Fréttablaðið - 15.01.2018, Side 9
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Transporter hefur fylgt kynslóðum af
fólki sem hefur þurft á traustum og
áreiðanlegum vinnuþjarki að halda sem
leysir krefjandi og fjölbreytt verkefni. Hann
er með fullkominni stöðugleikastýringu og
spólvörn og sjö þrepa sjálfskiptingu.
Volkswagen Transporter kostar frá
4.180.000 kr.
(3.344.000 kr. án vsk)
BYGGIR Á TRAUSTUM GRUNNI
Volkswagen Transporter
4Motion
FJÓRHJÓLADRIFI
FÁANLEGUR MEÐ
Við látum framtíðina rætast.
Til afhendingar strax!
Börn hafa ítrekað verið send heim af leikskólum Reykjavíkur vegna manneklu að undan-
förnu. Aðlögun barna hefur verið
skert og deildir hafa lokað. Aðeins
helmingur leikskóla í Reykjavík eru
fullmannaðir. Enn vantar 46 stöðu-
gildi og hundruð leikskólabarna
hafa þurft að vera heima vegna
þessa ástands. Þá er skortur á dagfor-
eldrum sömuleiðis mikill í Reykjavík
og margir foreldrar flytja yfir í önnur
sveitarfélög vegna þessa. Vandinn
er því bæði raunverulegur og mikill.
Þetta þarf að leysa.
Reykvískir foreldrar gera þá eðli-
legu kröfu til Reykjavíkurborgar að
þeim standi leikskólapláss til boða
fyrir börn sín. Þeir eiga ekki að búa
við það óöryggi að þurfa að fara úr
vinnu fyrirvaralaust vegna undir-
mönnunar í leikskólunum. Reykja-
víkurborg hefur hins vegar aldrei
haft eins miklar tekjur og nú. Mesta
tekjugóðæri Íslandssögunnar stendur
yfir og hefur Reykjavík því notið stór-
aukinna tekna bæði af útsvari, ferða-
mönnum og hækkandi fasteigna-
sköttum. Stjórnkerfi Reykjavíkur
hefur stækkað mikið samhliða þessu
og er orðið bæði dýrt og óskilvirkt.
Það þarf að hagræða í yfirbyggingu
stjórnkerfis borgarinnar og fjármagna
þannig lausn leikskólavandans.
Fordæmi eru fyrir því að skera
niður í stjórnkerfinu og skila þeim
ávinningi til íbúanna. Þegar ég var
oddviti í Árborg var stjórnunarkostn-
aður skorinn verulega niður og þjón-
usta við íbúana aukin meðal annars
með opnun leikskólarýma sem á
fyrra kjörtímabili hafði verið lokað
í sparnaðarskyni. Það er því hægt að
leysa leikskólavandann án þess að
skuldsetja borgina meira en orðið er.
Ég ætla að taka til á kostnaðar-
hliðinni þar sem bruðl og óþarfa
yfirbygging er fyrir hendi – og skila
ávinningnum til íbúanna með betri
þjónustu.
Leysum leikskólavandann
Eyþór Arnalds
frambjóðandi
í leiðtogapróf-
kjöri Sjálf-
stæðisflokksins
í Reykjavík
Reykvískir foreldrar gera
þá eðlilegu kröfu til Reykja-
víkurborgar að þeim standi
leikskólapláss til boða fyrir
börn sín.
Ég veit upp á hár hvernig ég vil hafa næsta forseta Bandaríkjanna. Ég vil ekkert frumlegt, nýtt, eða ferskt.
Bandaríska þjóðin valdi ansi ferskt og
frumlegt síðast. Næsta týpa sem velst í
þetta starf þarf að vera holdgervingur
ófrumleikans; spaghettí bolognese í
mannsmynd. Já, við þurfum Klisju.
Klisja vex úr grasi
Mér er sama hvar Klisja er fædd. Eina
krafan sem ég geri að að hún tali vel um
heimabæ sinn og fjölskyldu og búi til
sögu sem hylji efnahagslegan bakgrunn
hennar. Segi að foreldrar sínir hafi
unnið mikið en samt elskað sig og gefið
sér hvolp. Eða hjálpað sér að eignast
fyrsta bílinn. Klisjan þarf að geta lýst
fyrsta bílnum sínum rækilega. Já, og
bíllinn verður að vera amerískur.
