Fréttatíminn - 24.03.2017, Blaðsíða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017
Hvað þarf einstaklingur
að hafa í tekjur?
Þröskuldur
efri millistéttar:
Heildarlaun:
635
þús. kr.
Þröskuldur
neðri millistéttar:
Heildarlaun:
515
þús. kr.
Þröskuldur
lágstéttar:
Heildarlaun:
333
þús. kr.
Lægri heildarlaun duga ekki fyrir
grunn framfærslu.
Hástétt Efri millistétt Lægri millistétt Lágstétt Örbirgð
Stjórnendur 30% 60% 10% 0% 0%
Sérfræðingar 0% 45% 30% 25% 0%
Tæknar og sérmenntað starfsfólk 0% 40% 25% 35% 0%
Skrifstofufólk 0% 10% 25% 65% 0%
Þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk 0% 0% 25% 50% 25%
Iðnaðarmenn og sérhæft iðnverkafólk 0% 30% 30% 40% 0%
Véla- og vélgæslufólk 0% 15% 40% 45% 0%
Ósérhæft starfsfólk 0% 0% 20% 60% 20%
Með aukinni menntun hefur
fjölgað í millistétt sé miðað við
menningarlega og sögulega
flokkun. En með fjölgun í millistétt
hafa launakjör millistéttarfólks
líka dregist saman. Þeim hefur því
fjölgað sem sinna hefðbundnum
millistéttarstörfum en sem búa við
lágstéttarkjör.
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Flokkun í stéttir er mis fyrirferða-
mikil í umræðunni. Í bandarískum
stjórnmálum er gerður veigamik-
ill munur á lágstétt og millistétt og
stjórnmálamenn ávarpa þessa hópa
með ólíkum hætti. Það sem brenn-
ur á millistéttinni eru oft hagsmun-
ir sem eru utan seilingar hjá lág-
stéttinni. Aukið aðgengi að lánsfé
og lægri vextir geta bætt húsnæð-
isstöðu millistéttarinnar á meðan
fjölgun félagslegra íbúða og þak á
húsaleigu er raunhæfari lausnir
gagnvart lágstéttinni.
Andstaða við stéttatali
Á Íslandi snýst stjórnmálaumræð-
an mest um almennar aðgerðir sem
ætlað er að bæta hag meðalfólks en
síður um sértækar aðgerðir til að
mæta þörfum hinna verst settu.
Ástæður þessa eru sögulegar.
Annars vegar er sú hugmynd rót-
gróin að Ísland sé stéttlaust samfé-
lag. Hins vegar höfum við lifað langt
valdaskeið nýfrjálshyggjunnar sem
lítur á stétt sem persónulegt mál en
ekki félagslegt. Hinn fátæki er ekki
fátækur vegna félagslegra aðstæðna
sem má laga heldur vegna þess að
hann er gallaður ríkur maður. Besta
leiðin til að fækka fátækum er að
vinna sig upp úr henni, segja prestar
nýfrjálshyggjunnar.
En hver er staðan á Íslandi?
Hversu stór er lágstéttin?
Helmingurinn lágstétt
Bandaríkjamenn eru líklegri en
Evrópumenn til að búa til skýran
Hástétt 3%
Efri millistétt 26% Neðri millistétt 26% Lágstétt 37%
Örbrigð 8%
Byggt á framfærsluviðmiðum velferðarráðuneytisins miðað við einstaklingsframfærslu og upplýsingum Hagstofunnar um reglubundin heildarlaun á vinnumarkaði, uppreiknuð miðað við hækkun launavísitölu.
Skipting launafólks í stéttir á Íslandi
Svo skiptist íslenskt launafólk í stéttir á Ísland ef framfærsluviðmið velferðarráðuneytisins eru notuð til grundvallar. Yst til hægri
er launafólk sem nær ekki grunnviðmiðum, getur ekki sinnt grunnþörfum með reglulegum heildarlaunum sínum eftir skatta,
lífeyrisiðgjöldum og húsnæðiskostnaði. Þar næst kemur lágstéttin, sem hefur ráðstöfunartekjur eftir skatta, iðgjöld og húsnæð-
iskostnað frá grunnviðmiðum og upp að 20 prósentum undir dæmigerðum meðalútgjöldum. Þá kemur lægri millistétt sem er
með til ráðstöfunar frá meðalútgjöldum og niður í 20 prósent undir meðaltalinu. Millistéttin er síðan með til ráðstöfunar frá
meðalútgjöldum og upp að þingfararkaupi, sem er tæp milljón krónur á mánuði. Efst er hástéttin, Alþingismenn og betur settir.
Millistétt í huganum, lágstétt í veskinu
greinarmun á millistétt og lágstétt.
Þar hafa margar stofnanir reiknað
út hvar mörkin liggja; hversu há
laun þú þarft að hafa til að geta upp-
fyllt hefðbundna millistéttardrauma
um eigið hús, bíl, eftirlaunasjóð og
stuðning við menntun barna.
Ef þessar tölur eru færðar til Ís-
land og leiðrétt fyrir ólíku verðlagi
má segja að rétt tæpur helmingur
launþega nái ekki upp í millistétt.
Þegar lífeyrisþegum hefur verið
bætt við er ljóst að vel rúmur helm-
ingur Íslendinga nær ekki að klifra
upp í millistétt í Bandaríkjunum.
