Fréttablaðið - 02.02.2018, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 8 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 2 . F e b r ú a r 2 0 1 8
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
sKOðun Magnús Ragnarsson
fjallar um samkeppnina við
RÚV. 16
spOrt Jón Daði Böðvarsson
nýtur lífsins hjá Reading. 18
Menning Korriró og dillidó
opnuð á Safnanótt í Listasafni
Íslands. 26
lÍFið Plogging er nýtt líkams-
ræktaræði sem snýst um að
hlaupa og tína upp rusl í
leiðinni. 30
plús sérblað l FólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Siggu
Kling
Stjörnuspá
sÍða 34
Sparaðu eins og meistari
Meistaramánuður Íslandsbanka island
sb
anki.is/m
eistari
Ljósainnsetningin Örævi eftir Valdimar Jóhannsson, Ernu Ómarsdóttur, Pierre Alain Giraud og Íslenska dansflokkinn var opnunaratriðið á Vetrarhátíð sem var sett í gær. Verkinu var
varpað á olíutanka úti á Granda. Tónlist við verkið er eftir hljómsveitina Sigur Rós. Hátíðin samanstendur af Safnanótt, Sundlauganótt, Snjófögnuði og ljósalist. Fréttablaðið/anton brink
VerKalýðsMál Stjórn VR skoðar
hvort rétt sé að láta reyna á að
félagið gangi úr Alþýðusambandi
Íslands án þess að bera það undir
félagsmenn VR í allsherjaratkvæða-
greiðslu. Þetta segir Ragnar Þór Ing-
ólfsson, formaður VR, í samtali við
Fréttablaðið. Hann býst við því að
látið yrði reyna á málið fyrir félags-
dómi.
Ragnar segir að VR sé aðili að
ASÍ í gegnum aðild að Landssam-
bandi verslunarmanna. „Það eina
sem við þurfum að gera er að segja
okkur úr Landssambandinu og þá
segjum við okkur sjálfkrafa úr ASÍ.
Stjórnin getur ákveðið þá úrsögn.“
Hann segir þó að lög ASÍ geri ráð
fyrir að aðildarfélög þurfi að efna
til allsherjaratkvæðagreiðslu til að
segja sig úr sambandinu. „Þarna er
ágreiningsmál og við erum að hugsa
um að láta reyna á það fyrir félags-
dómi,“ segir Ragnar. Málið verði
skoðað á trúnaðarráðsfundi sem
verði líklega í mars eða apríl.
Ragnar segir að VR greiði Lands-
sambandi verslunarmanna og ASÍ
um 150 milljónir á ári. „Ég sé enga
ástæðu til að vera að borga nánast
helminginn af rekstrarfé Alþýðu-
sambandsins og halda því uppi
þegar mér finnst það vera að vinna
á móti hagsmunum launafólks. Þá
spyrjum við okkur hvað getum við
fengið fyrir þessar 150 milljónir.
Getum við ráðið inn auka lögfræð-
inga og farið í meiri neytendavernd
og eflt okkar þjónustu og okkar
sjóði?“
Ragnar segir þó þessa leið, að fara
með málið fyrir félagsdóm, einungis
vera til skoðunar. „Ég er sannfærður
um það að ef við förum í atkvæða-
greiðslu, þá vinnum við þá atkvæða-
greiðslu,“ segir Ragnar. Ef málið færi
í allsherjaratkvæðagreiðslu yrði hún
haldin á þessu ári.
Ítarlegar verður fjallað um mál-
efni verkalýðsfélaganna í helgar-
blaði Fréttablaðsins á morgun.– jhh
Gætu sleppt kosningu
Til skoðunar er hvort hægt sé að taka ákvörðun um úrsögn VR úr ASÍ án
undan genginnar atkvæðagreiðslu. Ragnar Ingólfsson, formaður VR, segir að
málið færi þá fyrir félagsdóm. Fari atkvæðagreiðsla fram verði það fyrir árslok.
dóMsMál Réttargæslumaður kær-
anda í kynferðisbrotamáli furðar
sig á því að hún og skjólstæðingur
hennar fái aðeins aðgang að eigin
gögnum áður en ákært er í máli.
„Við fáum sumsé aðeins aðgang
að þeim gögnum sem við höfum nú
þegar lagt fram sjálf. Mér þykir þetta
undarlegt,“ segir Sigrún Jóhanns-
dóttir, réttargæslumaður konunnar.
Sigrún segist þó skilja synjunina
þegar svo ber undir að rannsókn
standi enn yfir og það geti spillt
rannsóknarhagsmunum.
– jóe / sjá síðu 6
Vill sjá fleiri
gögn í málinu
Sigrún
Jóhannsdóttir
0
2
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
2
-1
F
A
8
1
E
E
2
-1
E
6
C
1
E
E
2
-1
D
3
0
1
E
E
2
-1
B
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K