Ljósið - 13.03.1908, Qupperneq 3

Ljósið - 13.03.1908, Qupperneq 3
LJÓSIÐ 51 náð og miskunsemi hins eilifa, trúfasta föður við oss synduga orma. En hafðu nú opin eyrun, Hallgrímur biskup, og bannaðu ekki þjónum þínum, prestunum, að ransaka N)rja testamentið, ekki síður en það gamla. Hver og hvernig er sá gleðiboðskapur, erþiðþjón- ar kirkjunnai: viljið að menn og konur trúi, sem eilíf- um sannleika, sér til huggunar og lífernisbetrunar fyrir sig og börn sín? Af því að þér, Hallgrímur biskup, og prestum þín- um, er svo tamt að þegja — já, steinþegja, þegar al- varleg spursmál eru borin upp fyrir ykkur, sem al- þýðan á íslandi befði gott af að heyra skynsamleg svör frá, guðfróðu vitringunum, þá hlýt eg að gera ykkur öllum þann greiða, að sína blessuðu fólkinu, sem þið hafið blekt með kenningarbulli ykkar, hvað gleðiboð- skapurinn er fagur og vel með hann farið af ykkur lærðu mönnunum, sem mest gumið af kærleika og for- sjón föðursins á himnum. Taki allir lesendur »Ljóssins« vel eftir miskunn og kærleika löðursins við sinn eingetna son. Innihald og aðalkjarni gleðiboðskaparins ef þessi — eftir kenningu presta vorra —, að góður faðir á himnum hafi sent öllum heimi, n. 1. öllum þjóðum, sem á jörðunni hafa búið og munu á henni búa, — góðan, réttlátan son, þann eina er faðirinn átti og hann sem góður íaðir gat haft á velþókun. — Þennan rjett- láta góða son lætur réttláti faðirinn á himnum grimma og óréttláta menn kvelja til dauða — fyrir augum sér á sinni fótskör —. Því jörðin segja fróðir prestar sé fótskör þess almáttuga, kærleiksríka föðurs. Eg leyfi mér að hrópa upp og dæma að slík kenning um föður allrar miskunar sé alls ekki kristi- leg, miklu fremur Ijót, röng og djöulleg, — ómögulegt að blóðfórnar kenningin sé nokkuð annað en argasta villumannakenning. Blóðfórnarkennigin er líka í algerðri mótsögn við lögmál það, er Gyðingar áttu á steintöíluro sínum.

x

Ljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.