Mér er reyndar sama þó að Klisjan sé
efnuð. Hún má alveg vera efnuð en þá
þarf hún bara að vinna sig upp ættar-
tréð, finna fátækan forföður og rifja upp
hjartnæma sögu hans: „Langaafi minn
kom hingað frá Ítalíu í stuttbuxum
og nærbol einum fata, en fann vinnu
og vann 18 tíma á dag. Bara til að við
hefðum það betra. Ég hugsa oft til hans.“
… lærir lögfræði
Menntun Klisjunnar skiptir miklu
máli. Eina menntunin sem ég tek
gilda hjá Klisju-forseta er lögfræði eða
stjórnmálafræði. Ég vil að kennarar og
samnemendur minnist Klisjunnar sem
metnaðarfulls nemanda sem var um
leið algerlega áhugalaus um akadem-
ískan frama. Ég vil fá einhvern sem var
frábær í lögfræði (eða stjórnmálafræði)
en leiddist hún samt. Ég vil einhvern
sem kláraði bara námið til að geta sagst
vera eitthvað í fyrsta prófkjörinu.
Ég fyrirgef Klisjunni stutt stopp á
vinnumarkaðnum, en aðeins ef það er
hluti af blygðunarlausri ímyndarupp-
byggingu. Klisjan þarf að geta sagt hluti
á borð við: „Eftir námið gat ég hvergi
fundið vinnu, svo ég steikti borgara í
vegasjoppu. En svo vann ég mig upp í
það að vera aðstoðarmaður þingmanns.
Svona eru Bandaríkin!“
Ég vil ekki viðskiptabakgrunn nema
í skötulíki, og þá aðeins við eigin fjöl-
skyldurekstur og aðeins sem augljósan
biðleik í stjórnmálum.
Og kæra fólk með raunvísinda- eða
hagfræðimenntun! Haldið áfram að
pikka á reiknivélina, forsetaembættið er
ekki fyrir ykkur.
… tranar sér fram
Klisjan á með engu móti að geta kallað
sig utanbæjarmanneskju í stjórnmálum.
Klisjan þarf að hafa búið í Washington
meirihluta ævinnar, þó hún megi halda
lögheimilinu annars staðar. Til að það
lúkki betur.
Klisjan þarf helst að hafa skráð sig
í stjórnmálaflokk fyrir tvítugt. Mér er
sama í hvorn flokkinn. Ef Klisjan er frá
Suðurríkjunum þá finnst mér ekkert
að því ef hún hefur byrjað ferilinn hjá
Repúblíkönum. Ef Klisjan er frá New
York þá tek ég ekki mark á henni nema
að hún hafi skráð sig í Demókrata á
fyrsta ári í háskóla.
Þá er ekkert að því að Klisjan einfald-
lega skipti um flokk ef ferill hennar er
ekki að fara neitt. Hins vegar vil ég ekki
sjá fólk sem byrjaði í smáflokkum eða
var jafnvel óflokksbundið langt fram á
fullorðinsár.
Ferill Klisjunnar í stjórnmálum
má innihalda hæðir og lægðir, sigra
og töp, tímabil þar sem klisjan situr í
kjörnum embættum sem og tímabil
þar sem hún hreppir augljósa bitlinga
vegna pólitískra tengsla. Stjórnarsetur,
aðstoðarmannastöður, kosningabar-
áttugigg, verkefni á vegum lobbýista
eða flokkspólitískra hugveitna. Klisjan
þarf að halda sér í faginu. Því pólitík
er fag.
… og verður leiðinlegur forseti
Ég vil ekki að Klisjan sé þekkt fyrir
„hreinskilni“. Forseti á ekki að segja
hlutina „eins og þeir eru“. Forseti á tala
eins og fagmaður. Þegar Klisju-forseti
tekur til máls á fólki ekki að líða eins og
þegar það er langt liðið á brúðkaups-
veisluna og furðulegi frændinn, sem allir
vita að fílaði fyrri makann betur, vill fá
að halda ræðu.
Við kvörtum undan því að stjórn-
málamenn tali í gátum og vilji engan
stuða. En kannski gera þeir það bara út
af því að það er skárra þannig. Kannski
er skárra að vera með fagmenn sem tala
í klisjum og eru klisjur. Við höfum nú
allavega prófað hitt.
Klisjan 2020
Klisjan þarf
helst að hafa
skráð sig í
stjórnmála-
flokk fyrir
tvítugt. Mér er
sama í hvorn
flokkinn.
Í dag
Pawel
Bartoszek
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 1 5 . j a n ú a R 2 0 1 8
1
5
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
C
-E
D
B
0
1
E
B
C
-E
C
7
4
1
E
B
C
-E
B
3
8
1
E
B
C
-E
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
4
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K