Fréttatíminn - 24.03.2017, Qupperneq 27
| 27FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017
Það tók Dagnýju Rut Haralds-
dóttur tíu ár að læra að takast á við
ofsakvíða. Nú kann hún að grípa í
taumana áður en kvíðinn blossar
upp. Hún segir hugræna atferl-
ismeðferð hafa hjálpað sér mest
en mataræði og regluleg hreyfing
skipti sköpum.
„Þegar ég var greind með ofsa-
kvíða, árið 2004, var kvíði ekkert
í umræðunni. Ég þurfti í raun að
ganga á milli sérfræðinga til að fá
greiningu. Svo fékk ég loks þetta
nafn, ofsakvíða, og þá gat ég farið
að leita mér upplýsinga. Þær voru
mjög takmarkaðar á þeim tíma og
ég þurfti sjálf að biðja um tilvísun
til sálfræðings til að gera eitthvað
í málinu. Þar hófst vinnan fyrir
alvöru,“ segir Dagný.
Hjá sálfræðingnum fór Dagný
í mikla sjálfskoðun og lærði um
eðli ofsakvíða. „Sálfræðingurinn
veitti mér hugræna atferlismeðferð
og samhliða því las ég mig til um
kvíða. Ég róaðist við að lesa fræði-
greinar sem lýstu einkennunum og
það sló á hræðslu mína við þau.“
Dagný segir að það sé ekkert eitt
sem valdi henni kvíða. „Ég held
bara að ég hafi alltaf verið kvíð-
in, alveg frá því ég var barn. Það
þekktist ekki þá. Ég áttaði mig á því
í sálfræðimeðferðinni að kvíðinn
hafði verið lengi að gerjast. Svo árið
2004 var ég í erfiðri fjarbúð og á
fyrsta ári í mjög krefjandi námi og
það ýtti mér fram af brúninni.“
Ofsakvíði Dagnýjar hefur komið
í köstum sem eru misslæm. „Oftast
byrja þau á því að ég fæ óraun-
veruleikatilfinningu og upplifi að
ég sé ekki á staðnum. Þegar kastið
byrjar verður hjartslátturinn ör og
Erfiðustu ráðin reyndust best
„Ég hef lært að ef mataræðið fer úr skorðum og hreyfingarleysið verður mikið, þá
er alltaf stutt í kvíðann,“ segir Dagný Rut Haraldsdóttir. Mynd | Hari
Hvað þú ættir að
gera ef einhver í
fjölskyldunni þjáist
af ofsakvíða
○ Ekki gera ráð fyrir því að þú
vitir best hvers einstaklingurinn
þarfnast, spurðu hann/hana.
○ Reyndu að forðast óvæntar
uppákomur.
○ Ekki reyna að stjórna því hversu
hraður batinn er, leyfðu viðkom-
andi að ná bata á eigin hraða.
○ Reyndu að finna eitthvað já-
kvætt í öllu. Ef viðkomandi
fer hálfa leið að settu marki,
snýr til dæmis við miðja vegu í
kvikmyndahús eða samkvæmi,
skaltu líta á það sem árangur.
Ekki láta viðkomandi finnast
hann hafa brugðist vonum þín-
um.
○ Ekki auðvelda forðun. Hvettu
einstaklinginn til að taka eitt
skref í áttina að því sem hann
vill forðast.
○ Ekki fórna eigin lífi og ala á
gremju.
○ Reyndu að halda ró þinni þegar
viðkomandi fær kvíðakast.
○ Mundu að það er eðlilegt að þú
hafir áhyggjur fyrir hönd við-
komandi og sért ef til vill kvíð-
in/n.
○ Sýndu þolgæði og skilning en
sættu þig ekki við að einstak-
lingurinn verði ósjálfbjarga.
○ Segðu eitthvað uppörvandi, eins
og „Þú getur gert þetta þótt þér
líði illa. Ég er stolt/ur af þér. Get
ég gert eitthvað fyrir þig? And-
aðu hægt og rólega. Einbeittu
þér að stað og stund. Það eru
ekki aðstæðurnar sem eru að
angra þig heldur hugsanir þínar.
Ég veit að þér líður hræðilega,
en þér er ekki hætta búin. Þú er
hugrökk/hugrakkur.“
Heimild: persona.is
þá verð ég alltaf alveg viss um að ég
sé að fá hjartaáfall. Það tók mig ótal
tíma hjá sérfræðingum og hjarta-
læknum að komast að því að það er
ekkert að hjartanu í mér. Ég var svo
viss um að læknunum yfirsæist eitt-
hvað. Ég er ábyggilega með mest
skoðaða heilbrigða hjarta í heimi.
Þessi ítrekuðu ofsakvíðaköst leiddu
svo til mjög mikillar vöðvaspennu
milli rifbeina og ollu því að ég var
með sífelldan verk fyrir brjóstinu.
Og ég hélt auðvitað að það væri
eitthvað stórhættulegt líka.“
Dagný segir að hræðslan hafi
byggt á ranghugmyndum og hún
hafi með mikilli vinnu greint þær
og yfirunnið. Eftir tíu ár hafi hún
náð stjórninni af kvíðanum.
Hvaða ráð getur þú gefið öðrum sem
glíma við ofsakvíða?
„Hugræna atferlismeðferðin hefur
reynst mér gríðarlega sterkt vopn.
Með sjálfskoðun hef ég lært hvað
það er sem kemur kvíðanum af
stað. Nú get ég gripið í taumana
miklu fyrr. Svo reyndust ráðin vel
sem mér þótti erfiðast að heyra.
Að fara út og hreyfa mig þegar mér
leið sem verst eða fá mér möndlur
í staðinn fyrir Snickers. Ég hef lært
að ef mataræðið fer úr skorðum og
hreyfingarleysið verður mikið, þá
er alltaf stutt í kvíðann.“