Fréttatíminn - 24.03.2017, Blaðsíða 8
8 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017
Tvöfalt heilbrigðiskerfi hefur orðið
til í Svíþjóð samhliða aukinni
einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu
þar sem fólk er annars vegar tryggt
í gegnum almannatryggingakerfið
og svo hins vegar í gegnum einka
rekin tryggingafyrirtæki. Sex pró
sent Svía, um 640 þúsund manns,
eru með heilbrigðistryggingu í
gegnum einkafyrirtæki og hefur
fjöldi þeirra nærri sjöfaldast frá ár
inu 2000. Stór hluti þeirra sem eru
Óttarr Proppé mun á næstu
dögum tilkynna hvort hann
samþykkir fyrsta einkarekna
sjúkrahús Íslands sem fjármagn
að verður af Sjúkratryggingum.
Ísland horfir mikið til Svíþjóðar
eftir fyrirmyndum um rekstur
heilbrigðiskerfisins. Síðastliðin
20 ár hefur heilbrigðiskerfið þar
þróast í átt að meiri einkarekstri
í rekstri sjúkrahúsa, heilsugæslu
stöðva og eins í sjúkratrygging
um. Nú er svo komið að vinstri
stjórn Stefans Löfvens vill draga
úr þessari þróun þar sem hún
feli í sér mismunun á grundvelli
efnahags. Spurningin er hvernig
heilbrigðiskerfi Ísland vill? Kerfi
eins og er í Svíþjóð að kerfi þar
sem ríkisrekstur er enn meiri?
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Tvöfalt heilbrigðiskerfi í Svíþjóð
fyrir þá efnameiri og efnaminni
sjúkratryggingu hjá einkaðilum en
árið 2014, þegar stjórn hans fór frá,
var þessi tala komin upp í tæplega
622 þúsund. Aukningin á sjúkra
tryggingum í gegnum einkafyrir
tæki hafði hafist í ríkisstjórnartíð
Görans Perssons, formanns Sós
íaldemókrata og forsætisráðherra
á árunum 1996 til 2006, en aukn
ingin á slíkum tryggingum varð
enn meiri eftir að Reinfeldt tók við.
Strax árið 2007 gerði ríkisstjórn
Reinfeldts auk þess lagabreytingu
sem gerði einkafyrirtækjum í heil
brigðiskerfinu mögulegt að taka
einstaklinga með sjúkratryggingu
hjá einkafyrirtæki fram yfir þá
sem voru með opinbera sjúkra
tryggingu.
Stefan Löfven beitti sér svo gegn
þessari gerð sjúkratrygginga þegar
hann var verkalýðsforkólfur hjá
stéttarfélagi stáliðnaðarmanna
IF Metall og sagði hann þá meðal
annars að Reinfeldt vildi ýta undir
að iðnaðarmenn keyptu sér sjúkra
tryggingu hjá einkafyrirtækjum.
Í kosningabaráttunni fyrir þing
kosningarnar árið 2014 var eitt af
loforðum Löfvens að hann myndi
beita sér gegn einkavæðingu í heil
brigðiskerfinu. „Það verða ekki
fleiri einkasjúkrahús. Heilbrigð
iskerfið er ekki markaður eins og
hver annar og við verðum að sjá
til þess að allir séu jafnir þegar
heilbrigðisþjónusta er veitt og þeir
sem mest þurfa á henni að halda
fái hana. Við skulum ekki búa til
þannig kerfi vegna þess að þegar
við horfum til þess hvað kemur
út úr því: ólíkir verðlistar, einka
sjúkrahús og sjúkratryggingar hjá
einkafyrirtækjum þá verður kom
in upp staða þar sem heilbrigðis
þjónusta verður ekki lengur veitt á
grundvelli þess hver þarf á henni
halda heldur eftir efnahag fólks.“
Klíníkin í Ármúla vill meðal
annars fá að gera mjaðma
skiptaaðgerðir, eins og verið er
að gera á þessari mynd. Slíkar
aðgerðir hafa um árabil verið
gerðar í einkarekstri í Svíþjóð.
