að hann áleit, að Jehóva hefði gert sig sekan í glæp, með því að hafa samræði við móður Krists. Eins og eðlilegt var, hafa þessar áskoranir, framsettar í opin- beru blaði og með slíkri alvöru, vakið hér mikla og alvarlega hreyf- ingu; og það er mjög líklegt, að langflestir af kaupendum blaðsins, að minnsta kosti, séu honum samdóma. Það heflr lengi verið hér opinbert leyndarmál, að þessi óánægja hefir farið dagvaxandi öldum saman. Og hefði ekki Móises verið fluttur burt í skyndi, áður en vinir hans komust á snoðir um að ætti að taka hann fastan, þá er enginn efi á, að hér hefði orðið almenn styrjöld í annað sinn; og eru margir enda hræddir um, að það mundi orsaka vandræði hér, er al- menningi verður icunn liegning sú, er hann hefir verið dæmdur til að þola.” “Og hver er þessi hegning?” spurði Garrison. “7,777,777 ár á skíðgarði Helvítis, — heilagir sjö sinnum sjö, eins og þú munt minnast”, var svar leiðsögu-engilsins, og tók ég eftir að svipur lians varð einkennilegur og eins og hálf háðslegur um leið og hann sagði þetta “Þetta er skelfilegur dómur, ef sá staður er nokkuð svipaður því sem ég liefi séð í dag,” mælti Garrison ; “og hvaða starf er hon- um ætlað þar.” “Eg get fullvissað þig um, að þessi staður er að engu betri en sýnishorn það, er þú hefir séð,” svaraði leiðsögu-engillinn. “Og starf hans, eins og allra þeirra, sem fyrir samskonar hegning verða, — er að standa á skíðgarði þessum dag og nótt, og með vélum, sem

x

Dagsbrún

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/1272

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.