En þessi samanburður er ekki
sanngjarn. Þótt velferðarkerfið hafi
verið höggvið mikið niður að undan-
förnu þurfa Íslendingar ekki að
borga eins mikið úr eigin vasa af vel-
ferðarþjónustu og Bandaríkjamenn.
Fátækari fátækir
Í Evrópu er algengara að miða út frá
meðallaunum. Þeir eru þá lágstétt
sem eru með minna en 20 prósent af
meðallaunum og þau lifa við fátækt
sem ná ekki hálfum meðallaunum.
Gallinn við þennan samanburð
er að launakúrfan er mjög misjöfn
milli landa. Á Íslandi eru meðallaun-
in til dæmis mjög lág í samanburði
við næstu lönd og því mælast iðu-
lega tiltölulega fáir fátækir á Íslandi.
Þetta sést vel þegar borið er saman
ráðstöfunarfé þeirra sem eru skil-
greindir fátækir í ólíkum löndum
með þessari aðferð. Þá standa fá-
tækir á Íslandi yfirleitt langt að baki
fátækum í öðrum löndum.
13 þúsund í örbirgð
Tilraun velferðarráðuneytisins til
að mæla annars vegar dæmigerð út-
gjöld fólks og meta hins vegar grunn-
framfærslu, lágmark þess sem fólk
þarf til að lifa, er athygli verð. Þar
vantar reyndar húsnæðiskostnað
(leigu, afborganir og vexti, viðhald,
rafmagn og hita) en ef við bætum
við áætlum um það getum við dregið
línur sem geta markað skil örbirgð-
ar og lágstéttar við grunnframfærsl-
una, lágstéttar og neðri millistéttar
við um 80 prósent af meðalframfær-
slu og síðan neðri og efri millistéttar
við meðalframfærsluna.
Ef við drögum þessar línur síð-
an eftir reglulegum heildarlaunum
fólks, samkvæmt upplýsingum Hag-
stofunnar, kemur í ljós að um 8 pró-
sent launafólks hefur lægri heildar-
tekjur, það er heildarlaun fyrir fulla
vinna, en sem nægja fyrir grunn-
framfærslu. Þetta fólk dregur ekki
fram lífið af launum sínum og er
háð aðstoð ættingja eða góðgerða-
samtaka. Áætla má að þetta séu um
þrettán þúsund manns og bætast
þeir við hóp öryrkja, ellilífeyrisþega
og annarra utan vinnumarkaðar
sem berjast daglega við fátækt.
Hér er miðað við einstaklinga.
Tveir einstaklingar sem búa saman
geta dreift hluta af framfærslu-
byrðinni, en börnum fylgir hins
vegar aukin byrði. Segja má að þetta
sé því mælikvarði á stéttarstöðu
einstaklinga, hver staða launafólks
er án tillits til fjölskyldugerðar.
Meirihlutinn í lág- og lægri miðstétt
Miðað við þessa mælikvarða tilheyr-
ir um 37 prósent vinnandi fólks lág-
stétt. Þetta er fólk sem hefur ekki
laun til að standa undir skuldsettum
íbúðarkaupum, er á mörkum þess
að eiga fyrir eigin bíl og getur örugg-
lega ekki safnað sparifé. Sögulega er
það fólk í þessari stöðu sem hefur
knúið á um félagslegar lausnir í hús-
næðismálum, almenningssamgöng-
ur og stuðning frá almannatrygging-
um og/eða skattkerfinu.
Fyrir ofan þennan hóp er neðri
millistétt sem eru um 26 prósent
launafólks, miðað við þennan mæli-
kvarða. Þetta fólk er á mörkum þess
að hafa fjárhagslega getu til að geta
safnað upp í útborgun íbúðar, á ekki
fyrir bíl nema að neita sér um margt
annað og getur í sjálfu sér ekki veitt
sér mikið. Hagsmunir þess eru um
margt líkir hagsmunum lágstéttar-
innar, það hefur sambærilegan hag
af uppbyggingu velferðarkerfisins og
samneyslunnar.
Fáir í góðum málum
Miðað við þessar breiðu línur
myndu um 26 prósent launafólks
flokkast í efri millistétt. Svo má
flokka 3 prósent sem hástétt, ef við
skerum línuna við þingfararkaup.
Það eru því ekki nema 29 prósent
landsmanna sem hafa fjárhagslega
burði til að láta hefðbundna milli-
stéttardrauma rætast; eignast eig-
ið húsnæði, bifreið, safnað í sjóð og
búa við fjárhagslegt öryggi.
Það var fólk úr þessum hópi sem
fékk mest út úr skuldaniðurfærslu
síðustu ríkisstjórnar og á margan
hátt hefur stjórnmálaumræða
liðinna ára snúist um hagsmuni
hans.
Það skýrir að mörgu leyti þá reiði
sem blossað hefur upp í tengslum
við umræðu um fátækt um síðustu
vikum. Stór hluti landsmanna get-
ur miklu fremur tengt við erfiðleika
þeirra sem eru að berjast fyrir lífi
sínu á mörkum fátæktar og þeirra
sem hafa sogast niður í djúpa fátækt,
en það fólk sem stjórnvöld virðast
miða við þegar þau eru þess fullviss
að fólk hafi það gott og sé fullt bjart-
sýni þegar það horfir fram á veginn.
Líklega er sá hópur ekki stærri en
sá sem gefur upp stuðning við þessa
ríkisstjórn eða flokkana sem standa
að baki henni.