Fréttatíminn - 24.03.2017, Qupperneq 46
Í dag vakna ég og fer beint út í garð og tek þrjú sett af Wim Hof djúpöndun og enda síðasta settið á armbeygjum. Tek svo oft höfuðstöðu eða handstöð-
ur eftir það, því það er svo gott að
fá blóðflæðið þarna upp. Svo köld
sturta,“ segir Sölvi Avó Pétursson
þegar hann er fyrst spurður um það
hvernig hann byrjar hvern dag.
Hvað færðu þér oftast í morgunmat?
„Þessa dagana er ég að fá mér
Bulletproof kaffi með smjöri og MCT
kókosfitu. Þetta hentar fullkomlega
sem morgunmatur. Ég hef svo farið
allan skalann í gegnum tíðina með
að prófa mig áfram með hvað gefur
besta orku. Allt frá hafragraut með
rjóma og kindakæfu í ofurfæðis hrá-
fæði sjeika.“
Hvers konar hreyfingu stundar þú?
„Ég á dálítið erfitt með að stunda
„rútínu“ líkamsrækt, fæ alveg nóg
af rútínum í vinnunni. Stuttar
sprett- og lyftingaæfingar er eitt-
hvað sem ég gæti tileinkað mér og
hlakka til að gera meira af því. Ég
hreyfi mig fyrst og fremst til að fá
orku, slökun og skemmtun. Það sem
er í uppáhaldi er jóga, fjallgöngur,
dans og heitt og kalt þjálfun.“
Hvað gerir þú til að slaka á?
„Ég er svo heppinn að vera með
kort í Laugar Spa, það er alltaf gott
að lenda þar. Annars að fara í heita
laug úti á landi, eða jafnvel kalda,
vera úti í náttúrunni eða fara upp í
bústað. Ég leita mikið í jóga og hug-
leiðslu einmitt af því að það er svo
góð slökun, gott að stilla sig af með
að samhæfa andardrátt og hreyf-
ingu.“
Lumar þú á góðu heilsuráði sem hefur
reynst þér vel í gegnum tíðina?
„Borða einfalt og einbeita sér að
orkunni, er það ekki aðal ástæð-
an fyrir því að við erum að borða?
Forðast kemíska kokteilinn, minna
af númerum og orðum sem þú veist
ekki hvað þýðir. Ef það er eitthvað
í matvælunum eða snyrtivörunni
sem þú veist ekki hvað er, leggðu það
þá aftur á hilluna og farðu heim og
rannsakaðu málið betur. Af hverju
að kaupa eitthvað sem gæti verið
meinlaust, en þú þarft ekkert á því
að halda.“
Hvert er skrýtnasta heilsuráð sem þú
hefur heyrt?
„Rakakrem hefur mér alltaf fund-
ist dálítið skrýtið, kemískur kok-
teill til að gefa raka. Ég hef náttúr-
lega aldrei notað svoleiðis, skil ekki
tvistið. Sólarvörn vekur líka hjá mér
kjánahroll, kemískur kokteill til að
verjast sólinni. Ég hef ekki ennþá
fundið betri sólarvörn/aftersun en
kaldpressaða kókosolíu á mína húð.
Jú, ef ég væri að fljúga beint frá Ís-
landi til Afríku myndi ég nota sólar-
vörn fyrstu dagana, og velja náttúru-
legasta kostinn, með kókosolíunni.“
Hvað gerirðu þegar þú vilt gera vel við
þig?
„Fer í spa-ið. Þegar kemur að mat,
þá eru í sérstöku uppáhaldi hráfæði-
-ísarnir úr eftirréttabókinni hennar
Sollu.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður
en þú ferð að sofa?
„Í dag fæ ég mér zinc, magnesium
og glutathione (þegar ég á það til)
sem mér finnst allt hafa góð áhrif á
svefninn. Ég slekk á wifi-bylgjum og
skil tölvuna og símann eftir í stof-
unni. Ég á reyndar stundum erfitt
með það.
Ég hef tileinkað mér góð ráð fyrir
góðan svefn upp á síðkastið sem ég
hef lesið um meðal annars í bullet-
proof lífstílnum. Það eru áhuga-
verð fræði sem koma inn á svokall-
að „biohacking“ þar sem fylgja góð
ráð fyrir betri svefn, líkamsrækt og
mataræði.“
Sölvi Avó og Sölvi Tryggvason fjöl-
miðlamaður verða með Bulletproof-
námskeið á laugardaginn, 25. mars, á
Gló í Fákafeni. Námskeiðið hefst klukk-
an ellefu og þar verða kennt handtökin
við að búa til Bulletproof kaffi og farið
í gegnum mataræðið og lífsstílinn í
kringum það. Þetta er í annað sinn sem
þeir félagar halda svona námskeið en
það fyrsta þótti heppnast gríðarlega
vel. Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið má finna á Enter.is.
Byrjar daginn á djúp-
öndun, armbeygjum
og kaldri sturtu
Sölvi Avó Pétursson og félagi hans og nafni Sölvi Tryggvason halda
Bulletproof-námskeið á Gló í Fákafeni á laugardaginn. Sölvi Avó er
næringarþerapisti og hláturjógaleiðbeinandi og hefur verið lýst sem
heilsuhippa. Við yfirheyrðum Sölva Avó um heilsuvenjur hans.
Félagarnir Sölvi Avó og Sölvi Tryggva halda Bulletproof-námskeið á Gló í Fákafeni á laugardaginn.
FÖSTUDAGUR 24. MARS 20172 HEILSA
Ég hreyfi mig
fyrst og fremst
til að fá orku, slökun
og skemmtun.
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu
ALLT
UM
HLAUP
Þann 31. mars
Elsa Kristinsdóttir
elsa@frettatiminn.is
Íslensk
menning
Þann 7. apríl
Gauti Skúlason | gauti@frettatiminn.is
Guðbjarni Traustason | gt@frettatiminn.is
VIÐHALD
HÚSA
ÞANN
8. APRÍL
Gauti Skúlason
gauti@frettatiminn.is