Fréttablaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 9
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ Transporter hefur fylgt kynslóðum af fólki sem hefur þurft á traustum og áreiðanlegum vinnuþjarki að halda sem leysir krefjandi og fjölbreytt verkefni. Hann er með fullkominni stöðugleikastýringu og spólvörn og sjö þrepa sjálfskiptingu. Volkswagen Transporter kostar frá 4.180.000 kr. (3.344.000 kr. án vsk) BYGGIR Á TRAUSTUM GRUNNI Volkswagen Transporter 4Motion FJÓRHJÓLADRIFI FÁANLEGUR MEÐ Við látum framtíðina rætast. Til afhendingar strax! Börn hafa ítrekað verið send heim af leikskólum Reykjavíkur vegna manneklu að undan- förnu. Aðlögun barna hefur verið skert og deildir hafa lokað. Aðeins helmingur leikskóla í Reykjavík eru fullmannaðir. Enn vantar 46 stöðu- gildi og hundruð leikskólabarna hafa þurft að vera heima vegna þessa ástands. Þá er skortur á dagfor- eldrum sömuleiðis mikill í Reykjavík og margir foreldrar flytja yfir í önnur sveitarfélög vegna þessa. Vandinn er því bæði raunverulegur og mikill. Þetta þarf að leysa. Reykvískir foreldrar gera þá eðli- legu kröfu til Reykjavíkurborgar að þeim standi leikskólapláss til boða fyrir börn sín. Þeir eiga ekki að búa við það óöryggi að þurfa að fara úr vinnu fyrirvaralaust vegna undir- mönnunar í leikskólunum. Reykja- víkurborg hefur hins vegar aldrei haft eins miklar tekjur og nú. Mesta tekjugóðæri Íslandssögunnar stendur yfir og hefur Reykjavík því notið stór- aukinna tekna bæði af útsvari, ferða- mönnum og hækkandi fasteigna- sköttum. Stjórnkerfi Reykjavíkur hefur stækkað mikið samhliða þessu og er orðið bæði dýrt og óskilvirkt. Það þarf að hagræða í yfirbyggingu stjórnkerfis borgarinnar og fjármagna þannig lausn leikskólavandans. Fordæmi eru fyrir því að skera niður í stjórnkerfinu og skila þeim ávinningi til íbúanna. Þegar ég var oddviti í Árborg var stjórnunarkostn- aður skorinn verulega niður og þjón- usta við íbúana aukin meðal annars með opnun leikskólarýma sem á fyrra kjörtímabili hafði verið lokað í sparnaðarskyni. Það er því hægt að leysa leikskólavandann án þess að skuldsetja borgina meira en orðið er. Ég ætla að taka til á kostnaðar- hliðinni þar sem bruðl og óþarfa yfirbygging er fyrir hendi – og skila ávinningnum til íbúanna með betri þjónustu. Leysum leikskólavandann Eyþór Arnalds frambjóðandi í leiðtogapróf- kjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík Reykvískir foreldrar gera þá eðlilegu kröfu til Reykja- víkurborgar að þeim standi leikskólapláss til boða fyrir börn sín. Ég veit upp á hár hvernig ég vil hafa næsta forseta Bandaríkjanna. Ég vil ekkert frumlegt, nýtt, eða ferskt. Bandaríska þjóðin valdi ansi ferskt og frumlegt síðast. Næsta týpa sem velst í þetta starf þarf að vera holdgervingur ófrumleikans; spaghettí bolognese í mannsmynd. Já, við þurfum Klisju. Klisja vex úr grasi Mér er sama hvar Klisja er fædd. Eina krafan sem ég geri að að hún tali vel um heimabæ sinn og fjölskyldu og búi til sögu sem hylji efnahagslegan bakgrunn hennar. Segi að foreldrar sínir hafi unnið mikið en samt elskað sig og gefið sér hvolp. Eða hjálpað sér að eignast fyrsta bílinn. Klisjan þarf að geta lýst fyrsta bílnum sínum rækilega. Já, og bíllinn verður að vera amerískur. Mér er reyndar sama þó að Klisjan sé efnuð. Hún má alveg vera efnuð en þá þarf hún bara að vinna sig upp ættar- tréð, finna fátækan forföður og rifja upp hjartnæma sögu hans: „Langaafi minn kom hingað frá Ítalíu í stuttbuxum og nærbol einum fata, en fann vinnu og vann 18 tíma á dag. Bara til að við hefðum það betra. Ég hugsa oft til hans.