Mynd | Shutterstock
Einkarekstrarvæðing heilbrigðiskerfisins í Svíþjóð:
2006 2015
Sjúkratrygging hjá einkafyrirtæki 218.064 649.000
Fjöldi einkarekinna heilsugæslustöðva 25 % 41,9 %
Kaup þjónustu af einkareknum lækningafyrirtækjum 18 milljarðar SEK 39 milljarðar SEK
EINKAVÆÐING HEILBRIGÐISKERFISINS
„Heilbrigðiskerfið er ekki markaður eins og
hver annar og við verðum að sjá til þess að allir
séu jafnir þegar heilbrigðisþjónusta er veitt og
þeir sem mest þurfa á henni að halda fái hana.“
Ákvörðunin sem
Óttar Próppé
heilbrigðisráðherra
stendur nú frammi
fyrir hefur mikið
fordæmisgildi þar
sem um er að ræða
fyrsta einkarekna
sjúkrahús Íslands.
SVEFNSÓFAR
Glæsilegir og vandaðir
svefnsófar frá Ítalíu
Áttu von á gestum?
Suðurlandsbraut 24
554 6969 lur.is
Calia Svefnsófi Natalie Calia Horn-Svefnsófi
Calia Tungu-svefnsófiCalia Svefnstóll
VERIÐ VELKOMIN
Í HEIMSÓKN
með sjúkratryggingu hjá einkafyr
irtæki er fólk úr hærri tekjuhópum
samfélagsins þar sem um 72 pró
sent þeirra fá sjúkratrygginguna í
gegnum vinnuveitanda sinn. Mest
hefur aukningin verið síðastliðin
fimm ár eða 33 prósent á ári. Þrátt
fyrir þetta er hins vegar einung
is eitt prósent af kostnaðinum við
sænska heilbrigðiskerfið greiddur
af þessum sjúkratryggingum við
einkafyrirtæki.
Þetta kerfi hefur verið mjög
umdeilt í Svíþjóð og skrifaði hag
fræðingurinn John Lapidus, sem
starfar við háskólann í Gautaborg,
meðal annars síðla árs í fyrra að
sjúkratryggingar frá einkafyrir
tækjum myndu „hola“ sænska
heilbrigðiskerfið að innan. Starfs
maður hagsmunasamtaka í sænsku
atvinnulífi, Svensk näringsliv sem
líkja má við Viðskiptaráð á Íslandi,
hefur svo meðal annars mótmælt
þessari túlkun og sagt að sjúkra
tryggingar hjá einkafyrirtækjum
stytti biðtíma fólks með opinbera
sjúkratryggingu.
Sænska ríkistjórnin, sem er
vinstri/miðju stjórn Sósíal demó
krata og Græningja, vill reyna að
breyta þessu fyrirkomulagi og vill
tryggja jafnt aðgengi allra að heil
brigðisþjónustu og ætlar að seta
ný lög um heilbrigðiskerfið næsta
sumar.
Breytingar með hægri stjórn
Eitt af því sem vekur athygli við
þessa þróun í átt að tvöföldu heil
brigðiskerfi í Svíþjóð er að stærstur
hluti þeirra kerfisbreytinga sem
ríkisstjórn Stefans Löfvens for
sætisráðherra er nú að bregðast
við átti sér stað í ríkisstjórnartíð
hægri stjórnar Frederich Rein
feldts úr flokki Moderaterna á ár
unum 2006 til 2014.
Ríkisstjórn Reinfeldts var nokk
uð hægrisinnuð og gerði marg
víslegar breytingar á sænsku
samfélagi, meðal annars að auka
einkarekstur í heilbrigðiskerfinu
og selja ýmsar ríkiseignir, eins og
fasteignafélög og apótek, til einka
aðila. Þegar ríkisstjórn Reinfeldts
tók við völdum árið 2006 voru
rúmlega 218 þúsund manns með