“ … lærir lögfræði Menntun Klisjunnar skiptir miklu máli. Eina menntunin sem ég tek gilda hjá Klisju-forseta er lögfræði eða stjórnmálafræði. Ég vil að kennarar og samnemendur minnist Klisjunnar sem metnaðarfulls nemanda sem var um leið algerlega áhugalaus um akadem- ískan frama. Ég vil fá einhvern sem var frábær í lögfræði (eða stjórnmálafræði) en leiddist hún samt. Ég vil einhvern sem kláraði bara námið til að geta sagst vera eitthvað í fyrsta prófkjörinu. Ég fyrirgef Klisjunni stutt stopp á vinnumarkaðnum, en aðeins ef það er hluti af blygðunarlausri ímyndarupp- byggingu. Klisjan þarf að geta sagt hluti á borð við: „Eftir námið gat ég hvergi fundið vinnu, svo ég steikti borgara í vegasjoppu. En svo vann ég mig upp í það að vera aðstoðarmaður þingmanns. Svona eru Bandaríkin!“ Ég vil ekki viðskiptabakgrunn nema í skötulíki, og þá aðeins við eigin fjöl- skyldurekstur og aðeins sem augljósan biðleik í stjórnmálum. Og kæra fólk með raunvísinda- eða hagfræðimenntun! Haldið áfram að pikka á reiknivélina, forsetaembættið er ekki fyrir ykkur. … tranar sér fram Klisjan á með engu móti að geta kallað sig utanbæjarmanneskju í stjórnmálum. Klisjan þarf að hafa búið í Washington meirihluta ævinnar, þó hún megi halda lögheimilinu annars staðar. Til að það lúkki betur. Klisjan þarf helst að hafa skráð sig í stjórnmálaflokk fyrir tvítugt. Mér er sama í hvorn flokkinn. Ef Klisjan er frá Suðurríkjunum þá finnst mér ekkert að því ef hún hefur byrjað ferilinn hjá Repúblíkönum. Ef Klisjan er frá New York þá tek ég ekki mark á henni nema að hún hafi skráð sig í Demókrata á fyrsta ári í háskóla. Þá er ekkert að því að Klisjan einfald- lega skipti um flokk ef ferill hennar er ekki að fara neitt. Hins vegar vil ég ekki sjá fólk sem byrjaði í smáflokkum eða var jafnvel óflokksbundið langt fram á fullorðinsár. Ferill Klisjunnar í stjórnmálum má innihalda hæðir og lægðir, sigra og töp, tímabil þar sem klisjan situr í kjörnum embættum sem og tímabil þar sem hún hreppir augljósa bitlinga vegna pólitískra tengsla. Stjórnarsetur, aðstoðarmannastöður, kosningabar- áttugigg, verkefni á vegum lobbýista eða flokkspólitískra hugveitna. Klisjan þarf að halda sér í faginu. Því pólitík er fag. … og verður leiðinlegur forseti Ég vil ekki að Klisjan sé þekkt fyrir „hreinskilni“. Forseti á ekki að segja hlutina „eins og þeir eru“. Forseti á tala eins og fagmaður. Þegar Klisju-forseti tekur til máls á fólki ekki að líða eins og þegar það er langt liðið á brúðkaups- veisluna og furðulegi frændinn, sem allir vita að fílaði fyrri makann betur, vill fá að halda ræðu. Við kvörtum undan því að stjórn- málamenn tali í gátum og vilji engan stuða. En kannski gera þeir það bara út af því að það er skárra þannig. Kannski er skárra að vera með fagmenn sem tala í klisjum og eru klisjur. Við höfum nú allavega prófað hitt. Klisjan 2020 Klisjan þarf helst að hafa skráð sig í stjórnmála- flokk fyrir tvítugt. Mér er sama í hvorn flokkinn. Í dag Pawel Bartoszek S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 9M Á n u d a g u R 1 5 . j a n ú a R 2 0 1 8 1 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B C -E D B 0 1 E B C -E C 7 4 1 E B C -E B 3 8 1 E B C -E 9 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.